Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1966, Qupperneq 5

Faxi - 01.01.1966, Qupperneq 5
fellssýsla og líklega hefur Geithellahrepp- urinn verið með í fyrstu. Hann var þá á unga aldri, aðeins 26 ára. Var fæddur 17. desember 1859. Þorgrímur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, sonur Þórðar Torfasonar verka- manns og sjómanns í Vigfúsarkoti. Þórð- ur var sonur Torfa stúdents á Mófells- stöðum í Borgarfirði, Arnasonar frá Lönd- um í Stöðvarfirði, Torfasonar frá Sand- felli, Pálssonar prófasts Asmundssonar frá Skógum undir ‘Eyjafjöllum. Kona Þórðar Torfasonar — móðir Þor- gríms — var Ragnheiður Jónsdóttir frá Korpúlfsstöðum Björnssonar Stephensen. Þorgrímur var tekinn í Reykjavíkur- skóla (Latínuskólann) 1874. Varð stúdent 1880, með 2. einkunn (75 stig). Útskrif- aðist úr læknaskóla 5. júní 1884, með 1. einkunn (100 stig). 17. apríl 1885 auka- læknir í 3. læknishéraði, Skipaskaga. Skip: aður 13. april 1886 héraðslæknir í 16. lækn- ishéraði, Hornarfjarðarhéraði. 17. október 1884 giftist hann Jóhönnu Andreu Lúðvígsdóttur Knudsen, bók- haldara í Reykjavík. Hún var fædd 5. júní 1884. Hún var áður gift séra Birni Stefáns- syni frá Arnanesi í Hornafirði, presti í Sandfelli í Oræfum, en missti hann eftir 4 ára sambúð. Þau eignuðust 2 sonu, sem hétu Lúðvíg Arni og Stefán. Lúðvíg dó á fyrsta ári, en Stefán komst til fullorðins- ára. Hann lærði tréskurð hjá Stefáni Ei- ríkssyni tréskera og listamanni. Var svo einn vetur í Kaupmannahöfn við frekara nám. Hann tók sveinspróf í þeirri iðn, en stundaði hana ekki að staðaldri, því hann réðst teiknikennari við gagnfræða- skólann á Akureyri um 12 ára bil. En er Þorgrímur stjúpi hans dó, sem verið hafði féhirðir Sparisjóðs Keflavíkur tók hann við því starfi og gegndi því til dauðadags. Allmargt er til af útskornum munum eftir hann, svo sem stólar, skápar o. fl. Bera þeir það með sér, að þar hefur snillingur að unnið.Prófsmíði hans, sem var mynd af gyðju er hélt á stórum blómsveig, hið mesta listaverk, lenti í húsbruna á Akur- eyri og er því ekki til. Þau Þorgrímur og Jóhanna fluttu aust- ur í Hornafjörð sama vor og honum var veitt læknishéraðið (1886) og settust fyrst að í Arnanesi hjá Einari bónda Stefáns- syni, bróður séra Björns, fyrra manns Jó- hönnu, en jarðnæði hafði þeim verið út- vegað á næsta bæ, Borgum, sem var hjá- leiga frá Bjarnanesi, talin rýrðarkot, þó ræktunarskilyrði væru góð, en áhöld til jarðvinnslu voru þá ekki til og ekki fáan- leg, jafnvel vart nothæfar rekur, því síð- ur önnur stórvirkari. Bót var það í máli fyrir frumbýlingana í Borgum, að Jóhanna og Stefán sonur hennar áttu hluta úr landi Arnaness, sem þau fengu að erfð eftir séra Björn fyrra mann hennar. Fengu þau þar talsvert slægjuland og beitiland fyrir sauðfé, til sumar- og vetrarbeitar. Geldfé gekk þar að mestu leyti úti, á hverjum meðalvetri, enda kom Þorgrímur fljótlega upp góðum fjárstofni. Það fyrsta, sem gera þurfti til þess að geta flutt að bújörðinni Borgum og setzt þar að, var að byggja íbúðarhús. Til þess voru fengnir beztu smiðir sem völ var á í nágrenninu, Eymundur í Dilks- nesi, Jón í Þinganesi, Eyjólfur á 'Horni o. fl. Húsið var byggt úr timbri, 2 hæðir, efri hæð portbyggð, — með kjallara, sem að mestu leyti var í jörð. Var hann hafður til geymslu. Mun húsið hafa verið 12—15 álnir að lengd og 5—6 álnir á breidd. Þótti það fyrirmyndar hús á þeim tíma, enda ekkert hús í sveitinni þá jafn reisulegt og vandað. Gripahús voru nægileg til að byrja með búskapinn, að vísu torfkofar, en þeir voru þá algengir og varla aðrir til. Svo var fjósbaðstofa með torfþaki