Faxi

Volume

Faxi - 01.01.1966, Page 3

Faxi - 01.01.1966, Page 3
Tæknin hefur gert innreið sína og fært birtu og 'hlýju inn á 'hvert heimili í land- inu og bægt frá bitrum minningum skammdegishörmunga. Hvar sem farið er um byggð ból á Islandi blasir við aug- um framtak og bjartsýni — nýtízkuleg tæknibrögð — arfur frá ofurmennum, skáldum og hugvitsmönnum. Víðlendir akrar bylgjast fyrir síðsumar- blænum — breiðstræti í borgum iða í dagsins önn. Við bryggjur og bólverk liggur fengsæll floti og býr sig til nýrra fanga. Verksmiðjur mala gull — breyta lofti, föstum efnum og lagardýrum 1 dýr- mæta vöru. Frost og funi — þ. e. a. s. jöklar, fanna- þök og eldur jarðar, sem áður hræddu landslýð og orsökuðu oft hungur og eyð- ingu byggðar, hafa nú verið tekin í þjón- ustu okkar — vinna nú með okkur að bættri framtíð. Já, — flest hefur verið okkur hagfellt síðan að við endurheimtum frelsið. Þjóðin hefur verið sem fuglinn frjáls. Teigað svalt og hressandi frelsið — þanið vængi, notið víðsýnis og leitað fararheillar af gjörhygli þess sem í fjötrum liefur soltið. Þetta flug frá örbyrgð til allsnægta hef- ur hlotið verðskuldaða eftirtekt og aðdáun. — Þó mundi glöggt auga hafa greint stöku mislukkuð vængjatök — svo sem, að annar vængurinn vildi niður þegar hinn ætlaði upp. Þegar allar aðstæður eru metn- ar er það kannske ekki tiltökumál. Flestir landsmenn viija, á einn eða ann- an hátt, hafa áhrif á gang mála — og hafa fullan rétt til þess. Þess vegna er togstreita og stundum harka um þau mál, sem skapa forustuaðstöðu. Stjórnmálamennirnir hafa að sjálfsögðu verið mishæfir tii forustu, þótt allir vildu vel. Ekki er það þó mælikvarði hvort þeir ’hafa verið níddir niður eða upphafnir. Leiðir þær er þeir 'hafa viljað fara með þjóðina til hins fyrirheitna vielfarnaðar hafa verið lofaðar af einum en fordæmdar af öðrum. Tollar, skattar, höft, gengisfelling, ný- sköpun, viðreisn, vinstri, hægri, Hannibal og Hermann — allt eru þetta kennileiti í stjórnmálasögu síðustu ára, sem valda mismunandi geðbrigðum í minningunni. I dag er kapprætt um skattamilljarða, — á morgun verða það kannske höft — niðurfærsla eða enn ný og áður ófarin leið til lausnar aðsteðjandi vandamálum. Flestir vita, að ógrinni fjár þarf til að halda þjóðinni í æðra veldi — en þar vilja allir vera. Enginn vill hverfa aftur til kotbýlisins, til erfiðra lífskjara og ör- yggisleysis — eða hver óskar sér sigg- runninar handar eða kuldabólgins fóts? Það má heita að allir séu að ánetjast hóg- lífi. Þægindi á heimilum — sjónvarp — bílar — veizlusalir með vínveitingum. Sjálft útvarpið er nú ja'fn óaðskiljan- legt æskufólkinu og tóbaksnautnin var samgróin neftóbaksmanninum fyrr á ár- um. Þannig má eygja fjölda andstæðna, sem allar hafa áhrif á gang mála nú — og í framtíðinni — ýmist veikja eða styrkja vængjatakið. Þrátt fyrir allt mun reynast erfitt að vera leiðtogi íslenzku þjóðarinnar á leið- inni frá undirokun. — x — ísraelsmenn voru töframenn og hátt skrifaðir 'hjá æðri máttarvöldum. Ferð þeirra austur um Rauðahaf var furðuleg íþrótt — en óhæg leið þaðan til Kanaans- Jands. Það hafði bilað strengur í þjóðarsálinni. Hörpustrengur trúar og eindrægni hljóm- aði þar ekki lengur. Sundrung kom upp Sundmeistaramót Keflavíkur Framhald af blaðsíðu 1. 