Ísland - 30.04.1927, Síða 2

Ísland - 30.04.1927, Síða 2
í S L A N D 2 Sjálfstæðis- málin. Þegar sambandslagasamning- nrinn var gerður við Dani 1918, hætti meiri hluti kjósenda að skipa sér í flokka eftir við- horfinu tiJ sjálfstæðismálanna. — Stéttakrytur, héraðarígur og smámunaleg hagsmunamál hafa síðan ráðið miklu um stefnur og störf stjórnmálaflokkanna. I. Með sambandslagasamningn- um var ísland viðurkent frjálsf og fullválda ríki, en í honum eru ýmsar liráðabirgða- takmarkanir á yfirráðarétti bjóðarinnar yfir málum henn- ar. Þessar takmarkanir standa þar til samningurinn fell- ur úr gildi. Til þess að af- nema samninginn, þurfa % þingmanna í sameinuðu þingi að samþykkja ályktun, er fer í þá átt. — En það dugar ekki til. — Þessa ályktun þings- ins verður að leggja undir at- kvæði allra kosningabærra manna í landinu. Ef % — 75 af hverju hundraði — ltjósenda í landinu taka þátt í atkvæða- greiðslunni, og % — 75 af hverju hundraði — þeirra, er taka þátt í atkvæðagreiðslunni, samþykkja ályktunina, þá er sambandslagasamningurinn fall- inn úr gildi. Samningurinn mælir svo fyr- ir, að Danir fari með utanrík- isrnál íslands í umboði þess til 1943. — Nú er það alkunnugt, að utanríkismálin eru vanda- tf sömustu mál hveri-ar þjóðar. Þau taka til allra viðskifta ríkis við önnur ríki, og þau gripa beint eða óbeint inn í alt líf þjóðarinnar. Ef íslendingar eiga að taka þess mál í sínar hendur 1943, — en það telja frjálslyndir mcijn algerlega sjálfsagt, — þá veitir sannar- lega ekkj af því, að þjóðin fari að búa sig undir það. En hvortveggja þetta, að svona mikill hluti þjóðarinnar verður að greiða atkvæði með sambandsslitum og að þjóðin þarf að búa sig vel undir það, að taka við meðferð utanrík- ismálanna, gerir það að verk- um, að þegar í stað verður að hefjast handa — 10 ár eru stuttur tíini í lífi þjóðarinar. Þjóðin verður að gera sér ljóst, hvert leiðirnar liggja. Hún verður að krefjast þess af öllum frambjóðendum við næstu kosningar, að þeir lýsi yfir, hver afstaða þeirra sé til þessara inála. Þeir einir mega komast á þing, sem taka hreina afstöðu og vilja þegar í stað hefjast handa. — Hálfvelgjan veikir trú þjóðarinnar á sjálfa sig og sigurinn. II. En hvers vegna eiga íslend- ingar að nota uppsagnarákvæð- ið 1943. 1 6. gr. sambandslaganna seg- ir, að danskir ríkisborgarar njóti að öllu leyti sama rétlar hér landi sem íslenskir ríkisborg- ar, að danskir ríkisborgarar — hvar sem þeir eru búseltir — hafi saina rétt til fiskiveiða í íslenskri landhelgi sem íslensk- ir ríkisborgarar, að dönsk skip njóti sama rétlar á íslandi sem íslensk skip. Danir, Færeyingar og Eski- móar geta þvi þyrpst inn í land- ið og rekið hér hverja þá at- vinu, sein íslendingum er heim- ilt að reka. Þeir geta gerst hér bændur og búaliðar, verslunar- mcnn og kaupmenn, sjómenn og verkamenn o. s. frv. Þeir hafa kosningarrétt til Alþingis með sömu skilyrðum og ís- lendingar. Þeir geta sent skip sín hingað og látið þau fiska í íslenskri landhelgi, rekið stór- útgerð og lagt aflann hér upp og látið verka hann. Og skip sín mega þeir skrásetja hér og láta þau sigla undii* íslenskum fána„ ef þeir fullnægja þeim skilyrðum, sem íslendingar verða sjálfir að l’ullnægja. Á meöan sambandslögin eru í gildi, er fsland ekki fgrir ts- lendinga eina, heldur einnig fgrir Færeginga, Dani og Eski- móa. Að vísu hafa þessar þjóðir lítið notað þennan rétt, enn sem komið er, og ýmsir trúa því, að svo muni einnig verða í framtíðinni. — En framtíð heillar þjóðar má ekki byggj- ast á trú. Hún verður að byggjast á haldbetri grundvelli. Margt bendir til þess, að Danir séu farnir að yfirvega, hvernig þeir geti hagnýtt sér þann rétt, sem þeim er trygð- ur ineð sambandslögunum. Fólksfjöldinn er orðinn svo mikill í Danmörku, að menn neyðast til þess að flytja úr landi og setjast að í öðrum löndum. Og mikill áhugi er vaknaður l'yrir því í Dan- mörku, að