Prentarinn


Prentarinn - 01.09.1953, Síða 2

Prentarinn - 01.09.1953, Síða 2
mikið böl og margháttað, og ekki er víst, að jafnan sé til nægur stríðsótti með atvinnu handa atvinnu- leysingjum, eins og nú er — því rniður í aðra röndina. Hitt er betra, að gera ráðstafanir, sem duga, til að halda atvinnu stöðugri, sem takast má, ef farið er að öllu með „gætni og stillingu“. At- vinnurekendur þurfa á sína hlið að hafa gát á að láta ekki góðæri og gróðahug tæla sig til of mikillar framleiðslu, svo að þá hendi ekki að festa fé, sem þeim áskotnast, þegar vel gengur, en þurfa á að halda, en vantar þá, þegar illa gengur. Verka- fólk verður líka að hafa gát á fjáraflahug sínum, sitja ekki um of um að „fá aukavinnu", því að betri er stöðug atvinna en mikil aukavinna með eftirfarandi atvinnuleysi, ekki að gleyma því, að fljóttekið fé verður oftlega laust í hendi. A þessu sviði er mest hætta á mistökum, og af slíkum mis- tökum stafar það atvinnuleysi, sem hrjáð hefir prentarastéttina síðustu tvö árin. Annað atriði, sem mjög er hætt við að leiði til mistaka og síðan til atvinnuleysis, er léttúð eða gá- leysi um verðútreikning. Það getur verið töluverð freisting að bjóða lækkun á verði prentgripa á erfiðum tímum í því skyni að örva eftirspurn, en það er hættulegt og hefnir sín, því að það eitrar út frá sér. Þann leik var mjög títt að leika kring um aldamótin, og aldrei hefir atvinna prentara verið lélegri en þá. Með samtökum prentara og síðar prentsmiðjueigenda tókst, sem betur fór, að stöðva þann leik. Verðlækkun á engan rétt á sér, nema svo standi á, að verð hafi hækkað óeðlilega vegna óeðlilegrar eftirspurnar, en slíkt hefir ekki átt sér stað um verð prentgripa og getur varla átt sér stað. Til þess eru þeir ekki nógu mikil nauðsynjavara. Hins vegar er ekki heldur neitt til, sem réttlæti það, að þeir séu svo ódýrir, að atvinnuvegurinn bíði tjón við. Ymislegt virðist benda til þess, að verð á prentun sé þegar fyrir nokkru orðið hættu- lega lágt, svo að prentsmiðjur verði að neita sér um tilkostnað um vinnubrögð, útbúnað, hýbýlabúnað og aðbúnað við verkafólk, nauðsynlegan til þess að halda til jafns við það, sem tíðkanlegt er í öðrum menningarlöndum, en liggi ella flatar, ef eitthvað bjátar á, svo sem ef til muna dregur úr eftirspurn. Það er lítið vit í því, að verð á prentun sé ekki nema svo sem sexfalt hærra nú en fyrir um það bil áratug, þegar flestallt, sem prentsmiðjur og prentarar þurfa að kaupa, er nú nálægt því tífalt dýrara en þá var. Að nokkru leyti stafar þetta af því, að verði á prentun hefir til skamms tíma verið haldið niðri að opinberri tilhlutun, en að öðrum kosti mætti segja, að verð á prentun ætti ekki að lækka, utan nauðsyn bæri til, fremur en á öðrum verðmætum. A því er samt allt af talsverð hætta, því að svo mörg smáatriði koma til greina við myndun verðs á prent- gripum, að gæta þarf vel að, til þess að ekkert þeirra falli niður meðal annars fyrir tilhneigingu til að afla viðskipta með því að selja ódýrt. Það er víst fár atvinnuvegur, sem auðveldara sé að tapa á en prentiðn. Því þarf líka að hafa nákvæma að- gæzlu á öllu, sem við kemur verði á prentgripum. Auðvitað er þó ekki nóg að gæta þess eins, að þeir verði ekki of ódýrir. Líka þarf að gæta hins, að þeir verði ekki of dýrir. I því skyni verður að hafa góða gát á, að hvorki vörum né vinnu sé eytt til ónýtis. Tap í atvinnurekstri er oft ekki annað cn greiðslur á vörum, sem hafa ekki komið að notum, og vinnu, sem hefir ekki komið að gagni. Því þarf að gæta sparsemi á öllum sviðum, ef vel á að fara, og þó í hófi. Þetta er ekki svo að skilja, að það séu atvinnu- rekendur einir, sem þurfa að spara og hafa gát á öllu. Verkamenn þurfa líka að hafa gát á öllu og spara hvað eina og ekki sízt þá dýrustu eign, sem þeir eiga, starfsorku sína. Engin verðmæti eru dýrmætari en starfsorka manns. Með því að fara eyðslusamlega með hana geta verkamenn líka spillt atvinnu sinni. Þeir þurfa ekki að eins að gæta þess, að ekkert handtak fari til ónýtis, heldur líka hins, að flaustra engu af. Það skaðar ekki, heldur batar, því að það má drýgja atvinnuna. Það er, hvort eð er, hlaupinn of mikill hraði ! þjóðlífið og þar með líka í prentlistina, sem sjá má næg merki til í hræðilegri óvandvirkni. Undirstaða verðmyndunar er sá tími, sem verk tekur, og ef hann verður of stuttur, fellur verkið í verði á aðra hliðina, en á hina minnkar atvinnan. Verkamaður á að vita, hvers virði vinna hans er og hvers virði hún á að vera eða þarf að vera, til þess að atvinna hans haldist við, en það þýðir lí'ka, að hann á að vita, hversu langan tíma hvert verk þarf að taka, ef það á að vera vel unnið. Með því að áætla hann of stuttan getur hann leiðzt til hroðvirkni, en ekkert er jafn- hættulegt atvinnugrein sem óvönduð vinna. Hroðvirkni er ískyggilegast af öllum mistökum, sem atvinnuleysi geta valdið. Ef menn fara að taka ljósprent og jafnvel lélega fjölritun fram yfir „gott og hreint guðsorðaprcnt", hina forngöfgu prentlist Gutenbergs, eða útlenda prentgripi fram yfir inn- lenda vegna útlitsins, frágangsins, eins saman, þá vofir yfir íslenzkri prentarastétt meira atvinnuleysi en svo, að nokkrir atvinnuleysisstyrktarsjóðir dugi 18 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.