Gegn fasismanum - 21.09.1933, Page 2

Gegn fasismanum - 21.09.1933, Page 2
2 GEGN FASISMANUM nKBnSSEflHBaKMBBBBHHBHBSHKSW&aBDHantBHniflaaBHBBHn Verjum Thalmann, Torgler, Dimitrow og aðra félaga! í dag, 21, september, er einn hinna ör- lagaþrungnu daga í sögu byltingarsinn- aðrar hreyfingar öreiganna, þegar hjörtu allra öreiga slá í takt. 1 byrjun þessa árs var þýzka auðvaldið komið á það stig þróunar sinnar, að það varð að grípa til þeirrar stjórnaraðferð- ar, sem kallast fasismi, þ. e. opið einræði borgarastéttarinnar. — Byltingarsinnuð hreyfing verkalýðsins var þó svo sterk, að nauðsynlegt varð að nota alveg sérstök klókindabrögð, til þess að veikja vináttu smáborgaranna til forystuflokks verka- lýðsins og skilja l'rá, ef mögulegt var hinn óstéttvissari hluta. Eitt af þeim ráðum, sem fasistastjórnin þýzka fann þá upp, var að kveikja í ríkisþingsbyggingunni í Berlín og kenna það forstöðuflokk verkalýðsins, kommúnistaflokknum. l>etta skeði 28. fe- brúar. Daginn eftir var þegar hafin eins- dæma ofsókn á hendur kommúnistum og frjálslyndum verkamönnum. Hnepptir voru í fangelsi, Thálmann foringi komm- únistaflokks Þýzkalands, Torgler formað- ur þingflokks kommúnista í ríkisdeginum og þúsundir verkamanna og kvenna. Síðan hefir ofsóknunum ekki lint. Kvalir, pynd- ingar, dauði; það hafa nú á annað misseri verið hlutskipti þýzks verkalýðs. Nú sitja á annað hundrað þúsundir í fangelsum og fangabúðum. Daglega eru menn 1 tuga og hundraðatali pyndaðir til dauða. Detta var tilgangurinn með ríkisþingsbrunanum, sem þegar fyrir löngu hefir sannast, að stjórn- að var af blóðhundinum Göring og unnið af hinni blóðidrifnu Hitlersveit nr. 33, sem seinna varð að leysa upp vegna þeirrar ó- beitar, sem hún var farin að fá á starfi sínu í þágu landaðalsins þýzka og járnhöldanna við Rín. Eigi aðeins blöð kommúnista, heldur einnig frjálslynd borgarablöð hafa fyrir löngu sýnt öllum heiminum fram á eðli og uppruna þessa glæps, sem borgarastéttin þýzka hefir framið. Hún hefir því neyðst til að láta fara fram málamynda rannsókn núna í Leipzig til þess, á „lagalegan hátt“, að halda lygum sínum áfram. Eins og vitan- iegt er, hafa margir hinna beztu lögfræð- inga heimsins boðist til að taka að sér að verja hið augljósa mál Thálmanns, Torg- lers og annara félaga, sem ákærðir eru fyr- ir ríkisþingsbrunann. En árangurslaust, aðeins vildarmenn stjórnarinnar fá að vera verjend'ir. Enda hefir Hitler þegar fyrir löngu kveðið upp dóminn — heng- ingu! f dag hefjast réttarhöldin í Leipzig. Á sama tíma mun hef jast réttarhöld I London, þar sem frægir málafærslumenn frá öllum löndum taka mál þessi til lagalegrar með- ferðar. Öllum þeim, sem eitthvað hafa að segja, er boðið þangað til yfirheyrslu og skýringa. Allar skýrslur og skjöl verða gerð heyrum kunn og jafnóðum símuð út um heiminn. Hvað er það nú, sem á að fara að gera í Leipzig í dag? I Leipzig fara fram réttarhöld einhvers ógeðslegasta morðingja veraldarsögunnar yfir nokkrum hinna glæsilegustu foringja, sem verkalýðurinn hefir átt. Viljið þið, verkamenn og mentamenn, líða