Nýi tíminn - 01.05.1934, Síða 3

Nýi tíminn - 01.05.1934, Síða 3
NÝITÍMINN 3 enn lægra. Að öðrum kosti hóta þær, að láta ekkert vinna. Ef þær l'á þessu framgengt, þá verður það með beinni og ó- beinni aðstoð Alþýðusambands- ins. Þessi ferill allur er skýrt og talandi dæmi um það sanna eðli og innræti sósíaldemókratí- isins og hlutverk þess. Þegar óánægjuöldurnar meðal hins vinnandi fólks yfir erfiðum kjörum hafa risið svo hátt, að barátta er að hefjast undir á- kveðinni forvstu til þess að fá þau bætt, þá rísa kratabrodd- arnir upp, re^na að hrifsa til sín forystuna og leiða baráttuna síðan til ósigurs, að svo miklu leyti, sem þeim er auðið. Þeg- ar svo er komið, þá ganga bur- geisarnir í fjöruna og hirða afl- ann, en veita þessum þjónum sínum jafnframt ríkulega hlut- deild í vinningnum og efla þannig og treysta hina fölskva- lausu trúmennsku þeirra. Þetta dæmi um svik krata- broddanna, ásamt öllu því, sem á undan er gengið, ætti að opna augu verkamanna í sjóplássuin út um land og vegavinnumanna í sveitinni íýrir því, að eini möguleiki þeirra til bættra lífs- kjara er dagleg, virk liagsmuna- barátta þeirra sjálfra undir for- ystu hins eina byltingarsinn- aða verkalýðsflokks, Kommún- istaflokks íslands. Fram til baráttu fyrir hækk- un vegavinnukaupsins og fyrir sem hæstu tillagi til verklegra framkvæmda af hálfu sveita- og sýslusjóða og ríkissjóðs. Fyrstu fimm dagana eftir lánsútboðið handa 2. fimm-ára- áætluninni söfnuðust 2,660,000 rúblur. Lánið átti að vera samtals 3Yi millj. rúbla. Fraaiisóliii leggst við -stjéra. »Kreppan hefir aukið van- trú manna á það, að flokk- ar, sem auðmenn ráða, séu góðir fyrir almenning«. (Tíminn 16. apríl 1934). Það kvað minna að þingi Framsóknar í marzmánuði en til stóð. Flokkurinn er í stór- um vanda staddur. Jónas hafði ákveðið, að reka þyrfti róttæka blekkingapólitík til að vinna aftur til flokksins þá fátæku bændur og landbúnaðarverka- menn, sem síðustu kosningar leiddu í ljós að voru að hall- ast yfir til kommúnista, sökum opinberrar auðvaldsþjónustu Framsóknar undanfarin ár. Og róttæka glamrið var hafið í kaupgjaldsmálunum með þeim árangri, að kauphækkun var tekið með himnafögnuði af liinni fátæku sveita-alþýðu og þegar hafinn undirbúningur með að knýja hana fram, eins og áður hefir verið tekið fram hér 1 blaðinu. — Þrátt fyrir nauðsyn auðvaldsins að láta Jónas glamra til að villa sýn fátækum búandlýð, þá varð að setja honum stólinn fyrir dyrn- ar, að hann léki sér ekki of glannalega að eldinum. Og þrátt fyrir klofning Framsóknar, þá var embættislýðurinn og íhalds- samir stórbændur enu ráðandi í flokknum og þeir eru svo sldthræddir við glannalegt lýð- skrum, að þeir sáu nauðsyn að skrúfa að nokkru leyti fyrir liina róttæku slagorða-bullu- krana og sjá um að þeir hefðu ekki of mikil völd í flokknum. Stefnu þá, sem flokkurinn markar sér í fi-amtíðinni, má nokkuð ráða af því, hvernig samsett er miðstjórnin, sem þingið kaus. Af 35 miðstjórn- armönnum eru 15 -stjórar (lög- reglu-, banka-, skatt-, fram- kvæmda-, skóla-, for-, rit-, skrif- stofu- og kaupfélags- (ekki út- varps-), allir með launum frá 5000—25,000 að minnsta kosti. Auk þess 1 sýslumaður, 1 prest- ur, 1 ráðunautur og 1 dýra- læknir. I miðstjórninni eru 15 bændur (þar af 1 bankastjóri, sem áður hefir verið talinn). Jarðirnar, sem þessir bændur búa á, eru að meðaltali 20,000 að matsverði, en meðaljörð á landinu er tæp 5000. Lægst metna jörð miðstjórnarmeðlims er 9300. Hreinni stórbændasvip er varla hægt að fá á þennan minnililuta flokksstjórnarinnar, sem »bændum« er skipaður. Auk þess hafa þessir bændur mjög fjölbreytt beiuaval — end- urskoðendur, alþingismenn, í milliþinganefndum, oddvitar, hréppstjórar, í stjórnum kaup- félaga o. s. frv., og eru á þann hátt umboðsmenn bankavalds- ins og ríkisvalds burgeisanna. »Kreppan liefir aukið vantrú manna á það, að flokkar, sem auðmenn ráða, séu góðir fyrir almenning«, sagði gamli Tím- inn, og sannast þar hið forn- kveðna, að oft ratast kjöftugum satt af munni. Nú hefir verið sýnt, að hver einasti miðstjórnarmeðlimur Framsóknar er ýmist hálaunað- ur embættismaður eða stór- bóndi: Þar af leiðir: Vantrú manna vex á það, að Framsókn sé góð fyrir almenning. Frá símsherjiiin. Úr einum hreppi á Austur- landi hefir komið greiðsla fyrir Nýja tímann frá 11 bæjum, en 15 bæir eru alls í lireppnum. í bréfi, sem fylgdi með þess-

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.