sæmilega stæði- leg, þó nokkuð gömul væri. — Þessi gömlu hús týndu brátt tölunni, en í stað þeirra komu ný hús, stærri og rúmbetri með timbur- og járnþökum, en þakjárn kom ekki til Hornafjarðar, neitt að ráði, fyrr en um og eftir aldamót og þá átti Þor- grímur læknir drjúgan þátt í að útvega það, eins og margt annað, sem til fram- fara og hagsbóta horfði. Það kom brátt í ljós, að Þorgrímur hafði mikinn áhuga á búskap og það sem meira var, hann var framúrskarandi búmaður, athugull og hagsýnn, þó hann hefði ekk- ert verið við sveitabúskap fyrr en hann kom að Borgum, enda blómgaðist bú hans vel, þó sjálfur gæti hann lítið að því unnið vegna læknisstarfsins, sem hann lét ætíð sitja í fyrirrúmi fyrir öðru, enda stundaði liann það með frábærri alúð og samvizku- semi. Hann var alltaf tilbúinn, ‘hvort sem var á degi eða nóttu, þegar menn komu að sækja hann og það var víst óhætt að segja, að það veður væri ófært, sem aftraði honum frá að vitja sjúklinga. Þá voru allar ár í sýslunni óbrúaðar, flestar jökulár, oft vatnsmiklar, straumharðar og illar yfir- ferðar, svo sem Jökulsá í Lóni, Horna- fjarðarfljót, Hólmsá á Mýrum, Heina- bergsvötn og Kolgríma, svo þau vatns- mestu og erfiðustu séu nefnd, auk vatn- anna á Breðiamerkursandi, sem fara þurfti yfir til að komast í Öræfin, en þau til- heyrðu læknishéraðinu og þangað þurfti Þorgrímur alloft að fara. Bót var það í máli, að hér í sýslunni var fjöldi góðra vatnamanna, sem fengið höfðu æfingu við að „velja“ vötnin, þekkja eftir straum- fallinu, hvort fært var eða ekki, að kom- ast yfir þau og hvernig þræða skyldi brotin. Það mátti segja, að fólkið væri alið upp við að svalka í þeim. Var því eðlilegt að menn lærðu að þekkja hvernig við þau skyldi skipta, því það verður hverjum að list sem hann leikur. En þó að vatnamenn- irnir skaftfellsku eigi góðan vitnisburð skilið, þá má ekki gleyma hestunum. Þeir áttu sinn hluta, og þeim var það stundum beinlínis að þakka, að menn komust lífs af úr þeim. Það var líka venjan, þegar vitja þurfti læknis og fara yfir vötnin, að fá til þess tvo góða vatnamenn og úrvals vatnahesta, en þeir voru margir til og sjálfsagt þótti að hafa góðan hest handa lækninum og jafnvel 2, ef flýta þurfti ferð, enda var það mikið öryggi fyrir hann. Það kom fljótt í ljós, að Þorgrímur var því starfi vaxinn, að takast á hendur að þjóna þessu erfiða og víðlenda læknishér- aði, sem Austur-Skaftafellssýsla var þá, því ekki er sambærilegt að ferðast um hana nú og áður. Nú er kominn akfær vegur eftir henni endilangri og allar ár brúaðar, nema Steinavötn, sem brúuð verða bráðlega og Jökulsá á Breiðamerkur- sandi, en ferja er komin á hana og senni- lega verður hún brúuð áður en mörg ár líða. Nú er hægt að fara á bíl frá Lónsheiði að Skeiðarársandi á hálfum degi, en það voru stífar 2 dagleiðir áður, jafnvel þó á góðum hestum væri og greitt farið. En þó við dáum dugnað og hagsýni hús- bóndans í Borgum, Þorgríms Þórðarsonar, má einnig og ekki síður, minnast hús- freyjunnar Jóhönnu Lúðvígsdóttur konu hans. Hún var kaupstaðarbarn, eins og maður hennar, fædd og upp alin í Reykja- vík, en hún var fljót að semja sig að sið- um sveitafólksins og reyndist afbragðs hús- móðir, stjórnsöm, góðlynd og glaðvær og vildi jafnan 'hvers manns vandræði leysa. Hún var manni sínum samhent að „gera garðinn frægan“ og stjórnaði öllu innan- húss með mestu sæmd og prýði. Þau höfðu alltaf margt vinnufólk og ekki liðu mörg ár frá því þau byrjuðu búskapinn, þangað til heimilið var orðið með þeim stærstu í sveitinni. Framhald. FAXI — 5

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.