Ísland


Ísland - 12.05.1928, Qupperneq 3

Ísland - 12.05.1928, Qupperneq 3
í S L A N D 3 5. gr. Takast má vátryggingarsjóð- ur á hendur almenna vátrygg- ingu hrossa í þeim sveitar- og bæjarfélögum, þar sem fóður- trygging er í góðu lagi að áliti Búnaðarfélags íslands. Leita skal þó samþykkis ráðherra um þetta í hverju einstöku tilfelli. 6. gr. Hvergi má vátryggja annars- staðar þann V* hluta af virð- ingarverði vátrygðra gripa, sem ekki er vátrygður samkvæmt lögum þessum. 9. gr. Hreppsnefnd í hreppum, en í bæjum bæjarstjórn, hefir með höndum alla stjórn og umsjón vátryggingarsjóðs og setur fé hans á vöxtu á hentugum stað, með fullri trýggingu. Sama gildir um innheimtu iðgjalda til sjóðsins, svo og um skýrslu- gerð og reikningshald. Iðgjöld hafa sama lögtaksrétt og sveit- arútsvör, og ber stjórnin á- byrgð á, að iðgjöldin komist í vátryggingarsjóð á réttum gjald- daga. Sveitasjóðir í hreppum, en bæjarsjóðir í kaupstöðum á- byrgast allar skyldur og skuld- bindingar, er hvíla á vátrygg- ingarsjóði og greiði skaðabætur, ef vátryggingarsjóður hrekkur ekki til. Ef sveita- eða bæjarsljórn vill ekki taka að sjer þau störf sem getið hefir verið um hjer á undan, er henni heimilt að skipa 3 menn í nefnd, af bú- fjáreigendum, til þess að liafa þetta starf á hendi. Árið 1929 á að stofna Bú- fjártryggingasjóð Islands með tillagi úr ríkissjóði, er nemi 15 þúsund krónum árlega í 20 ár samfleytt. Hlutverk hans er að endurtryggja vátrj'gginga- sjóði sveita- og bæjarfjelaga. Þessi lög eru þörf. Er því að vænta að skepnueigendur komi þessum fjelögum af stað i öllum sveitum landsins. Hjúalög. Þessi lagabálkur hefir verið nokkuð lengi á döfinni, en hef- ir nú náð samþykki þingsins. Þau lög, sem gilt hafa i þessu efni, eru frá 1866.' Voru þau því orðin á eftir tímanum í ýmsum atriðum. Hér skal ekki farið út í þá sálma, að lýsa kostum þessara laga fram yfir eldri lög. Breytingarnar eru fáar, sem verulegu máli skifta. Ein breyt- ing er þó veruleg. Hún er sú, að þegar hjú er ráðið til langs tima, t. d. árs, þá getur það heimtað kaup fyrir 1. mánuð ráðningartímans, þegar það hefir verið í vistinni í 3 mán- uði. Þegar það hefir verið í 4 mánuði, getur það heimtað kaup fyrir annan vistarmánuð- inn o. s. frv., þannig, að það þarf ekki að eiga kaup inni hjá húsbónda sínum, nema fyrir tvo síðustu mánuði. — Þegar hjúið fer úr vistinni verður þegar að greiða þvi að fullu. Nýtt erlent auðfélag. Sænskt félag hefir fengið leyfi til þess að byggja hér ný- tísku frystihús, og er þegar byrjað á byggingunni. Vafalaust er það nauðsyn- legt, að vandað frystihús rísi upp hér i bænum, en óneitan- lega hefði það verið skemti- legra, að íslendingar hefðu sjálfir átt þetta risavaxna fyrir- tæki. