Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1966, Síða 2

Faxi - 01.01.1966, Síða 2
Frá örhirgð til allsnœgta Úr framsögurœðu á fundi í málfundafélaginu Faxa Sólin lækkar óðfluga á lofti. Veður- brigði eru mikil, jafnvel nístandi kuldi steðjar að — haustið hvolfir sér yfir norð- urhvel jarðar. Þannig hefur vetur gengið í garð á Is- landi svo langt sem sagnir herma. Þetta nornaspil náttúrunnar setti kvíða og ugg í þjóðina — stundum svo að lá við niðurlotum. Hafís og hungur — eld- ur og eimyrja — fellir á fólki og fé — hugtök, sem ganga eins og rauður þráður í gegnum söguna. En víkingablóð svall í æðum lands- manna, og frelsishvötin bjó þeim djúpt í brjósti. Það, ásamt fögru kyrrlátu sumri við sjó eða í sveit, voru forréttindi, sem byggðu fólkið upp — endurnýjuðu það til aukinna átaka við erfiðleika frum- stæðra lífshátta. Jósk gróðurmold var afþökkuð. Gull og grænir skógar Vínlands heilluðu held- ur ekki hugi manna, þótt margslungin örlög lægju til nokkurs landnáms þar af okkar hálfu. Fátt þessa farandfólks festi rætur vestra, og færra komst heim en vildi. í margar aldir varð íslenzk alþýða að glíma við harðdrægt höfðingjavald, and- legrar og veraldlegrar stéttar, — nýlendu- hætti og einokunarfjötra í frumstæðri verzlun. Skip landsmanna týndust í hafi eða löskuðust í lendingu — einangrun útlag- ans varð sem sorgarband um landið. — Skógarnir gengu til þurrðar — og engin tæki, af einni eða annarri gerð, voru til að létta undir eða auka afköst. Eftir 10 alda byggð landsins var þjóðin snauðari heldur en hún var þegar hún nam hér land — flúin frá öllum sínum eignum — frá sínum föðurgarði. Örlítill hluti híbýla þeirra þætti íbúðar- hæfur í dag — fæði og klæði lítt viðun- andi hjá öreigum tuttugustu aldarinnar. En á fyrri öldum þjóðlífsins skópu nokkrir bókmenntasnillingar þá líftaug, sem, þrátt fyrir hinar ótrúlegustu þreng- ingar, nægði til að firra þjóðina fjörtjóni. Skálda- og hugsjónaglóðin hefur aldrei \ulnað út með öllu. Fólkið var gætt ódrepandi þolgæði, vits- munum og drengilegri einurð. Undirokun og kúgun mögnuðu frelsis- viljann. Og að lokum tókst að kveðja kansillisráð, og síðar konung að fullu. Jón Tómasson. Réttur hins smáa bar sigurorð af ofríki hins stóra. Þjóðin stóð fagnandi á vegamótum. Leiðir lágu til margra átta, og margir voru leiðsögumenn — einkum á vestur- og austurleiðum — þ. e. a. s. umbjóðendur þeirra stefna, er skipta heiminum í tvær megin heildir (blökkir). Ymsir hræddust hið mikla sviðsljós er lék um landið og þráðu jafnvel fyrri ein- angrun, en velflestir treystu á land og þjóð, — já, — treystu á allt mannkyn. Sú eðlilega leið var því farin að leita samvinnu og samhugs nágrannaþjóðanna, en velvilja allra þjóða. Flestum hérlendum og þeim erlendum, er til þekkja, mun koma saman um það, að yfirleitt hafi vel til tekist hjá íslend- ingum, síðan að þeir urðu fullveldi. En okkar litla þjóðarskúta mun þurfa góða kjölfestu, hagfeld segl og lei'kni við stjórnvölinn, ef halda skal glæstri sigl- ingu í kjalsogi stórveldanna — þar kann að verða lítið bærilegra en milli steins og sleggju. Spurning er, hvort þar verður virtur heilagur réttur smáþjóða til sjálfsforræðis. Eða verður lífsþrá þjóðarinnar kannske léttvægt lóð á þeim vogarskálum? í þessum efnum eigum við meira undir Guðlegri náð og miskunn heldur en við viljum viðurkenna. Og við viljum heldur ekki viðurkenna að frelsið hafi eingöngu verið okkur metnaðarmál, heldur jafn- framt og miklu fremur andlegt og efna- legt hagsmunamál — einkaeign og órofa erfð. Vart mun sú þjóð finnanleg á vorri jörð, að fólk búi við betri og jafnari kjör heldur en hér á landi. Húsakostur, heil- brigðishættir, öryggi, atvinna, persónu- frelsi, ýmis þægindi, sem hér eru almenn, en teljast lúxus hjá öðrum þjóðum. Já, vinna handa öllum, sem vilja vinna og hungur óþekkt nú orðið. Hungur og atvinnuleysi eru þeir kvillar, sem verst leika mannkynið. Jafnvel Svartidauði og styrjaldir koma þar ekki til samanburðar. Hér er stöðug og hröð uppbygging. A síðustu mannsævi — 70—80 árum, hefur verið byggt yfir alla þjóðina. Ösæmilegar mannaíbúðir eru að verða algjört afbrigði. Af hnattfræðilegum og veðurfræðilegum ástæðum fyrst og fremst, er mikið meira borið í íbúðarhús hér en tíðkast erlendis. Farkostir allir á láði og legi og í lofti eru í fremstu röð. Fiskimenn okkar og flugmenn eru af- burða fengsælir, svo að öfund veldur hjá stórþjóðum. Landbúnaðurinn hefur tekið ámóta tröllauknum framförum. Flestir bæir voru frumbýlingslegir þrátt fyrir margra alda ábúð — illa hýstir og óræ'ktarlegt umhverfi. I þess stað skarta nú björt og traust stórhýsi í flestum sveit- um við fagurgrónar sáðsléttur. Og bú- smali aldrei í sögu þjóðarinnar verið meiri né afurðabetri. Sennilega hefur aldrei í sögu mannkyns- ins örsnauðari smáþjóð tökizt að ljúka jafn miklu verki á jafn skömmum tíma. Hvernig hefui þetta getað gerzt? Margar ástæður hafa verið okkur hlið- hollar. 1 fyrsta lagi samstillt örþrifaátak allrar þjóðarinnar til að brjótast undan okinu og hefja þróttmikla uppbyggingu. Skáldin blésu krafti og hugsjónaeldi í huga og hönd hvers manns. Þau yljuðu öldum landslýð og seyddu fram alla þá orku sem í þjóðinni bjó. Forustumenn í stjórnmálum voru far- sælir gæfu- og gáfumenn — bjartsýnir og djarfir. Listir, menntun og menning komust í hávegu. Fiskimiðin voru afburða gjöful og mönn- um lærðist nú óðum að nýta þau marg- falt betur en áður. Fólkið var vinnusamt og atorkumkiið. Jafnvel heimsstyrjaldirnar — ógæfa annarra þjóða, færði ökkur nokkra fjár- muni og lífsreynslu. 2 — FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.