Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1966, Side 7

Faxi - 01.01.1966, Side 7
Fyrir nokkru barst mér elskulegt bréf frá sr. Valdimar J. Eylands, ásamt myndar- legri peningagjöf til Faxa. A blaðstjórnar- fundi nú fyrir skömmu var mér falið að koma á framfæri við hann innilegu þakk- læti blaðstjórnar fyrir hlý og vinsamleg ummæli hans og þann viðurkenningar- og vinarhug, sem í gjöfinni felst. Þá óskaði blaðstjórnin einnig, að bréfsins og þess- arar góðu gjafar yrði getið í janúarblaði Faxa, þar sem umsögn og góðhugur slíks sæmdarmanns sé Faxa til mikils álitsauka. Það skal fúslega viðurkennt, að mér er vel til geðs að fara að óskum blaðstjórnar í þessum efnum og setja á þrykk hér í blaðinu hlyleg viðurkenningorð prestsins, um leið og ég færi honum innileg- ar kveðjur og þakkir okkar Faxamanna, þótt ég telji mig alls óverðugan og ómaklegan hans vinsamlegu orða, en þau eru mér eigi að síður mikils virði, eins og reyndar öll vinsamleg uppörfun hlýtur að vera hverjum þeim, sem í mannlegum vanmætti leitast við að láta eitthvað gott af sér leiða. I bréfi sr. Valdimars stendur þetta m. a. um síðasta jólablað Faxa: „Þetta eintak blaðsins er þér til mikils sóma. Efnið er ágætt og smekklega valið. Þú skrifar skemmtilega og notar afbragðs mál. Viðtöl þín eru snjöll og þú dregur upp glöggar myndir af mönnum og mál- efnum. Ef þú hefðir ekki valið þér kenn- arastöðuna að lífsstarfi, 'hefðirðu sannar- lega ekki lent á rangri hillu, þó þú hefðir gert blaðamennsku að aðalstarfi. Á báðum þessum sviðum hefur þú markað spor í sögu kjörsveitar þinnar, „langt umfram það, sem efni stóðu til,“ svo ég noti orð, er gömul kona, sem þekkti æsku mína og uppruna, sagði við mig fyrir nokkrum árum, er hún minntist á æviferli minn fram að þeim tíma. Þetta var nú svo sem ekki mikið skjall, en ég skyldi hvað hún fór. Ég vona, að þú móðgist ekki við samanburðinn. Mér þykir vænt um, að sóknarprestur þinn kann að meta kosti þína og dugnað og gefur þér verðskuld- aða viðurkenningu í blaðinu." Mynd af hinum nýja hökli Ytri-Njarðvíkur- safnaðar mun birtast í næsta tölublaði Faxa. Krabbameinsvörn Keflavíkur og nágrennis skorar á konur á Suðumesjum að mæta vel á Leitarstöð Krabbameinsfélags íslands, Suðurgötu 22, Reykjavík. Nánari frétta að vænta í næsta blaði. Ósóttir vinningar í lcikfangahappdrætti Systrafélags Kcflavíkurkirkju. 280 — 1300 — 2079 — 2520 — 3083 — 3261 — 3577 — 3938. Vinninganna má vitja til Maríu Hermanns- dóttur, Lyngholti 8, Keflavík. Kveðjur og þakklæti. Sigurður Magnússon frá Valbraut hefur beðið Faxa fyrir kveðju sína og innilegt þakklæti til kvenfélagsins í Garðinum fyrir stórhöfðinglega peningagjöf nú fyrir jólin og tvenn undanfarin jól. Biður hann þeim guðs blessunar fyrir þessa óverðskulduðu hugul- semi sér til handa og óskar kvenfélaginu gæfu og gengis á komandi tímum. En til s. 1. jóla Og með hugann við hækkandi sól yrkir Sig- urður þessa vísu: Heimsins sólin hækka fer hrings um sínar göngur. Gleður fólk í heimi hér helgur jólasöngur. Sigurður dvelur nú blindur og í aldurdómi sínum á elliheimilinu Hlévangi í Keflavík. Er ég leit inn til hans nú á dögunum, hitti ég þar fyrir herbergisfélaga hans, Jóhannes Árnason og Ágúst L. Pétursson, og rabbaði við þá um stund. Báðu þeir félagarnir mig að koma á framfæri í Faxa innilegu þakklæti til allra þeirra, er hefðu sent vistmönnum elliheimilis- ins peningagjafir nú fyrir jólin. Sú umhyggju- semi hafi að vonum vakið mikla gleði á heimilinu og þaðan streymi hlýjar hugar- kveðjur og þakkir til hinna örlátu, góðu gefenda. Einnig hefur Helga Geirs beðið blaðið Faxa fyrir kærar kveðjur og hjartans þakklæti til Kvenfélagsins Sóknar, Lyonsklúbbs Kefla- víkur, bæjarstjórnar Keflavíkur, Ólafs Lárus- sonar o. fl. er sendu henni ágætar gjafir og sýndu henni margháttaða vinsemd um jólin. Eins og að framan er sagt, lítur Ágúst oft inn á herbergið til þeirra félaganna, Sigurðar og Jóhannesar, og hefur þá gjarnan á hrað- bergi lausavísur, svona til að krydda samræð- urnar, enda veit hann, að þeim líkar sá máti vel. Svo vill til, að allir þessir heiðursmenn nota mikið neftóbak og skilja tóbaksílátin aldrei við sig. Eru þeir gjafmildir á þessa nautnavöru og láta baukana óspart ganga á milli sín meðan þeir ræðast við. Til gamans hafa þeir gefið tóbaksílátunum hlýleg nöfn, t. d. heitir glas Sigurðar Herðibreið, sem mun dregið af vaxtarlagi þess. Baukur Jóhannesar nefnist Snotra, en Ágústar Gvendólína. Um þessi þarfaþing kveður Ágúst: Herðibreið er greiðagóð, gleður sansa mína. „Snússinn“ veita snilldarfljóð, Snotra og Gvendólína. H. Th. B. io\xi Útgefandi: Málfundafélagi5 Faxi, Keflavík. — Ritstjóri og afgreiiislumaBur: Hallgrímur Th. Bjömsson. Blaðstjóm: Hallgrímur Th. Bjömsson. Margeir Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins í lausasölu krónur 15,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f. F A X I — 7

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.