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að það er bæði óheppilegt og hættulegt fyrir íslendinga, að erlend auðfélög fái réttindi hér á landi. Og þetta félag virðist ekki vera þannig vaxið, að rétt sé að loka augunum fyrir hættunni. Það virðist augljóst, að hér sé um svo stórskostlegt fyrir- tæki að ræða, að það muni ekki þurfa að óttast neina samkepni á næstunni. Og þar af leiðandi getur það sett Is- lendingum stólinn fyrir dyrn- ar, ef því þóknast. Getur það þess vegna fengið hér óeðlilega mikil völd, ef íslendingar eru ekki á verði. í aðsendri grein, sem birtist i dagblaðinu »Vísi« fyrir skömmu, var skýrt frá því, að félag þetta hafi reynst þeim manni illa sem kom því á laggirnar hér á landi. Hann kvað hafa fengið leyfið o. s. frv. og eytt miklu fé og fyrir- höfn í þágu félagsins. Hann kvað og hafa sett það skilyrði, að hann yrði í stjórn félagsins. En þetta var ekki gert, hver svo sem ástæðan hefir verið. Ef hér er um svik að ræða — en um það viljum vér ekk- ert fullyrða, því að vitum ekkert um það, — þá veitir sannarlega ekki af þvi að verið sé á verði. Ríkisstjórnin þarf að hafa opin augun og taka í taum- ana, ef ástæða virðist vera til, 'áður en það er orðið um seinan. Varkárnin er aldrei of mikil þegar um erlend félög er að ræða. Hagsmunir þeirra og landsmanna eru oft á tíðum ekki hinir sömu, og þá verða hagsmunir landsmanna auð- vitað fyrir borð bornir. Annars virðist dálæti lands- manna á erlendum auðfélög- um vera orðið nokkuð mikið. Þeir virðast ekki gæta þess, að það er óskynsamlegt að hleypa úlfum inn í hjörðina. A. Ýmislegt. 27. febrúar síðastl. fór dr. Vilhjálmur Stefánsson á spítala í New York. Erindi hans þang- að er ekki að leita sér lækn- inga, heldur til þess að sanna mönnum, að þeir fái ekki skyrbjúg, þótt þeir eti kjöt í alla mata. Læknirinn, sem lít- ur eftir honum, segir, að heilsa hans sé ágæt. Enginn veit sína æfina fyr en öll er. — Trygðu þig í tíma! („Andvaka"). Ljótur siður. Niðurl. Ekki er hægt að kveða á um aldur þessara söguljóða með neinni vissu. Og það er ekki hægt að benda á greinilegar heimildir fyrir ekknabrenslunni fyrr en grískir fræðimenn skýra frá henni. Diodorus, Plutarch og fleiri segja að það sé gamall siður á Indlandi, að lifandi ekkj- ur séu brendar með látnum eig- inmönnum sínum. Fyrsta greini- lega tilfellið, sem hægt er að henda á í indverskum fræðum, er frá .árinu 509—510 e. Kr. í bókmentum Indverja frá þess- um tímuin er talað um ekkna- brensluna sem algenga venju. Fyrir þann tíma er varla hægt að benda á hana með neinni vissu, og alt virðist styrkja þá skoðun, að þangað til hafi ekkna- brenslan verið undantekning, undan reglunni, að hún hafi upprunalega veriö fátíðari, en breiðst smámsaman yfir öll þau héruð í Indlandi, þar sem íbú- arnir voru bramatrúar. Og á- stæðan til þess hafir vafalaust verið sú, að síður þessi sam- ræmdist trúarkerfinu mjög vel, Það, sem sérstaklega er mark- vert í þessu sambandi, er skoð- un Indverja á konunni og stöðu hennar í þjóðfélaginu. Af því sjáum vér, hve varhugavert er | að treysta á skáldin í þessum efnum. Þeir hlaða lofi á kon- una. Nota öll þau fegurstu orð, sem þeir eiga í fórum sínum, þegar þeir tala um hana. En samt sem áður er staða ind- versku konunnar í þjóðfélaginu alls ekki öfundsverö, og hefir aldrei verið það. Konan er aldrei sjálfstæð. Á meðan hún er barn, verður hún að lúta vilja föðursins i einu og öllu. Þegar hún giftist, hefir maður heunar sama rétt yfir henni, sem faðirinn hafði áður. Og þegar hún er orðin ekkja, verður hún algerlega að lúta vilja sona sinna. Þannig er sagt frá ósjálfstæði konunnar á ind- verska