Faxi - 01.01.1966, Page 1
Jan.-blað
O^b
J'CLfi
1
XXVI. ÁR 1966
Davíð Valgarðsson með Pálsbikarinn, sem Ásgeir Ásgeirsson for-
seti gaf til minningar um Pál Erlingsson sundkennara. Hann er
veittur fyrir bezta afrek á Sundmeistaramóti Islands og hlaut Davíð
hann fyrir 100 m. flugsund, þar sem hann setti íslandsmet 1:02,7
mm., sem gefur 1012 stig. — Davíð varð nýlega 18 ára gamall og
er þegar orðinn einn bezti sundmaður landsins. Á hann nú orðið
Islandsmet í yfir tíu sundgreinum. — Er Keflvíkingum mikill sómi
að slíkurn afreksmanni og miðað við aldur hans og hæfileika á
hann fyrir sér mikla framtíð. Davíð hefur verið sérstaklega áhuga-
°g samvizkusamur við æfingar undanfarin ár, enda hefur árangur
orðið eftir því. Vonandi heldur hann áfram á sömu braut og ætti
hann þá að geta orðið meðal beztu sundmanna á Norðurlöndum.
SUNDMEISTARAMOT
KEFLAVÍKUR 1965
Sundmeistaramót Keflavíkur 1965 fór fram í Sundhöll
Keflavíkur 19. des. s. 1. Þátttaka í mótinu var mjög góð eða
rúmlega 40 keppendur úr Keflavík; auk þess kepptu sem
gestir á mótinu sundfólk frá Reykjavík og Akranesi.
Ágætur árangur náðist í flestum sundgreinum og margir
efnilegir unglingar náðu prýðisgóðum árangri. Er gróska
mikil í sundíþróttinni í Keflavík, enda njóta Keflvíkingar
handleiðslu hins kunna sundkappa og þjálfara, Guðmundar
Gíslasonar.
Á sundmótinu var að venju keppt um afreksbikar karla
og kvenna. Var nú í fyrsta sinn keppt um nýja verðlauna-
gripi, þar eð báðir afreksbikararnir unnust til eignar á síð-
asta móti. Gefendur hinna nýju afreksbikara eru þeir sömu
og áður, þ. e. Kaupfélag Suðurnesja og Olíusamlag Kefla-
víkur. — Afreksbikar kvenna hlaut Auður Guðjónsdóttir
fyrir 100 m. bringusund, sem hún synti á 1:31,4 mín., en það
var bezta kvennaafrek mótsins og gefur 620 stig. Afreks-
bikar karla blaut Davíð Valgarðsson, sem tvímæalaust er
mesti sundafreksmaður, sem Keflvíkingar hafa átt. Hlaut
hann bikarinn fyrir 100 m. skriðsund, sem hann synti á
1:01,7 mín. og gefur 704 stig.
Urslit í einstökum greinum mótsins urðu þessi:
100 metra skriðsund karla:
Keflavíkurmeistari Davíð Valgarðsson 1:01,7 mín.
2. Kári Geirlaugsson, IA 1:05,1 mín.
100 metra bringusund kvenna:
Keflavíkurmeistari Auður Guðjónsdóttir 1:31,4 mín.
2. Kristín Einarsdóttir 1:36,9 mín.
100 metra bringusund karla:
Keflavíkurmeistari Þór Magnússon 1:18,3 mín.
2. Sigmundur Einarsson 1:24,8 mín.
3. Vilhjálmur Ketilsson 1:25,4 mín.
50 metra baksund karla:
Keflavíkurmeistari Davíð Valgarðsson 31,8 sek.
2. Guðm. Þ. Harðarson, Æ 38,1 sek.
3. Axel Birgisson 44,9 sek.
Framhald á bls. 3.
ífif