50 metra skriðsund kvenna: Keflavíkurmeistari Rakel Ketilsdóttir 34,6 sek. 2. Helga Einarsdóttir 39,8 sek. 50 metra flugsund karla: Keflavíkurmeistari Davíð Valgarðsson 29,5 sek. 2. Sigmundur Einarsson 36,0 sek. 3. Þór Magnússon 37,9 sek. 50 metra bringusund kvenna: Keflavíkurmeistari Kristín Einarsdóttir 43,6 sek. 2. Lovísa Gunnarsdóttir 43,6 sek. 50 metra baksund kvenna: Keflavíkurmeistari Auður Guðjónsdóttir 38,0 sek. 2. Hrafnhildur Kristjánsdóttir, A 38,7 sek. 66% metrar fjórsund karla: Keflavíkurmeistari Davíð Valgarðsson 43,1 sek. 2. Þór Magnússon 49,5 sek. 3. Sigmundur Einarsson 50,6 sek. 66% metrar fjórsund kvenna: Keflavíkurmeistari Auður Guðjónsdóttir 53,6 sek. Matthildur Guðmundsdóttir, A 50,6 sek. í stað samheldni — léttúð í stað viljastyrks — stjórnleysi í stað staðfestu — gulldans í stað hugsjóna. Eyðimerkurganga þeirra var áskapað auðnuleysi. íslenzka þjóðin á margt sameiginlegt með ísraelsmönnum. Fyrstu ár frelsisgöngu okkar hafa líkst töfrum. En um árabil hefur tjaldbúð okk- ar staðið á völlunum við Sínaí. Við greiðum mikla skatta — eins og ísraelsmenn gerðu er þeir biðu þar Mós- esar. Gull og gersembar, jafnvel eyrna- skraut þeirra var skattheimt til sköpunar kálfinum, er skyldi verða þeim andlget og veraldlegt goð. En Móse kom í tæka tíð. Hann kunni tökin á þjóð sinni. Er einhver Móse væntanlegur til okkar? — Allir stjórnmálaflökkarnir munu sjálf- sagt telja sína forustu verðugan arftaka að því hlutverki. En hvort heldur leið dkkar liggur í austur til hinna Rauðu hafa eða til Kanannslands — eða auðn- ast að halda áfram glæstri siglingu sjálf- stæðis og framþróunar fullvalda ríkis -— þá er lærdómsríkt að rifja upp ýmislegt af reynslu íslendinga — ísraelsmanna og annarra frá liðnum öldum. 4x50 metra boðsund karla: Keflavíkurmeistari Sveit UMFK 2:17,4 mín. 2. Sveit Rvíkur og Akran. 2:22,0 mín. 3x50 metra boðsund kvenna: Keflavíkurmeistari Sveit UMFK 1:58,2 mín. Sveit Arm. Rvík synti á 1:55,0 mín. 33% metra bringusund sveina: Keflavíkurmeistari Guðni Kjarbo 27,5 sek. 2. Einar Leifsson 27,6 sek. 3. Guðfinnur Friðjónsson 29,0 sek. 33% metra bringusund telpna: Keflavíkurmeistari Anna M. Eyjólfsdóttir 27,9 sek. 2. Helga Einarsdóttir 30,2 sek. 3. Erla Bjarnadóttir 31,1 sek. 33% metra skriðsund sveina: Keflavíkurmeistari Jón Sigurðsson 20,7 sek. 2. Axel Birgisson 22,2 sek. 3. Einar Leifsson 22,2 sek. 33% metra skriðsund telpna: Keflavíkurmeistari Helga Einarsdóttir 24,2 sek. 2. Anna M. Eyjólfsdóttir 25,6 sek. 3. Helga Guðmundsdóttir 26,4 sek. H. G. FAXI — 3

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.