Nýja konan - 01.12.1934, Blaðsíða 7

Nýja konan - 01.12.1934, Blaðsíða 7
Nýja konan 7 undarlega álappalegur innan í lionum. Halla kraup niður og braut af pilsinu að neðan. — Það er mátulegt að þræða svo sem svoua innan af hon- um að neðan; svo er kjóllinn ágætur. Finnst þér það ekki, Geirlaug? Geirlaug þagði, en stöðvaði rokkinn og leit til þeirra þung á brún. — Ekki er kannske dónalegt í honum efnið, sagði Halla. Það var jólakjóilinn hennar Dídí í fyrra. Hún á nú til skift- anna stúlkan sú. Það var að- dáun í róm Höllu. Það er eng- in skömm að því, Dísa mín, að vera í kjól af konsúlsdótturinni. Svona, mátaðu nú skóna. Dísa fann nú frarn jólasokk- ana sína. Það voru ullarsokkar úr fínu bandi, sem mamma hennar liafði spunnið í og prjónað. — Þeir eru ósköp lítið of stórir, sagði Dísa lágt. — Það er von, sagði Halla. Það er ekkert hægara en troða svolítið í tærnar á þeiin; svo eru skórnir aldeilis afbragð. Geirlaug hafði ennþá ekkert sagt, en hún skifti litum. Nú stóð hún upp frá rokknum, hægt en ákveðin. Hún færði Dísu þegjandi úr kjólnum og skónum, vafði því lauslega sam- an og lét böggulinn á borðið fyrir framan Höllu. Augun skutu eldingum. — Farðu með þetta þangað, sem það á heima. Arndís Sölva- dóttir verður ekki í því, það læt ég þig vita, Halla mín. — Geirlaug? Hvað eiginlega meinar þú? — Þér finnst sjálfsagt að ég megi þakka fyrir þá náð, að börnin mín fái að ganga í föt- um, sem konsúlsbörnin leggja niður. En ég tel þau of góð til þess. Pabbi þeirra var heiðar- legur sjómaðnr, sem aldrei dró sig í lilé, og liann gat ekki fórnað meiru en lífinu. Eg er á sveitinni, það er nú minn réttur, og börnum okkar Sölva liæfir það bezt, sem hreppur- inn leggur þeim til. Halla gamla var orðlaus, aldrei þessu vant. — Hefirþú skilið mig, Halla? Yiltu hirða þetta dót og koma því til skila? Halla tók böggulinn og fór út og nöldraði um leið ofan í barm sinn. Dísa hjúfraði sig snöktandi upp að móður sinni. Geirlaug strauk hlíðlega yfir hárið á henni og það hrukku nokkur tár ofan á bjartan kollinn. Móðipin. Eg þekki liina raunalegu skáldsögu Maxim Gorki: »Móð- irin«. En ég þekki líka söguna um aðra nútíma, djarflmga móð- ur — móður Vilmens. Hún er 56 ára gömul. Maður henn- ar var verkamaður. Hann er nú dáinn. Hún vann fyrir börnunum og ól þau upp. Þau urðu einnig verkafólk. Hún sauð súpu, stoppaði sokka og dagarnir liðu. Sjóndeildar- liringur hennar náði aldrei út fyrir gráu göturnar í Belle- ville. Yngsti sonurinn var múrari, 18 ára að aldri. Hann las konnnúnistahlaðið »L’ Hum- anite« og fór á fundi. Móðir- in ásakaði bann fyrir þetta og sagði: »Ég held þér væri nær að hugsa ofurlítið um sjálfan þig, og vera ekki að skifta þér af þessari pólitík«. En með sjálfri sér bar liún virðingu fyrir piltinum; hún var samskonar móðir og við þekkjum úr hundruðum skáld- sagna. — Hún elskaði með aft- ur augun. Það var laugardag nokkurn að Vilmen tók hlaðið og las þar að íasistarnir hefðu í hyggju að halda fund í miðju verkamannahverfinu í Belle- ville. Hann sagði: »Það má aldrei verða. Móðurinni gramd- ist, liann var ennþá barn í hennar augum, þeim lenti í liarðri orðasennu. Á mánudags- kveldið fór Vilmen ásamt öðr- um verkamönnum á fundar- staðinn. Lögreglidiðið var kom- ið á vettvang til að hjálpa fas- istunum. Það var hleypt af nokkrum skotum. Vilmen hneig niður, kúlan hafði hitt hann í höfuðið. Nú er komið að því fallega í sögunni. Rithöfundar miðald- anna skrifuðu urn furðuverk og gáfu blindum sýn. Við get- um sagt söguna eins og hún gekk, án þess að fegra liana á nokkurn liátt. Móðir Vilmens fékk sjónina aftur. Við lík- hörur sonar síns skynjaði hún samhengi hlutanna — bæði hugsjón haus og hatur. Hún lokaði sig ekki lengur inni í litla herberginu sínu, en slóst í hóp með öðrum verkalýð á hinum gráu Belleville-götum. Líf hennar varð þrungið af stórfelldum hugsjónum. Tíu- þúsundir tóku þátt í jarðarför Vilmens. Móðirin grét ekki við gröfina, liún sagði aðeins: »Þessa skal verða hefnt«. Hún gekk inn í kommún- istaflokkinn. Á nóttunni grét hún í litlu kompunni sinni — í hendinni liélt liélt hún á gamalli fölnaðri mynd — af drengnum sínum. Á daginn vann hún; liún eggjaði æsku- lýðinn og nágrannakonurnar til haráttu, liún talaði á fjölda- íundum, og smátt og smátt talaði hún svo um fyrir kon- unum í nágrenninu að þær reyndu ekki lengur að hindra börn sín í að lifa og berjast fyrir málefnum verkalýðsins. I Norður-Frakklaudi myrtu fasistarnir námuverkamanninn Fontine. Móðir Vihnens fór til að vera við jarðarförina. Ekkja Fontines var líka kring- um 50 ára gðmul. Þær gengu sarnan. Þær hafa sjálfsagt báð- ar grátið. Þær töluðu einuig töluvert saman. Ekkja Fontin-

x

Nýja konan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja konan
https://timarit.is/publication/716

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.