Nýi tíminn - 01.05.1934, Síða 1

Nýi tíminn - 01.05.1934, Síða 1
tíminn ÚTGEFANDI: BÆNDANEFND KOMMÚNISTAFLOKKS ÍSLANDS 3. árgangur Maí 1934 5. tölublað ■BBM—B———Él —— lÍTSlH líðlIF »lijálp« K i* e p p it 1 á ii st j ó ð i§ • Hún hefir verið dregin á langinn, en Tryggvi Þórhalls- son og fleiri góðir menn eru þó farnir að géfa *glæsilegar« tillcynningar, og svo mikið liefir verið veitt af lánum, að sjá má hvert stefnir. Tryggvi tilkynnir liáar tölur um útstrikanir, hve mikið hafi minkað árleg gjöld vaxta og afhorgana í lieilum sýslum og hve margir liafi orðið »hjálp- arinnar» aðnjótandi. — En þeg- ar betur er athugað, þá kemur í Ijós, að »hjálpin« er nákyæm- lega þess eðlis, sem Nýi tím- inn hefir margsinnis bent á. Tryggvi tilkynnir, að búið sé að ganga frá lánurn í N.-Þing.- og A.-Skaft.sýslum. I N.-Þing. hafa 104 bændur fengið lán af 228 og eftirgjöf skulda alls rúm 150 þús. eða um 1400 kr. að meðaltali á hvern bónda, sem lán heíir fengið. Samkvæmt => Skýrslu um efnahag bænda í árslok 1932« eru jjar 37 bænd- ur, sem ekki eiga fyrir skuld- um, og eru skuldir þeirra að meðaltali 9223 kr., en lausa- fjáreign þeirra innan við 4 þús. kr. Þá vantar að meðaltali 5500 kr. til að eiga fyrir skuldmn og nemur sú upphæð saman- lagt um 200 þús. kr., eða 50 þús. kr. rneira en öll eftirgjöf í sýslunni. Ekki hefir fengist skýrsla urn það, live margir þessara bæjtda hafa ekki sótt, vegna þess að þeir hafa séð það þýðingarlaust vegna ákvaíða Kreppulánasjóðslaganna, og ekki heldur, live margir þeirra, er sótt Iiafa, hafa ekki náð samn- ingi. En af áðurnefndum töl- uin er auðsætt, hve margir þeir eru, sem enga úrlausn liafa fengið af þeim, sem verst eru staddir. Því að nú má ganga að því sem vísu, að megnið af eftirgjöfunum fer ti! annara en Jjeirra, sem ekki eiga fyrir skuldum. í A.-Skaft. hafa 37 fengið lán af 174. Eiga 11 bændur ekki fyr- ir skuldum samkv. áðurnefndri skýrslu. Meðalskuld þeirra 11 er 5226 kr., en meðallausafjár- eign 2643 kr. Eftirgjöf alls er 21,952 eða tæp 2 þús. að með- altali á hvern þeirra bænda, sem ekki eiga fyrir skuldum og skulda meira en 5 þús. hver að mcðaltali. En auðvitað hafa þeir ekki notið eftirgjalanna, heldur þeir, sem betur eru staddir. Það er vitanlegt mál, að stór- bændurnir og betri meðalbænd- ur hafa fengið lán, sem eru þeim til bjargar. Lán þau hafa þeir getað fengið bæði af þeirri ástæðu, að þeir hafa skilyrði til að reka búskap með sæmi- legum árangri, þrátt fyrir hina slcörpu landbúnaðarkreppu, og einnig vegna nauðsynar yfir- stéttarinnar á því að lialda þess- um bændum ánægðum og tryggja aðstöðu þeirra til for- ustu í héruðunum. En sem dærni um úrlausn þá, sem smábændurnir fá, má nefna eftirfarandi: »Sjálfseignarbóndi“ fær 84% uppgjöf lausra skulda. Þetta hljómar ekki illa. En veðskuld- irnar standa eftir og alls eru skuldirnar nú full 5500 lcrónur og árlegir vextir og afborganir af þeim verða full 300 kr. En þessi bóndi hefir 36 ær og 3 kýr, en 8 manns í heimili. Mjólk er rétt nægileg til heirn- ilisins, enda býr bóndiun langt frá markaði. Dilkarnir hrökkva ekki í vaxtagreiðslu og afborg- ana. Ekkert til að kaupa fyrir nauðsynjar. Annar »sjálfseignarbóndi« fær 85 % afslátt óveðsettra skulda. En veðskuldir eru svo tniklar og óveðsettar skuldir voru orðn- ar svo geipiháar, að árlegar greiðslur vaxta og afhorgana af því, sem eltir stendur, eru hátt á 6. hundrað kr. Hann hel'ir 85 ær og 5 kýr og 13 manns í heimili. Dilkarnir hrökkva varla í greiðslur vaxta og afborgana. 300 kr. aukatekj-

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.