Faxi

Volume

Faxi - 01.04.1970, Page 2

Faxi - 01.04.1970, Page 2
slyssins var hætt við frekari sýningar sveitarinnar að því sin-ni. I júlí var farin skemmti- og æfingarferð um Fjallabaksleiðir austur í Eldgjá. Var Jósef Borgarssyni og konu hans boðið í þá ferð. Æfingarferð var einnig farin í Tindfjöll í ágústmánuði. I september var svo haldin Jeppakeppni, sem tókst mjög vel. Iþrótt þessi á auknum vinsældum að fagna a. m. k. hjá áhorf- endum, sem skemmtu sér stórkostlega vel. Síðan var námskeið í meðferð og notkun talstöðva, og í október námskeið í notkun korts og áttavita, miðað við ferðir og leitir. Þá var og mikil leitaræfing við Snorrastaðatjarnir og í hrauninu þar suður af. Arshátíð hélt sveitin svo í nóvember. Það var mikið og virðulegt hóf, sem haldið var í Sjómannastofunni Vík og þangað boðið fólki með svipuð áhugamál og sem hefur átt samleið með Stakksmönnum, ýmist við leitir eða æfingar. I fluglínumálum þótti ástæða til að rifja upp og læra betur. Hannes Hafstein tók þessa kennslu að sér í desember og gerði hann því góð skil. Konur félagsmanna héldu kökubasar fyrir jólin, og færðu Stakk ágóðann af þessu glæsilega framtaki. En á árinu bárust sveitinni margar góðar gjafir, t. d. gaf Kvennadeild Slysavarna- félags íslands í Keflavík kr. 20.000,00 í peningum, einnig afhenti hún sveitinni til afnota neyðartalstöð. Konurnar í slysa- varnadeildinni hafa sýnt starfi Stakks- manna sérstaka lipurð, hjálpsemi og skiln ing. Kr. 10.000,00 voru afhentar af konu, sem ekki vill láta nafns síns getið. Björn Magnússon gaf spil í bíl félagsins og Sölu- nefnd varnarliðseigna gaf aftaníkerru, hentuga til farangurs- og tækjaflutnings. Lyonsklúbbur Keflavíkur gaf vandaða tal- stöð ásamt tilheyrandi loftnetsbúnaði í bifreið sveitarinnar. Nokkur börn á barn- mörgu heimili í Keflavík tæmdu spari- bauka sína og gáfu Stakk nokkur hundruð krónur. Bæjarstjórn Keflavíkur hefur lagt sveit- inni til töluvert fé og margháttaða fyrir- greiðslu. Allan þennan stuðning og góðan skiln- ing á störfum félagsins, sérhverja hvatn- ingu og fyrirgreiðslu, þakkar Stakkur af alhug. Eitt er þó ótalið af störfum Stakks- manna á liðnu starfsári, sem ekki ber mikið á — en mér, sem þessar línur rita, er kunnugt um, það er „vinnan við bílinn okkar“. Stakkur festi kaup á gömlum og illa förnum Weapon á haustnóttum 1968. Síðan var bíllinn tekinn í sundur stykki fyrir stykki, allt lagað og endurbætt og þvínæst endurbyggður á fullkomnasta hátt. Hvert einasta handtak var unnið af félögunum sjálfum og sýndu margir þeirra ótrúlega mikla fórnfýsi og sjálfsafneitun, þar sem þeir fórnuðu svo til hverri ein- ustu frístund í þetta mikla verk, en rúm- lega ár tók að Ijúka því. Nú á sveitin líka stórglæsilegan bíl, sem hægt er að beita í torfæruakstur, ef með þarf, við hjálpar- störf eða æfingar. Það er ósk og von Faxa og raunar allra Suðurnesjamanna, að Stakkur geti haldið áfram að vaxa og vera viðbúin að veita aðstoð, ef með þarf, við ýmiskonar vanda, sem að höndum getur borið. Nokkurt tákn um að svo muni verða, finnst mér vera sú einstæða tilviljun, að nákvæmlega á sömu klöpp þar sem slysið varð s. 1. sjómannasunnudag, — og að framan getur, tókst Stakksmönnum að bjarga, með sömu fluglínutækjum, 5 mönnum úr m.b. Þerney, er hún strandaði þar í vonzku veðri 17. janúar s. 1., og tókst mjög vel. Jón Tómasson. jxó>0<xtXxxxxj>«><^s><><íxs><><>o<;sj>cxcxe<x^<-><-><^0<><x><x><^0<><>c>o<><><><^^ AÐALFUNDUR Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, föstudaginn 22. maí 1970, kl. 13,30. 1. Aðalfundarstörf samkvœmt 13. grein samþykkta félagsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins, samkvœmt 15. grein samþykktanna (ef tillögur koma fram). 3. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönn- um hluthafa á skrifstofu félagsins, Reykjavík, 19.—20. maí. Reykjavík, 13. marz 1970. Stjórnin. 46 — FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.