útflytjendurnir fari ekki til framandi landa, lieldur til dönsku nýlendnanna og til íslands. — Þeir, sem be rjast fyrir þessari nýju stefnu, eru aðallega ungir mentamenn. I málgangi sínu hafa þeir með- al annars kolnist þannig að orði: „ísland, Færeyjar og Grænland — enginn angurblíðu fornaldarblær iná kasta rýrð á þessi nöfn í meðvitund okkar, þau verða að iákna danska framtið, framtíð Danmerlcur hinnar meiri“. Ýmsir merkismenn, danskir, hafa tckið undir þessi ummæli í dönskum blöðum, og ganga jafnvel öllu lengra en gert er í hinum tilfærðu orðum. Þeir . _ ■ i virðast ogr vera farnir að hugsa nokkuð mikið um auðs- uppsprettur íslands, bæði til lands og sjávar. Þeir ræða mik- ið um að stofna félög til þess að veiða hvali í Norðurhöfum, og þeir eru nú að síofna út- gerðarfélag, sein ráðgerir að kaupa 10—15 togara og senda þá hingað til Islands. —. Auð- vitað koma danskir verkamenn hingað til þess að skipa fiskin7 um upp úr þessum togurum og verka hann hér. — Trú þeirra er mikil, sem trúa því, að ekkert sé að ótt- ast, að oss geti engin hætta stafað af þessum fyrnefndu á- kvæðum sambandslaganna. — Sumir þingmenn vorir hafa sjálfsagt þessa miklu trú, því að þeir telja það merki um karlinensku — og sjálfsagt ætt- jarðarást — að lýsa yfir því, að þeim detti ekki í liug að vera hræddir við útlendinga. 7. gr. sambandslaganna ræð- ir um utanríkismálin. Með þeirri grein hefir Dönum verið gefið umboð til þess að fara með utanríkismál íslands til 1943. — Þó er umboð þetta takmarkað að ýmsu leyíi. Það er óeðlilegt og óheppi- Jegt að láta Dani fara með þessi mál, því að þótt þá slcorti ekki viljann á því að leysa þau vel af hendi, þá skortir þá þekk- inguna á því, hvað þjóð vorri hentar best. — íslendingar hafa auðvitað meiri þekkingu á þeim málum heldur en Danir. Auk þess, sem hagsmunir Dana og íslendinga geta hæglega rekist á. Það er og víst, að erlendar þjóðir komast aldrei í fullan skilning um það, að ísland sé sjálfstætt ríki á meðan Danir fara með utanríkismál þess. „Sjálfs er höndin hollust“. — íslendingár verða að taka þessi mál í sínar hendur, jafnskjótt og það er unt. III. Vér gerum ráð fyrir því, að flestir muni vera á einu máli um það, að sambandið, sem nú er á milli íslands og Danmerlc- ur sé óhæft til frambúðar. En hinu má einnig gera ráð fyrir, að sumir horfi í lcostnaðinn, sem það mundi hafi í för með sér fyrir þjóð vora, ef upp- sagnarákvæðið yrði notað. En ef ÖIIu er haganlega fyrir lcom- ið, þá þyrfti kostnaðurinn ekki að verða þjóðinni ofvaxinn á nokkurn hátt. Niðurlagsorð. Þetta er svo mikið mál, að það er ekki unt að kryfja það til mergjar i stuttri blaðagrein. Margt fleira mætti telja, er ger- ir það Ijóst, að það er alger- lega sjálfsagt að nota uppsagn- arákvæðið 1943. En þau atriði, sem talin hafa verið hér á und- an, eru nægileg til þess að sýna það, að þótt sambandslögin hafi veitt þjóð vorri mörg og margvísleg réttindi, þá eru gall- ar þeirra svo miklir, að það er ekkert vit í að láta þau vera Iengur í gildi en til 1943. Þjóðin má ekki vera of værukær. Stéttakrytur og hér- aðarigur má ekki skyggja á helgasta mál þjóðarinnar. Hún verður að slíta af sér herfjöt- urinn, sem blindir flokksfor- ingjar hafa smeygt á hana. 1918 og 1943 eiga að verða merkústu árin í sögu þjóðar vorrar. Landsbankinn. Samþykt var við þriðju umr. Landsbankalaganna, tillaga frá fjármálaráðherra um að ríkis- sjóður bæri ekki ábyrgð á Landsbankanum neð öðru en því, sem hann hefði lagt bank- anum til. Allmiklar umræður urðu um lillöguna, en samþ. var hún með 8 atkv gegn G. Finski skáldsnillingurinn, Zacharias Topelius, er fæddur 14. janúar 1818. Ilann varð doktor 1847 og pró- fessor i Helsingfors 1853 til 1878. Hann fékst við blaða- mensku í mörg ár, en auk þess skrifaði hann feiknin öll af sögum, ritgerðum um sagnfræði og kvæðum. Hann var einlæg- ur ættjarðarvinur, og kemur það glegst í 1 jós í hinum