Prentarinn - 01.06.1934, Síða 10
8
Prentarinn
verður ritsími, talsími o. þ. h. til þess að
draga enn meir úr notkun hins prentaða máls.
15. Kreppan kemur yfirleitt síðast niður á prent-
iðnaðinum, en hann verður líka síðast fyrir
áhrifum uppgangstímanna, þegar þar að kemur.
Blaðaútgefandi nokkur svaraði þessum liðum
þannig í »Pacific Printer«:
1. Það er ekki hægt að segja neitt ákveðið um,
hvað kreppan varir lengi; það getur fljótlega
brugðist til hins betra.
2. Liðin tímabil koma aldrei aftur. Vér eigum
nú að hyggja upp með meira öryggi og vand-
virkni.
3. Sameining margra verzlunarfyrirtækja hefir í
för með sér meiri auglýsingavinnu og aukna
prentun. Dæmi: General Motor, Standard Oil
o. s. frv.
4. Það er naumast hugsanlegt, að settur verði
hemill á auglýsingaframleiðslu með lögum
gegn verzlunarhringum eða þ. h.
5. Uppgangur hinna mörgu nýju fyrirtækja vitn-
ar uin það, að auglýsingarnar hafa aukizt og
hreiðst enn meira út.
6. Framtíðar-auglýsingin þarf ekki á íburðar-
miklu skrumi að halda.
7. Útvarpið er ekki hættulegt auglýsingaprentun,
heldur færir það prentsmiðjunum aukna vinnu.
8. Útvarpið dregur ekki úr lestri bóka. Þvert á
móti hefir bókaverzlunum fjölgað.
9. Sala bóka hefir minnkað vegna kreppunnar.
Fólk hefir |»ó áreiðanlega meiri áhuga fyrir
bókum en áður, en vantar peninga til bóka-
kaupa.
10. Myndaútvarp mun á engan hátt skaða prent-
iðnaðinn.
11 Minnkandi notkun stórra verzlunarfyrirtækja
á umslögum og bréfhausuin hefir mjög lítið
að segja.
12. Fjölritunarvélar og þess konar áliöld geta að-
eins komið til greina, þegar um ódýra fram*
leiðslu er að ræða. Vönduð verk verða ætíð
eingöngu unnin í prentsmiðjum.
13. Nýjar prentunaraðferðir munu að ölluni lík-
indmn rísa upp í framtíðinni, en hversu ódýr-
ar þær verða, er annuð mál.
14. Prentiðnaðurinn hefir ekki hingað til beðið
neitt tjón af völdum síma o. þ. h., og mun
heldur ekki gera í framtíðinni. Utvarpið hefir
t. d. aukið eintakafjölda prentaðs máls.
15. Prentiðnaðarfyrirtækin verða uppgangstímans
strax aðnjótandi. Þegar batnar í ári, þá bíður
áreiðanlega enginn í marga mánuði með það
að auglýsa. Prentiðnaðurinn mun framvegis
eins og hingað til notfæra sér framfarirnar.
Litaprentun og aðrar prentaðferðir verða tekn-
ar í notkun, sem gera iðnina ennþá verð-
mætari.
Eins og sjá má, eru hér settar fram tvær gagn-
stæðar skoðanir. En það mun ekki fjarri sanni hjá
»Pacific Printer«, að það verði bjartsýnin, en ekki
bölsýnin, sem sigrast á kreppunni.
LÁNASJÓÐUR. Á síðasta aðalfundi H. L P.
báru tveir félagar, þeir Guðm. H. Pétursson og
Þórliallur Bjarnarson, fram eftirfarandi tillögur um
lánasjóð:
a. Leggjum til, að lánsupphæðir sjóðsins til livers
einstaklings hækki upp í kr. 500,00 með sömu
tryggingum og verið hafa.
b. Að uppbæðir allt að kr. 1000,00 með sömu
tryggingum og að auki ábyrgðum tveggja fé-
laga, er heimila vikulegan frádrátt af kaupi
sínu til sjóðsins, ef lántakandi stendur ekki í
skilum.
c. Til að lullnægja eftirspurn eftir lánum sam-
kvæmt þessuni tillögum, heimilist lánasjóði að
taka lán eftir þörfum, allt að kr. 10 000,00,
úr öðrum sjóðum félagsins, sem eru á spari-
sjóðsvöxtum.
Við almenna skriflega atkvæðagreiðslu í H. í. P.
voru tillögur þessar samþvkktar með 64 atkv.
gegn 31.
SENDINGIN TIL AUSTURRÍSKU FÉLAG-
ANNA. Nokkru fyrir síðasta aðalfund barst H. í.
P. bréf frá skrifstofu Alþjóðasambands prentara,
|iar sem farið var fram á styrk nokkurn til nauð-
staddra austurrískra félaga.
Bréf þetta var Iesið upp á aðalfundi H. í, P., og
var þar samþykkt, að veita sem svaraði 500 ís-
lenzkra króna í þessu skyni, og var fé þetta sent
út í ávísun, 350 svissneskir frankar nettó, ásamt
útfylltri ársskýrslu til Alþjóðasambandsins
Nú liefir stjórn félagsins borist kvittun frá skrif-
stofu Alþjóðasambandsins fyrir fjárbæð þessari,
ásamt bréfi, þar sem svo var komizt að orði um
sendinguna:
»Heiðruðu félagar! Vér þökkum yður hjartan-
lega fyrir sendingar yðar, einkum fvrir hina ágætu
gjöf til handa austurrísku félögunum, sem og fyrir
hið útfyllta spurningaskjal.«
Ritstjóri: Þorsteiim Halldórsson.
Prcntsmiðjan Dögun.