Ísfirðingur - 11.01.1942, Blaðsíða 4

Ísfirðingur - 11.01.1942, Blaðsíða 4
4 KOSNINGABLAÐ C-LISTANS að staðfesta of átakanlega, á liverju nasistar hafa flotið hezt, enda er hljótt um sosialdemo- kratiskar dáðir, í fregnum síð- síðustu tíma, af baráttunni gegn nasismanum. En Hristingsnafnbótina þökk- um við, og vonum, að reynast hennar veröugir, með því að lirista af bæjarmönnum þær politísku i>einakerlingar, sem hér hafa hlaðist upp síðustu árin. Góðir alþýðuforingjar. Þegar sala Skutuls var til umræðu á bæjarstjórnaríundi 17. nóv. s. 1. vildu Alþýðu- flokksforingjarnir afdráttarlaust knýja sölu í gegn. Skyldi tog- arinn seljast ásamt öllu fylgifé til Guðm. I. Guðmundssonar hæztaréttarmálfl.manns (félaga Stefáns Jóhanns ráðherra) fyrir eina miljón króna. — Guðm. Hagalín barði í borðið og heimt- aði að ákvörðun yrði tekin á þessum fundi, Sjálfstæðismenn og Grímur Kristgeirsson vildu fresta ákvörðun til næsta dags og báru Sjálfst.menn fram til- lögu þess efnis. Guðm. Hagalín sá sinn málstað kominn í óefni og féll frá fyrri kröfu með því að greiða atkvæði með tillögu Sjálfstæðismanna ásamt Grími. Hjá sátu við atkvæðagreiðsluna Hannihal Valdimarsson, Helgi Hannesson og Halldór Ólafsson. Það þýðir: Þeir voru á móti frestun til næsta dags. Hvað þýðir ]>að? Þeir vildu heldur selja Skutul með öllu fylgifé, rúmlega tvö hundruð þúsund krónum lægra en raun varð á. Það þýðir aftur: Þeir vildu að bæjarsjóður, hafnarsjóður og lóðasjóður fengju til samans um eitt hundrað þúsund krónum minna, en þeir fengu með söl- unni daginn eftir. Um þessa menn segir Finnur Jónsson: » , . Hannibal Valdemarsson er einn hinn þrautreyndasti og harðasti haráttumaður alþýð- unnar á ísafirði . . . sakir . . . mikillar þekkingar á baráttu- málum alþýðunnar við sjóinn él' Ilannibal Valdemarsson Al- þýðuflokknum á ísafirði ómiss- andi fulltrúi.« » . . . Helgi Hannesson ér gæddur bæði óvenju góðum gáf- um og miklum dugnaði . : . Enginn, sem til þekkir, mun efast um, að málefni alþýðunn- ar í bænum séu í góðum hönd- um meðan Helgi Hannesson er bæjarfulltrúi . . .« Mennirnir, sem með því að sitja hjá við hina þýðingarmiklu atkvæðagreiðslu, stofna til þess, að sjóðir bæjarins beri úr bít- eilt hundrað þúsund krónum minna, en þeir svo fengu. Þessir menn eru ómissandi sem baráttumenn alþýðunnar í bæjarstjórninni, að dómi Finns Jónssonar. Hvað segið þið kjósendur? Z. Alþýðuflokkurinn og atkvæðasmölunin. Á föstudagskvöldið efndi á- hugalið kratanna til skemtun- ar í Alþýðuhúsinu og bauð kjósendum sínum frían aðgang meðan húsrúm leyfði. Ekki hefur heyrst að hús- rúm hafi vantað tilfinnanlega, og má þó telja víst að þar hafi fleiri komið, en tryggir kjós- endur Alþýðuflokksins. Hitt virðist kindug kosningaglaðn- ing, að telja það til skemmt- unar, að hlusta á Finn Jóns- son og Guðm. Hagalín verja sín pólitísku axarsköft og sinna flokksbræðra, og mun flestum finnast ekki bein ástæða til þess að borga mikið fyrir það. Þriðja númerið var Hrói Höttur. Líklega hefur Hróa Hött al- drei dreymt um það, að hann yrði gerður að einu aðal lukku- númeri í kosningabaráttu krat- anna á ísafirði, enda þóttust sumir áhorfendanna verða þess varir, að hann væri heldur undirleitur út af þessari vafa- sömu heiðrun. Hróí Höttur er vitanlega gamalt og gott æfintýri. — En æfintýri kratanna er nokkuð á annan veg. Ilrói Höttur tók af þeim ríku til þess að hjálpa hinum fá- tæku, en krataforingjarnir nota hina fátæku til þess, að skapa sér valdaaðstööu til sjálfsauðg- unar, og fór þessi ábending fram hjá fáum nærstöddum. Þakklálur boðsgeslur. Fréttir úr Reykjavík. Frá verkfalli prentara, bók- bindara, skipasmiða og járn- iðnaðarmanna eru þær fréttir, að þjóðstjórnin fræga gaf í fyrra dag út bráðabirgðalög, sem banna verkföll og lögleiða gerðardóm í vinnudeilum, — lagleg nýársgjöf handa hinum vinnandi stéttum. Prentarar, skipasmiðir og járniðnaðarmenn hafa svarað þessu með því, að mæta ekki til vinnu og er óvíst hvernig þessari deilu lýkur. Félagsmála- ráðherra. Stefán Jóhann Stef- ánsson, kvað hafa verið látinn segja af sér ráðherratigninni, og á nú að verða einu sinni enn sprellikarl til þess að villa alþýðunni sýn í sambræðslu kratanna við Sjálfstæðið og Framsókn. Hinsvegar hefir blaðið ekki fengið ennþá nægilegar heim- ildir til þess að geta skýrt ítar- lega lrá þessu máli, en mun strax og frekari upplýsingar ligg,ja fyrir hendi gefa lesend- um sínum kost á að fylgjast vel með þessu ámælisverða athæfi þjóðstjórnarinnar. Er nú orðið skammt stórra högga á milli gagnvart lýðræðinu. — Menn minnast þess ef til vill, að þessi sama þjóðstjórn kaus sjálfa sig til þess að fara með völd um óákveðinn tíma. Húsmæður! í eggjavandræðunum skuluð þér biðja um þurkaðar eggjarauður, þar sem þér verzlið. Talsverðar birgðir fyi irliggj- andi. G. Indriðnson, umboðs og heild-ve zlun. Prentstofan Isrún

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/744

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.