vísu og þannig hefir í raun og veru staða hennar verið. í indverskri lögfræði kemur greinilega i Ijós, hve slæm staða konunnar er. Hún nýtur f raun réttri ekki almennra mannrétt- inda. Heitasta ósk Indverja er að eignast syni og kvikfé. Ef hann á engan son, sem getur fært máttugum verum fórnir fyrir sál hans, þá fer hann til helvítis. Tilgangurinn með hjónaband- inu er því sá, að eignast son, en að elgnast dóttur er skoðað sem óhamingja, er ekki sé hægt að komast hjá. Þetta kemur greinilega i Ijós í því, að það er skilnaðarsök, ef konan hefir eignast margar dætur en enga syni. Það er miklu minni refsing lögð við því að myrða konu en að niyrða karlmann. Alla æfi er hún öðrum háð. Hún getur ekki átt neinar eignir. Hún má ekki bera vitni. Hún má ekki höfða mál. Og hún má ekki gera neina samniga. Að vísu hefir þetta breyst dálitið á siðari tímum, mannúðin i þeim málum; er snerta konuna, hefir aukist. En það sem sagt var hjer á undan, er þó beint f samræmi við hinar eiginlegu skoðanir bramatrúar- manna á þessum efnum. Og það tillit, sem tekið er til konunnar, byggist vafalaust á því, að hún er nauðsynleg fyrir manninn, til þess að hann geti uppfylt óskir sinar á jarðríki, að eignast syni. Það eina, sem konan getur vænst af lifinu, er að giftast. Stúlka, sem er ógift í föðurhús- um fram yfir æskualdur, getur undir vissum kringumstæðum orðið ver sett en þeir aumustu í þjóðfjelaginu, faliið niður í þann flokk manna, sem allir fyrirlíta. Þegar stúlka er orðin fjögurra ára, getur hún gifst. Og þegar hún er orðin tólf ára, getur hún tæplega vænst þess, að hún giftist. 1891 settu Eug- lendingar lög, til þess að koma í veg fyrir þessar barnagiftingar. En fyrir þann tima — á þeim timum, sem vér erum að tala um, — er þelta algild regla. Það, sem augljósast sýnir stöðu konunnar, er að hún var keýpt og seld eins og skepna. Það var meira að segja leyfilegt að svíkja þann, sem var trúlof- aður henni, ef annar kom sem bauð hærra. Hjónabönd, sem bygð eru á ást, þekkjast að vísu í iögum Indverja, en þess kon- ar hjónabönd voru að eins heim- iluð æðstu stjettinni og voru þó í raun réttri ekki lögleg. Þegar konan er gift, er hún eign mannsins. Hann er hús- hóndi hennar, og honum verður hún að sýna skilyrðislausa hlýðni, jafnvel þótt hann sé svallari, drykkjusvoli og aum- ingi. Hann má berja hana og fara með hana eins og honum þóknast — nema drepa hana. Hún er réttlaus, og einasta skjdda hennar er að hlýða manni sínum. — Hún verður að hlýða honum, þótt hann skip- aði henni að brjóta lög guðs og manna. En þó er húsmóðirin miklu betur sett heldur en .ekkjan, Hún má ekki giftast aftur. Al- menningsálitið bannar það, og lögin bönnuðu það einnig fram á miðja 19. öld. — Hún verð- ur að lifa og deyja sem ekkja. — Kona manns sem er í ferða- lagi, er ekki öfundsverð. Hún má ekki bera neina skartgripi. Hún má ekki láta sjá sig við gluggann, ekki nota smyrsl, ekki leysa fléttur sinar, ekki borða sælgæti og ekki vera á neinni skemtun. En þó er ekkjan miklu ver sellt. Hún má auðvitað enga skartgripi bera, hún má ekki fá sér falleg föt, en verður að sætta sig við að klæðast lélegum baðmullarfötum. Á meðan sorg- armánuðurinn