al- vöruþrungnu orðum hans lil finskra mæðra. Hann skorar á þær að kenna hörnunum að elska tunguna og ættjörðina, jafnskjótt og þau vakna til meðvitundar um lífið. í skáldskapnum fylgdi hann rómantísku stefnunni og lagði mikla áherslu á það leyndar- dómsfulla. — En ættjarðarást- in, réttlætisþráin og virðingin fyrir sannleikanum var þó að- aluppistaðan í skáldskap hans. Af sögum hans hafa „Bók Náttúrunnar" og „Sögur Her- Iæknisins“ verið þýddar á ís- lensku. Hafa þær báðar fengið svo mikla lýðhylli hér á landi, að óhætt er að segja, að flestir íslendingar muni hafa lesið þær. Z. Topelins andaðist 12. márs 1898. — Nú hefir verið efnt til almennra samskota í Sví- þjóð og Finnlandi, til þess að reisa honuin ininnisvarða í höf- uðborg Finnlands, Helsingfors, (finska heitið á henni er Helsinki). Hættuleg tiílaga. Tveir þingmcnn úr framsókn báru fram tillögur í 4 liðum um bannmálið, 2. þingm. Sunn- inýlinga og þingm. Dalamanna. Samkvæmt 2. lið tillögunnar, skyldi hefja að nýju sainninga við Spánverja. Vér njótum nú bestu kjara að því er toll á saltfiskinum snertir. Þetta þýðir margra milj. hag á ári fyrir ísland. Er. því óverjandi að fara nú að hreyfa þessu máli, og mætli vera að það gæti orðið oss að stórtjóni. FulltrÚEp’ þjóðarinnar verða að skilja, að ekki má hafa ut- anríkismál þjóðarinnar að leik- soppi. — Einu sinni var þingm. fyrir Dalamenn sem skildi þetta. 1 Þyngri búsyfjar væri elcki hægt að gera landbúnaðinum en ef þessu máli væri stofn- að í slík vandræði, að yl’irfæra þyrfti nokkuð af sköttum þeim, sem hvíla sj ávarútveginui* á Iandbúnaðinn. Bækur og tímarit. „Dæmalaus kirkja“ heitir ritl- ingur einn, nýútkominn, eftir Sigmund Sveinsson, uinsjónar- mann við Barnaskólann hér í Reykjavík. Höí. ritlingsins ræðst gegn þeim, sem ráðist hafa á kenningar gömlu guð- fræðinnar. Biskupinn, guðfræði- kennarar Háskólans og ýmsir fleiri verða aðallega fyrir barð- inu á honum. Mars- til apríl-hefti Freys er nú komið út og er fjölbreytt að vanda. Fyrsta greinin er eft- ir Sigurð Sigurðsson, búnaðar- málastjóra, og fjallar um jarð- yrkjutilraunir. í niðurlagi grein- arinnar kemst hann þannig að orði: „Nákvæm tilraunastarf- semi er undirstaða allrar jarð- yrkju og búnaðarframfara. Það má því eigi undir höfúð Ieggj- ast að stofna til slíkrar starf- semi, og vér vonum að s'tjórn og þing hafi fullkominn skiln- ing á þýðingu þessa máls“. Pálmi Einarson, ráðunautur, skrifar fréttir frá Búnaðarþing- inu 1927. Steingrímur Stein- þórsson, kennari við Hvanneyr- arskólann, skrifar grein um notkun áburðar. Kveður hann mikla nauðsyn á þvi, að betur verði farið með áburðarefnin, sem falla til í landinu sjálfu, heldur en gert hefir verið til þessa. Pálmi Einarsson skrifar um FéSag norrænna búvisinda- manna. Klemenz Kr. Kristjáns- son skrifar um grænfóðurrækt. Jón H. Þorbergsson skrifar tvær greinar, er önnur þeirra um nokkur nýbýli, sem lcomið hefir verið upp hér og þar á Jandinu, hin er uin ineðferð og kynbætur hrossa. Auk þess eru frétlabréf, jarðabótaskýrslur og ýmislegt fleira í heftinu. Allir þeir sem unna landbún- aði vorum ættu að lesa „Frey“. MiSvikudagur til mæðu. Sérleyfið til handa „Titan“ var samþykt í n. d. siðastl. miðvikudag. Þungt var mörg- um i hug út af þessari sam- þykt, og er hin mesta nauð- syn á að þjóðin felli harðan dóm yfir þessari ráðstöfun. Og dagur dómsins nálgast óðum. Úr bréfi úr Dölum. Vér erum spurðir að því í bréfi að vestan, hvort nokkuð muni hæft í því að -Jónas á Hriflu hafi síðastliðið haust beðið forsætisráðherra um að sjá uin að „Willemoes" yrði slöðvaður í Stykkishólmi, svo Sig. Eggerz kæmist ekki með honum inn í Búðadal. Vér biðjum Jónas frá Hriflu vinsamlegast að svara þvi í ,,Tímanum“, hvort hann hafi nolckra fyrirætlaniy í éþá átt, að gera skip ríkissjóðsyþólitísk.

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/747

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.