Ísfirðingur - 11.01.1942, Qupperneq 1

Ísfirðingur - 11.01.1942, Qupperneq 1
KOSNINGABLAÐ C-l£sfans Útg.: Allsherjarflokkur óháðra ísfirðinga. Ritstjóri og ábyrgðarm.: G. Indriðason. 1. tbl. ísafjörður, 11. janúar 1942. I. árg. Ávarp til ísfirzkra kjósenda. lJað er kunnara en frá þuríi að segjn, að síðustu árin hefur hinn svokallaði Alþýðuflokkur haft meirihlutavald í bæjar- málum ísafjarðar. Sjálfstæðisflokkurinn (óheppi- legt nafn) hefur á sama tíma bagsað í bágindum sínum einn í andstöðu, en orðið linari við hverja raun, enda forkólfarnir á fallandi fæti, og fráhveríir því, að skynja lífskröfur sam- tíðarinnar. I skjóli alþýðusamtakanna, hafa ráðamenn Alþýðufl. hér aftur á móti eflt sig með yfir- ráðum á atvinnufyrirtækjum og verzlun, og notið lil þess stuðnings meiri hluta ríkis- stjórnar, sem þeir seldu sig. Á þennan hátt hefur þessum herrum skapast aðstaða til þess að ráða yfir afkomu og atvinnu manna, og óspart notað hung- ursvipuna sem grýlu á almenn- ing, ef lionum skyldi detta í ihug að gagnrýna gjörðir meiri- hlutans, og kvarta yfir því, að kosningaloforðin væru illa efnd. En límarnir hafa breyzt. At- vinnumöguleikar hafa aukizt, — vinnan er ekki í bili náðar- brauð úr hendi forráðamanna bæjarfélagsins, og menn fara að líta um öxl yfir gengna ævi- braut. Hvernig er þá viðhorfs? Framkvæmdirnar litlar, sam- anborið við öll loforðin, og flest gert með áberandi klaufa- skap og fyrirhyggjuleysi. Skuldir bæjarins rómað um- ræðuefni um allt landið — en skattar og g,jöld á fátækum al- menningi síhækkandi, og svo komið, að bæjarstjórnin — eft- ir líkum að dæma — sér sig nauðbeygða til þess, að selja arðvænlegasta atvinnufyrirtæk- ið úr bænum, Iangt undir sann- virði, til þess að geta slett ein- hverju upp í afborganir ogvexti af skuldum, sem eru að sliga bæjarkassann — þvílíkt happa- og heillaráð!! En þegar þarna er komið sögunni, fara bæjarbúar að hópa sig saman og spyrja hvern annan, hvort ekki sé nú komið nóg af svo góðu. Menn úr öllum pólitískum flokkum og utan flokka, með ólíkustu lífsskoðanir, verða á- sáttir um, að leggja slík deilu- mál á hilluna og gerast sam- herjar í því, að koma hag og vellerð þessa bæjarfélags í betra horf — losa sig undan svipu ílokkslegra skoðanakúgunar, og setja þann svip á rekstur bæj- arfélagins að íbúarnir, sem ef lil vill renna allt sitt lífsskeiö innan marka þessa bæjar, finni þess þó einhver merki, að þeir lifí í lýðfrjálsu Iandi. Þelta er í stórum dráttum grundvöllurinn fyrir því, að listi Allsherjarflokks óháðra Isfirðinga er nú kominn fram, og áframhald af því er útgáfa þessa blaðs, sem nú heilsar velunnurum þessa bæjar með beztu óskum um farsæl kom- andi ár. Góðir lesendur! Eg veit að mörg ykkar spyi'ja, hvað við hugsum okkur að geta gert, ef í höndfarandi bæjar- stjórnarkosningar veili okkur aðstöðu til þess, að hafa áhrif á bæjarmál ísafjarðar. Með til- vísun til framanritaðs er svar okkar þetta. 1, Gera ítrustu ráðstafanir til þess að lækka skuldasúpu bæjarins, með því að gera bæj- arreksturinn einfaldari og um- svifaminni, og lækka þannig reksturskostnað hans, svo og þeirra fyrirtækja, mcð sérstöku reikningshaldi, sem bærinn ber áhyrgð á. Kappkosta að útvega bænum hagkvæmari lán, og losna þannig við óþarilega mikla vaxtabyrði af núverandi lánum. 2. Stuðla í hvívetna að aukn- um atvinnuframkvæmduin til lands og sjávar og veita hverj- um einstökum þá aðstöðu og hlunnindi frá bæjarfélagsins hálfu, sem það — sér að skað- lausu — getur látið í té. 3. Vinna af alefli að því, að gera ísafjörð að verzlunarlegri miðstöð Vestljarða, með því að koma samgöngunum í fastara I form, skipuleggja reglubundnar ferðir á nærliggjandi hafnir, auk þess að hafa daglegar sam- göngur um Djúpið, til þess að auka og endurbæta landafurða- söluna og bæta þannig úr til- finnanlegri vöntun bæjarbúa á mjólkurafurðum og öðru því, er landbúnaðurinn hefur að bjóða. 1. Auka og endurbæta hafn- armannvirki bæjarins og koma þar upp verðmætum lóðum, sem aftur leiða af sér bætta aðstöðu til aukinna bygginga og íjölbreyttari atvinnureksturs, heldur en nú er, auk þess seni slíkt hlyti að bæta til muna aðstöðu landróðrarbáta með beitinga- og upplagspláss, hvað nú er aðkallandi nauðsyn. 5. Skilyrðislaust að finna ein- hverja leið til þess að lirinda í framkvæmd nýbyggingum í- búðarhúsa, svo og endurbólum á þeim íbúðum, sem nú verða að teljast með öllu ónothæfar, og minka þannig sárustu hús- næðisvandræðin í bili. 6. Að vinna að framanskráðu í samráði við stétta- og fag- félög bæjarins, svo að sem víð-

x

Ísfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/744

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.