stendur yfir, verð- ur hún sjálf að sjóða í sig mat- inn og má ekki hafa fataskifti. — Hún verður að fastatvodaga í hverjum mánuði, sem hún á ólifaða. Og á meðan á föstunni stendur má hún ekki einusinni neyta vatnsdropa. Engin and- litssmyrsl má hún nota. Og engan karlmann má hún nefna á nafn, nema hinn látna mann sinn. — Euda verður hún að færa honurn fórnir á degi hverj- um. Verst eru konurnar farnar í norð-vesturhéruðum landsins. Þar má ekkja ekki borða nema einu sinni á dag. Hún verður að sofa á gólfinu, af því að rúm er of gott handa henni. Hárið er rakað af henni, ogþað sem henni hefir þótt vænst um, er tekið frá henni. Hún verður að sitja og standa eins og syn- ir hennar skipa henni — ef hún hefir enga syni, koma frænd- ur hins látna manns hennar í þeirra stað. Og hún er látin vinna þau störf, sem eru svo fyrirlitin, að enginn vill vinna þau. Vjer skulum setja oss fyr- ir sjónir hlutskifti ungrar stúlku, sem er orðin ekkja á barns- aldri, áður en hún hefir hug- mynd um, að hún sé maður. Hún fær að klæðast fögrum föt- um, bera hringi og fleiri skart- gripi, sem indverskum konum þykir svo væut um. í barnslegri gleði horfir hún á sjálfa sig í speglinum, og gleðst yfir fegurð sinni. Svo er hún leidd út og láliu setjast við bálið, þar sem lík manns hennar skal brenn- ast, mannsins, sem hún hefir ef til vill aldrei séð. Ættingjar hennar koma, rífa af henni skartgripina og fögru klæðin. Hún skilur þetta ekki og fer að gráta. — Enginn huggar hana. Hún sér önnur börn leika sér. Hún vill leíka sérmeðþeim en fær það ekki. Hún má ekki hugsa um lystisemdir þessa heims. Hún verður að helga hinum látna eiginmanni, — sem hún hefir ef lil vill aldrei séð — alt líf sitt. Hann er eiginmaður hennar og guð, á meðan hún lifir. Og það sem hún gérir, og hvert sem hún fer, verður hún skoðuð sem afhrak. Og þegar hún þarf helst á ást að halda, verður hún allstaðar fyrir fyrir- litningu og miskunarleysi, Eftil vill fellir hún ástarhug til ein- hvers annars manns seinna á lifsleiðinni, þá er henni sagt, að ástin, sem kastar Ijóma yfir líf jafnaldra hennar, sé synd, syud, sem muni baka henni kvalir helvítis um aldir alda. Og ef hún lætur undan freist- ingunni, þá er hún skoðuð sem fallin kona. Ættmenni hennar vilja ekki líta við henni. Hún er útskúfuð úr þeim stiga mann- félagsins, sem hún á heima í. Og hvaða afleiðingar þetta hefir í för með sér fyrir hana, getur enginn skilið sem ekki þekkir til í Iudlandi. Eru það nokkur undur, þótt ekkjurnar kjósi heldur að ganga á bálið með manni sínum, en lifa slíku lífi ? Þýtt hefir S. K. f Innlendar fréttir. Séra Jakob Kristinsson hefir verið settur skólastjóri Eiðaskóla frá 1. þ. m. og þar til öðruvisi veröur ákveðið. Afrekslaun. Fiskifélagið hefir veitt Jóni Vigfússyni, sjómanni i Vest- mannaeyjum, afrekslaun, fyrir að bjarga félögum sínum, með þvi að klifa Ofanleitishamar. Verðlaunin eru áletraður silfur- bikar. Sendiherra Dana hefir tilkynt, að konungur fari opinbera heimsóknarför til Finnlands, og Tryggvi Þór- hallsson forsætisráðherra fari með honum.

x

Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/747

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.