Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.10.1948, Qupperneq 4

Faxi - 01.10.1948, Qupperneq 4
4 F A X I í þeirri ætt mun nafnið hafa verið al- gengt. — Vöruð þið mörg systkinin? —■ Foreldrar mínir eignuðust 11 börn, en aðeins 4 þeirra komust ti'l fullorðins- ára. Þegar ég fæddist voru þau búin að missa 5 syni. Tvo misstu þau í einu úr barnaveiki, tveggja og átta ára gamla. Einn itáði 17 'ára aldri. Þau voru því mjög hrædd um að mín 'biðu sömu örlög og hinna bræðranna. Þá var það að gamall maður, sem Guðmundur hét, n'ágranni föður míns, sagði við hann: „Þú skalt láta drenginn bera þitt nafn, og sjá til hvort það lánast ekki“. — Og Ihann hefir farið að ráðum hans ? — Já. Eg var þó mjög heilsulítill og táplítill fram yfir fermingu og voru for- eldrar mínir uggandi um mig, en Guð- mundur gamli var hinn öruggasti. „Sann- ið þið til, þessi drengur verður ellistoðin y.kkar“, sagði hann. — Og hann hdfir reynst sannspár? — Já, þau voru hjá mér, eftir að þau hættu búskap, og dóu bæði hjá mér. — Bjó ifaðir þinn allan sinn búskap að Fitjamýri ? — Nei. Arið 1884, þegar ég var 6 ára, fluttist hann að Berghyl í Hrunamanna- hreppi. Þar bjó .hann þar til árið 1903 að hann fluttist að Austur-Ey í Laugardal. — Fórstu snemma að 'fást við smíðar? — Mig langaði alltaif að smíða, þegar ég var krakki. Faðir minn ifekk einu sinni Jón bónda og smið i Villingaholti, til að smíða .fyrir sig, og bauð hann þá föður mínum að kenna mér að smíða. Varð það úr, að ég réðist til hans til tveggja ára smíðaríáms. Þá var ég á seytjánda ári. 1 ViJlingaho'lti var ég jarðskj'álftaárið 1896. Þá hrundu þar öll hús í jarðskjálft- unum. Þökin voru lögð stórum, íslenzk- um 'hellum 2—4 cm. á þykfkt, þegar húsin 'fóru að hristast, þoldu þau ekki þungánn og allt hrundi. — Hvernig var smíðanáminu háttað ? — Eg ge'kk að slætti á sumrin, sléttaði t'ún á haustin og reri áveturna! Minnst af tímanum var unnið við smíðar. Þó kenndi Jón mér að smíða líkkistur. Hann var sá eini þar um slóðir ,sem gerði það, og lét hann mig smíða nokkrar kistur. — Þú ert víst 'búinn að smíða nokkuð margar kistur? — Þær munu vera fast að eða um 300. — Fórstu í verið Ú veturna þegar þú varst ungur? — Já, ég reri 4 vertíðir á Stokksevri og eina í Keflavík. Svo fór ég suður á Sel- tjarnarnes, og var eina vertíð á skútu^sem Þórður í Ráðagerði 'átti. Eftir það var ég á Séltjarnarnesi 'fjóra vetur og vor. Var þá við smiðar hj'á ýmsum, — Runóífi Olafs- syni í Mýrarhúsum, Þórði í Ráðagerði og fleirum. Þar var gott að vera. Mér hefir hvergi liðið eins vel og 'á Nesinu. Fólkið var svo gott og alúðlegt. En mikið skelf- ing drukku karilarnir á Nesinu í þá daga. Það ofbáuð mér. Þórður í Ráðagerði var að byggja hús, og ha'fði fimm smiði. Þeir drukku allir nema ég. Þórður galf þeim oft í staupinu en veitti þeim ákúrur um leið. Hann var þá vanur að gefa mér rúsín- ur eða annað góðgæti í staðinn. Við mig var hann eins og bezti faðir. — Þú hefir ekki þegið snapsinn? — Nei, sem betur fór neitaði ég því afdráttarlaust, og var því þó oft haldið fast að .mér þar á Nesinu. — Hefir þú þá aldrei bragðað áfengi ? — Jú, ekki get ég neitað því, en ég hefi aldrei fundið á mér. — Hvar ’byrjaðir þú 'búsikap? — Eg tók við búi af föður mínum í Austur-Ey árið 1905 og giftist þá Guð- rúnu Guðmundsdóttur