þetta? Nei, við skulum ekki líða það. Við, verkamenn og mentamenn hér á íslandi, erum einn hluti þeirrar stéttar, sem ráðist er á í dag í Leipzig. Við mótmælum dómsmorðunum, sem á að fara að fremja. Við söfnumst saman og mótmælum þeim. Við fylkjum okkur í kröfugöngur og mótmælum þeim. Við verjum líf Thál- manns, Torglers, Dimitrows og Tanews. íslenzkir verkamenn og konur, öll sam- taka með verkalýð og mentamönnum alls heimsins og við munum sigra! Hönd Hitlers á íslandi. Þýzkur maður, Helmut Stolzenwald að nafni, hefir verið búsettur í Vestmanna- eyjum síðustu sjö ár og stundað þar klæð- skeraiðn. Er hann kvæntur íslenzkri konu og dvelur barn þeirra, 5 ára gamall dreng- ur, nú hjá foreldrum Stolzenwalds í Berlín. f síðastliðnum mánuði tók Stolzenwald sér för á hendur til Reykjavíkur með þýzka herskipinu „Meteor", eftir boði varakon- 'súls l’jóðverja í Vestmannaeyjum, Jóhanns Jósefssonar. Á leiðinni til Reykjavíkui' hafði Stolzenwald tal af hásetum skipsins, barst vígbúnaðurinn í heiminum í umræð- urnar og lýsti hann sig andvígan vígbúnaði og talaði um ófriðarhættu þá, sem augsýni- lega væri yfirstandandi. Undirforingi af skipinu, sem hlustaði á tal þeirra kærði Stolzenwald fyrir foringja skipsins, sem hindraði það, að hann fengi að vera innan um hásetana, það sem eftir var ferðarinn- ar. — Þriðjudagsmorguninn fór Stolzenwald á sjúkrahús héraðslæknis í Vestmannaeyj- um til þess að heimsækja tvo slasaða tog- araháseta, sem lágu þar. Ilefir það verið venja hans að aðstoða þýzka sjómenn, sem oft dvelja í Vestmannaeyjum vegna slys- fara við vinnuna. En í þetta sinn var hann stöðvaður af sjúklingnum, sem sagði hon- um að hann mætti ekki heimsækja sig. Er enn á huldu um ofbeldisráðstafanirn- ar, sem bak við liggja. Hótanir konsúlsins. í fjærveru Jóhanns Jósefssonar gegnir Karl Jónasson þýzkum konsúlsstörfum í Vestmannáeyjum. ísleifur Högnason fðr á fund hans og spurðist fyrir um hverju þetta framferði sætti og hverskonar fyrirskip- anir konsúlatið hefði gagnvart Stolzenwald. Hann brást reiður við og sagði að það væri bezt fyrir Stolzenwald að hafa sig hæg- an og gera þetta ekki að opinberu máli, því það gæti orðið hættulegt fyrir hann. Því er og fleygt í Eyjum, að þýzka stjórn- in geri kröfu til þess að fá Stoizenwald af- hentan til Þýzkalands. Þetta er aðeins eilít- il mynd af ofbeldisráðstöfunum þýzku morðstjórnarinnar, sem daglega gerast í þúsundatali. Stolzenwald hefir nú sent beiðni til Alþingis um að fá íslenzk ríkis- borgararéttindi. Andstæðingar fasismans verða að sjá um að honum verði veittur þessi réttur nú strax á næsta þingi, svo hann geti fengið barn sitt heim úr „þriðja ríki“ morðingjanna. — Ábyrgðarmaður: Einar Olgeirsson. ísafoldarprentsmiðja h.f. Varnarlið verkalýðsins heldur fund í Bröttugötu föstudaginn 22. sept. kl. 8 e. h. — Mætið stundvís- lega, því fundurinn á að vera búinn kl. 9. Stjómin. Hitlers-þýin í Alþýðuflokksstjórninni. Verkamönnum út um allan auðvalds- heiminn hrís hugur við, í hvert sinn, er þeir sjá morðtáknið þýzka, hakakrossinn blakta við hún. Það minnir þá á allar