Árbók knattspyrnumanna - 01.01.1939, Blaðsíða 13
iTii ýmsir aukaleikir, svo sem afmælisleikur K.lf.
við Val, Buchloh-leikurinn, Bradbury-leikurinn,
nanmerkurfararnir gegn úrvali, hýzkalandsfor-
arnir gegn Frani & K.R. o. s. frv.
Al' þvi, sem þegar er sagt, geta menn séð, að
reykvískir knattspyrnumenn hafa ekki legið á
liði sínu í sumar. fslandsmeistararnir, Fram,
sem ekki hafa horið þetta heiti síðan 1925,
hafa undanfarin ár unnið sleitulaust að þvi,
að hefja félagið í hið gamla virðingarsæti þess,
en það var fyrst nú í sumar sem þetta starf bar
þann árangur, sem félagsmenn höfðu altaf ósk-
að eftir. K.R. var með ýmsar nauðsynlegar til-
raunir á skipun liðsins. Al' þessu varð liðið
heldur óstöðugt, en húast má við, að næsta
suinar verði K.R. sterkara. Valur hafði stöðuga
og sterka vörn, en framherjnrnir voru mjög
mistækir, sem e. t. v. var vegna þess, að þeir
höfðu tekið upp meiri hraða en áður, en við
það varð samleikur þeirra ekki eins öruggur.
Víkingur hefir tekið livað mestum framförum
tvö síðustu árin og má segja, að hann standa
nú hinum félögunum fyllilega á sporði.
A111 stuðlaði að þvi, að gera þetta sumar ein-
stakt í s'inni röð. Góð tið, ágætir jjjálfarar, það,
hve jöfn félögin voru, góð regla á öllum mót-
um, frammistaða Frams i Danmörku og Vals
& Víkings í þýzkalandi, heimsókn Isl. Gorint-
hians og prýðileg aðsókn að öllum leikjum.
Síðar meir munum við minnast þessa sum-
ars sem eins hins bezta í sögu knattsþyrnunn-
ar hér fram til 1940. Á. M. J.
11