Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.12.1952, Side 3
es //ý.J r/sr’/Z/ 'i
BARNASAGAN
Fyrir átta til tiu árum var ]>að ekki éins
hversdagslegur viðburður og ]>að er nú
að verða, að fram kæmi á sjónarsviðið
ungur leikari. Það' vakti því talsverða at-
hygli á sínum tíma, er ung stúlka, Helga,
dóttir þjóðkunnra hjóna, Kristínar Jóns-
dóttur listmálara og Valtýs Stefánssonar
ritstjóra, bættist í leikarahópinn. Hún
hafði verið tvo vetur í leikskóla Soffíu
Guðlaugsdóttur og fékk strax vandar
söm hlutverk í þremur útvarpsleikjum
,.Landafræði og ást“ eftir Björnstjerne
Björnsson, „Þegar Ellen kom“, eftir Ejn-
ar Howalt og „Pygmalion“ eftir G. B.
Saw, og hún gerði þeim öllum slík skil,
að það var almannarómur að hér myndi
á ferðinni leikkona, sem mikils vairi af
að vænla, með auknum lærdómi og þroska.
Það urðu því mörgum sár vonbrigði, er
það fréttist nokkru síðar, að Helga Valtýs-
dóttir myndi hafa gefið leikliítina upp á
bátinn fyrir fullt og allt. —
En nú hafa þau góðu tíðindi borist okk-
ur, að frú Helga Valtýsdóttir hafi á ný
snúið sér að leiklistinni — í tómstundum
frá húsmóðurstörfunum. Síðastliðinn vet-
ur var hún í leikskóla Lárusar Pálssonar
og þar mun hún sjálfsagt verða í vetur —
og mun þess þá vonandi ekki langt að
bíða að til hennat heyrist í útvarpsleik —
og síðan á leiksviði.
Nú les frú Helga eins og allir vita, sög-
una Bangsímon í barnatíma útvarpsins, og
gerir það svo vel að unun er á að hlýða.
Höfundur sögunnar, Alan Alexander
Milne, er brezkur. Sagan heitir á frum-
málinu „Winnie the Pooh.“ og er það
nafnið á bangsanum, sem er aðal sögu-
setjan. Honum var valið nafnið „Bangsi-
mon“ á íslenzku, og er það tekið úr þjóð-
sögum Jóns Árnasonar.
Það eru nokkuð mörg ár síðan bókin
kom fyrsl út í Bretlandi, og hlaut hún
þegar miklar vin ældir. Þegar það spurð-
ist að höfundurinn hefði haft son sinn og
leikföng lians til fyrirmyndar í persónur
bókarinnar, varð svo mikill átroðningur
fólks, sem vildi fá að sjá drenginn og
leikföngin, að loks kom að því að fjöl-
skyldan sá sér ekki annað fært en flvtjast
brott. Milne hét því um leið að skrifa
ekki fleiri barnabækur, en sem betur fer
hélt hann ekki það loforð.
Frú Helga les einn kafla í hverjum
barnatíma, en kaflarnir eru alls tíu.
OTVARPSTlÐINDI 3