frá Hörgsholti. Við eignuðumst 6 börn, 4 dætur og 2 syni og li'fa þau öll. — Hafðir þú stórt bú? —1 O-nei, ég 'átti um 70 ær. En um vorið, þegar ég ætlaði að taka við búinu, — þá var ég.hjá Runóllfi I Mýrarhúsum, — 'frétti ég að Skúli læknir í Skdlholti ætlaði að hætta búskap og vildi selja fjár- stofn sinn 80 ær á 13 kr. stykkið. Mig langaði mjög til að kaupa, því Skúli átti gott fé, og hafði orð á því við Runólf, en mig skorti fé, því kaupið var lágt, — kr. 1,50—2,00 a dag við smtðarnar, og var þó vinnudagur oft langur. Runólfur sagði að mig skyldi ekki skorta fé, ihann skyldi útvega mér nóga peninga. Þegar ég fór ftá honum, fór hann með mig inn í banka, og fékk mér þar upp- hæðina, sem mig vantaði, og þurfti ég ekki einu einni að kvitta fyrir, hvað þá að setja veð. Sagði hann að ég gæti borg- að eftir mínum 'hentugleikum, ekkert lægi á. Keypti ég svo féð, cn (föður mtnum (fannst þetta mesta óráð, ég mundi aldrei losna úr svona stórri skuld. Ég gat nú ekki heyjað nóg handa öllu þessu fé, svo að ég varð að farga miklu af því um haustið, en gat 'þá greitt upp skuldina og átti úrvals 'fjárstofn eftir. Ég þénaði vel á þessum kaupum. — Hvenær komstu hingað til Kefla- víkur? — Árið 1914, í 'byrjun fyrra stríðsins. — Konan þín var lengi heilsulaus? — Já, hún lá rúmföst í 17 ár. Aður hafði hún tvisvar fengið þessa veiki og þá legið heilan vetur í hvort skipti, en 1917 veikt- ist hún í þriðja sinn og lá þá rúmföst þar til 1934 að Jónasi Sveinssyni lækni tókst að koma henni á fætur. Hún lifði í 14 ár öftir það og var oftast á fótum. — Fórstu strax að stunda smíðar þegar þú komst hingað? —- Nei, ég var við vélbáta og aðra vinnu í 6 ár. Þá var ekkert 'byggt hér, og mjög lítið ifyrir smiði að gera. Það var ekki fyrr en 1921, sem ég byrjaði að smíða fyrir alvöru. Þá byggðum við Skúli sál. Högna- son 2 hús. Voru það hús Einars heitins Guðmundssonar og Ingibers heitins Olafs- sonar. — Varst þú tíkki fyrsti byggingarfull- trúinn í Keflavík? — Svo mun það hafa átt að heita. Það var 'árið 1927 að mér var falið að líta eftir byggingum og setja þær niður. Þá var verið að ibyrja að byggja á Norðfjörðs- túninu ,við Túngötu og Vallargötu, en ekkert skipulag var þ'á komið og engin byggingarsamþykkt. — En nú er víst komið meira en nóg. Blessaður farðu ekki að skrifa þetta allt saman. — Nei, ’bara það helzta. En segðu mér, eru þeir ekki eitthvað skyldir þér nafn- arnir Skúli Hallsson og Skúli Oddleifs- son ? — Jú, þeir eru báðir systursynir mínir. Þriðja systir mín átti líka Skúla fyrir son. Var það Skúli dál. Högnason. Og Skúlanafnið ætlar að 'haldast við í ættinni? — Það lítur út fyrir það. Skúli sonur minn og Sigríður dóttir mín hafa bæði látið heita því nafni. Eg þakka Skúla fyrir þægilegheitin. Skúli er einn þeirra manna, sem hefir orðið að þola margvís'lega mæðu og örð- ugleika á 'lífsleiðinni. En 'fáa hefi ég þekkt, sem taka mótlæti sínu með jafnmikilli ró- semi. Aldrei hefir hann æðrast eða látið bugast. Alltaf er hann glaður og gaman- samur. Allta'f boðinn og 'búinn til að gera öðrum greiða. Allir, sem hafa eitthvað 'kynnst honum, — og þeir eru orðnir margir, — munu l>era til hans hlýjan hug, og h'lýjar óskir a þessum tímamótum. Slík- um mönnum er gott að kynnast. G. M.

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.