Prentarinn - 01.04.1937, Qupperneq 1
PIRENTAMNN
BLAÐ HINS ÍSLENZKA PRENTARAFÉLAGS
XVI. ÁR REYKJAVÍK, APRÍL 1937 10. BLAÐ
FJÖRUTÍU ÁRA AFMÆLIHINS ÍSLENZKA PRENTARAFÉLAGS
Þá eru þau liðin lijá þessi nierku tíma-
mót i sögu félags vors.
Það má ef til vill segja, að óþarfi sé að
skril'a nú nokkuð um þetta afmæli og at-
burði þá, sem gerðust i sambandi við það,
en ekki ætti að saka, sérstaklega vegna
seinni tíma, að scgja frá því helzta, er á
daga HÍP dreif um þessar mundir, Jió að
flestum muni það i fersku minni.
Um það virðast allir sammála, að afmæl-
isundirbúningurinn og hátiðin sjálf hafi
verið féiaginu til hins mesta sóma. Um þetta
vottar ekki einungis það, sem prentararnir
sjálfir hafa sagt, heldur miklu fremur hitt,
að menn utan stéttarinnar létu sér mjög
tíðrætt um starf félagsins, hátiðina og af-
mælisblaðið, og allir á þann veg, að Hið is-
lenzka prentarafélag má vel við una og
vera þakklátt fyrir þá vinsemd og þann
skiining, sem þvi og einstaklingum þess og
stéttinni i heild var sýnd á þessum tíma-
mótum.
Hátiðin hófst laugardaginn 3. april, kl.
lx/i, að Hótel Borg. Þar voru þéttskipuð
borð í báðum sölum og í þeim hópi rúm-
lega 40 heiðursgestir.
Guðmundur Halldórsson, formaður undir-
búningsnefndarinnar, setti hófið með nokkr-
um orðum, og borðuðu veizlugestir að þvi
loknu Potage au homard (humarsúpu). Þá
hélt formaður, Magnús H. Jónsson, ræðu
fyrir minni félagsins og heiðursfélaganna,
og ritari afhenti þeim vandað heiðursfé-
lagaskírteini, en einn þeirra, Jón Árnason,
þakkaði með nokkrum velsögðum orðum.
Því næst söng prentarakórinn, undir stjórn
Péturs Lárussonar, sex lög, við ágætar mót-
tökur. Þá réðust menn og konur á Róti de
boeuf. Legumes variés (nautasteik með
jarðeplum og kálmeti). Næst talaði Jón H.
Guðmundsson fyrir minni prentlistarinnar
og á eftir var sungið Prentlist, þú gyðjan
góða. Friðfinnur Guðjónsson las upp gamalt
kvæði um prentara, með skemmtilegum
skýringum. Stefán Björnsson og Gunnar
Sigurmundsson sungu tvísöng. Þá var bor-
inn á borð (ilace au fraises (jarðarberjaís).
Óskar Guðnason hélt ræðu fyrir minni
kvenna og síðan var sungið Fósturlandsins
Freyja. Svo kom kaffi og frjáls ræðuhöld.
Þessir gestir tóku til máls og fluttu kveðjur:
Haraldur Guðmundsson atvinnumálaráð-
herra, Pétur Halldórssori borgarstjóri, Guð-
mundur Finnbogason forséti Bókmenntafé-
lagsins, Gunnar Einarsson formaður Félags
islenzkra prentsmiðjueigenda, Steingrimur
Guðinundss'on forstjóri Ríkisprentsmiðjunn-
ar Gutenberg og Jón Baldvinsson forseti
sameinaðs Alþingis og Alþýðusambands ís-
lands. — Siðan var danzað til klukkan
fimfn um morguninn. Og meðal annars voru
spiluð ný lög undir danzinum eftir Oliver
Guðmundsson, vélsetjara i ísafoldarprent-
smiðju.
Félaginu barst íjöldi heillaóskaskeyta
frá einstaklingum og félögum.
Það er alveg víst, að Hinu islenzka prent-
arafélagi er ómetanlegt, hve vel afmæli þess
tókst og ekki siður öll þau ágætu ummæli,
sem það fékk opinberlega — þau eru lögð
inn i sparisjóðsbók félagsins í banka al-
menningsálitsins i landinu, og þar getur
verð gott að eiga inni i framtiðinni.