Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.04.1970, Qupperneq 3

Faxi - 01.04.1970, Qupperneq 3
„Lífræn tengsl milli skólans og þjóðfélagsins" Eins og marga rekur sjálfsagt minni til, var í októberblaði Faxa á s. 1. hausti við- tal við Erling Jónsson handavinnukenn- ara um tilraun með heimilisiðnað, sem þá stóð fyrir dyrum að hefja í handavinnu- stofum gagnfræðaskólans í Keflavík, undir leiðsögn Erlings og að fengnu góðfúslegu leyfi skólastjórans, Rögnvaldar Sæmunds- sonar. Ymsir, og þar á meðal undirritaður, voru í fyrstu ekki altlof trúaðir á að Erlingi tækist að koma þessari hugmynd sinni í framkvæmd, en meining hans var að minnka bilið milli ungra og gamalla og finna grundvöll fyrir sameiningu kynslóð- anna í endurvöktu baðstofulífi. Burt séð frá því hvað ýmsum kann að finnast um þessar skoðanir Erlings, mun öllum ljóst í hvert óefni er komið fyrir þjóðinni, ef svo stefnir sem horfir, því garnla máltækið: „Sameinaðir stöndum vér en sundraðir föllum vér“, er enn í fullu gildi. Engin þjóð fær staðizt til lengd- ar, — haldið sjálfstæði sínu, hætti æskan að rétta hinum eldri „örfandi hönd“ við uppbyggingu og viðhald þjóðlífsins, og gildir þá einu hvor aðilinn á sökina. Það var með þetta í huga, sem Erlingur hóf máls á að endurvekja hina fornu, ís- lenzku baðstofumenningu. Vegna gjör- breyttra aðstæðna, vill hann nú að skólinn taki við hlutverki baðstofunnar, þar sem ungum jafnt sem öldnum gefizt kostur á að notfæra sér starfsaðstöðu handavinnu- deilda skólanna, þegar nemendur eru þar ekki að skyldustörfum. Frá þessu greindi í áðurnefndu viðtali, og þessari hugmynd hratt hann í fram- kvæmd á s. 1. hausti, sem fyrstu tilraun, og er henni nú senn að ljúka með mjög glæsilegum árangri. Eins og ljóst má vera, hefir Erlingur verið driffjöðrin í þessu tilraunastarfi. Hann er hugmyndaríkur, ósérhlífinn og dverghagur — sannkallaður þúsund þjala smiður, sem allt leikur í höndunum á og því einmitt rétti maðurinn til að leiða slíkt starf, einkum þó meðan það er á algjöru tilraunastigi. Mér þykir rétt að það komi hér fram, að Erlingur hefir engin laun þegið fyrir sitt mikla starf í vetur — og þannig mun það oftast vera um þá, sem ryðja brautir til framfara og aukinnar menningar. En þess má þá líka geta, enda sýnir það bezt hug þátttakenda, að nú fyrir skemmstu, í lok einnar baðstofuvökunnar, færðu þeir honum vandaðaa stofuklukku að gjöf, sem lítinn þakklætisvott fyrir mikið og fórnfúst starf í þágu góðs málefnis. Er ég nú á dögunum leit inn á þenna vinnustað, til þess að fræðast um, hvað þar væri að gerast, virtist mér allir önnum kafnir, enda var námskeiðinu að ljúka og Erlingur Jónsson. fólkið því að leggja síðustu hönd á hina ýmsu smíðisgripi sína, en leiðbeinandinn, Erlingur, gekk á milli vinnuborðanna og lagði á ráð um eitt og annað, sem betur mætti fara. Er ég um stund hafði virt fyrir mér smíðisgripina og séð vinuubrögðin og hina miklu vinnugleði, sem lýsti þar upp hvert andlit, tókst mér að króa Erling af stutta stund og leggja fyrir hann nokkrar spurningar. — Hver er tilgangurinn með þessu starfi, Erlingur? — Sá, að afnema hin svokölluðu kyn- slóðaskipti og mynda sem lífrænust tengsl milli skólans og þjóðfélagsins. Þrengsli baga hér mest. Vegna þeirra bjóst ég ekki við að geta haft meira en 10 manns í einu, en fljótlega urðu þeir 15—20. — Risu þá ekki upp vandamál í sam- bandi við þrengslin? — I það minnsta hvorki elliglöp né æskulýðsvandamál. Sannast sagna óttaðist ég í byrjun að þrengslin yrðu til einhverra vandræða, því hér hefir oft verið allt of lítið svigrúm. Fólk á öllum aldri og af báðum kynjum hefir komið hér og unnið að áhugamálum sínum í sátt og samlyndi, og tel ég alveg aðdáunarvert, hve þetta nábýli hefir verið snurðu- og árekstralaust, enda tel ég það einmitt vísasta sönnun þess, að sé ákveðnum skilyrðum fullnægt, — þ. e. að hver og einn fái verkefni við sitt hæfi, þá sé samvera ungra og gamalla það ákjósanlegasta vinnuform sem völ er á, því þá leita menn gjarna ráða hver til annars, eins og tíðkaðist hér áður fyrr. Þá verða margir leiðbeinendur, hönd styður hendi og allur gangur mála verður ljós og eðlilegur. — Hvað hafa þessi námskeið verið mörg í vetur og á hvaða tíma dags er unnið? — Ég vil nú helzt ekki kalla þetta námskeið, heldur bara vinnuhópa, en þeir áttu upphaflega að vera tveir, einn frá hausti til hátíða og svo annar frá áramót- um og fram til vorsins. Þetta hefir ekki alveg staðizt, því vinnugleðin var svo mikil, að margir úr fyrri flokknum héldu áfram eftir áramótin og eru hér enn að verki, en húsið er opið á miðvikudög- um milli kl. 8—11.30 síðdegis. Gengur þá hver frá sínu vinnuplássi, raðar áhöldum og þrífur borð og gólf, þannig að allt sé tilbúið undir skólastarfið að morgni. — Ertu svo ánægður með útkomuna, Erleingur? — Sé miðað við aðstæður og að þetta er aðeins fyrsta tilraun, má ég vera mjög ánægður. — Hvað er svo framundan? — Því get ég ekki svarað, en ég vona fastlega að ábyrgir aðilar veiti fólkinu framvegis góða og nauðsynlega aðstöðu, svo það fái notið sín sem bezt. — Og svo að lokum, Erlingur, verður ekki haldin sýning á þessum fallegu mun um ? — Víst væri gaman að geta komið þvf í verk, því eins og þú sérð, bera smíðis- gripirnir margir hverjir fólkinu fagurt vitni, um leið og þeir vekja til umhugs- unar, hvort ekki sé tímabært að endur- vekja baðstofuna, hinn gamla og góða há- skóla íslenzkrar alþýðumenningar, veita honum þann virðingarsess í íslenzku þjóð lífi, sem hann eitt sinn hafði, til hagsældar fyrir land og lýð. H. Th. B. F A X I — 47

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.