kvalir, sem þýzki verkalýðurinn verður að þola undir því merki, — og á skelfingarnar, sem þeir sjálfir eiga í vændum, ef fasisminn sigrar. Þess vegna skoða verkamenn það alstaðar sem heilaga skyldu sína, að votta hinum þjáða, þýzka verkalýð samúð sína með því að berjast gegn kvalatákninu — og jafn- framt er það einn liður í baráttu þeirra gegn fasismanum innanlands. En kratabroddarnir, sem í Þýzkalandi ruddu fasismanum braut, halda því áfram í öllum öðrum löndum — og það sýndi sig sérstaklega áþreifanlega í „Diönu“-slagn- um. í>eir gáfu út yfirlýsingu um, að Dags- brúnarmenn mættu vinna, þrátt fyrir það, þó krat.abroddarnir hefðu „óbeit" á Hitlers- stjórninni. Við vitum hvernig þeirri óbeit er varið: Þeim svíður það, að það skulu ekki vera krataforingjarnir, sem láta drepa for- vígismenn þýzka verkalýðsins, eins og þeir drápu Liebknecht og Rosu Luxemburg, — þeim svíður, að það skuli ekki vera sósial- demokratiskur lögreglustjóri í Berlín, sem lætur skjóta niður verkamenn — eins og 1. maí 1929, þegar þeir drápu 30 verkamenn þar. Kratabroddarnir hafa óbeit á Hitler, af því að hann hefir orðið ofan á í sam- kepnjfnni um að þjóna auðvaldinu með viðeigandi aðferðum, — en af sömu a- stæðum vilja þeir heldur enga baráttu heyja gegn honum. Héðinn Vald. er svo sendur af örkinni til að reyna að verja framferði þeirra. Það er mjög erfitt fyrir slíkan sósíalfasista að standa frammi fyrir verkalýðnum, dag- inn eftir að hann er hyltur af fasistaskríl Reykjavíkur fyrir störf sín i þágu Hitlers. H. V. reynir að ljúga sig út úr klípunni. Hann segir að hakakrossskip hafi verið af- greitt með rússneska olíu í Stdkkhólmi. Þetta eru ósannindi. Verkamenn, undir forustu kommúnista gerðu verkfall, þang- að til hakakrossinn var tekinn niðu?. Sama var gert í Höfn, Odense, Aabenraa og víðar, en alstaðar reyndu kratabroddarn- ir að svíkja. — Næstu ósannindi H. V. og Alþbl. eru, að kommúnistar hafi ekki reynt að stöðva „Norden" á Akureyri. Sannleik- urinn er, að skipið var stöðvað í nokkra tíma, Verkamannafél. Ak. bannaði vinnu við það, en sökum þess hve kratabroddarnir með klofningi sínum hafa veikt verklýðs- samtökin á Akureyri, biðu þeir ósigur. Svo kórónar H. V. hræsni sína og svik- semi með því, að reyna að telja verkalýð trú um, að kratabroddarnir ætli að koma Hitler „á knén skjótlega“(!) með því að hætta að kaupa þýzkar vörur. Hve hættuleg þessi „bardagaaðferð" er þýzku nazistun- um og hver alvara fylgir máli, sést af því, að stærsti kaupandinn á Islandi af einum stærsta auðhring Þýzkalands (A. E. G.) er Raftækjaverzlun íslands, m. ö. o. helstu kratabroddar íslands eins og Sigurður Jón- asson, Jón Bald. og Ingimar Jónsson. Nei, hlýðnara þý, en Héðinn Vald, getur íslenzk ríkisstjórn og íslenzkur fasismi ekki óskað sér. — Skilyrði fyrir sigri verkalýðsins yfir fas- ismanum er sigurinn innan verklýðsstétt- arinnar yfir kratabroddunum. E. 0.

x

Gegn fasismanum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gegn fasismanum
https://timarit.is/publication/710

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.