Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
STOFNUÐ 1925
34. TBL. 85. ÁRGANGUR
LESBÓK
Cecilia Bartoli Varpar ljósi á fórn
ítölsku geldinganna fyrir tónlistina 4
Morgunblaðið/Einar Falur
Málarinn sem flutti heim
Tryggvi Ólafsson listmálari gaf á
dögunum 100 grafíkmyndir til
söfnunar fyrir Grensásdeild. Þær
seldust allar og 200 til. Tryggvi er í
endurhæfingu á deildinni og talar
um lífið og listina.
Fjölmiðlar:
Alþingi hefur
brugðist þjóðinni2
6Myndlist:Drífa Viðar áttilítríkan listferil
8Málfar:Eiður er ekki reiðareksmaður
M
eð hvaða hætti svafstu í nótt, ástin
mín?
– Æi, veit ekki, bara með einum
eða öðrum hætti.
Fáránlegt? Já. Ólíklegt? Nei. Þannig tala
stjórnmálamenn. Þeir eru á einn eða annan
hátt á höttunum eftir háttum. Það er prýðileg
ástæða á niðurskurðartímum að spara hér,
eins og annars staðar, til dæmis með því að
endurnýja kynnin af atviksorðinu ágæta:
hvernig, sem tekur skemmri tíma í tali, og
sparar pappír og blek í rituðu máli. Svo gæti
góðu heilli farið að þessi ljóta klisja hyrfi.
Ef niðurskurður á ljótu máli er ekki á dag-
skrá, má alltaf reyna við önnur orð, þó ekki
væri nema til að votta sköpunargáfunni og
hugmyndafluginu virðingu sína í orðavali. Þá
væri kjörið fyrir þá sem ekki treysta sér til að
láta af nafnorðafíkninni að spyrja: með hvaða
móti? á hvern veg? og svarið gæri verið: á
ýmsa lund, eða með ýmsu móti. Ég læt mér þó
yfirleitt einhvern veginn duga. Það má líka
sýna litbrigði í stíl þegar spurt er og nota
gamlar myndir orða, eins og hvurnig og
hvernin. Tungumálið er litríkur skrúðgarður
og þar gónir maður ekki bara á fífla.
Þetta veit Eiður Guðnason sem rætt er við í
Lesbók í dag. Hann bloggar um málfar í fjöl-
miðlum og segir í viðtalinu, að móðurmálið
hafi orðið hornreka.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er
ekki feimin við að nota móðurmálið í útlönd-
um, og í fjölmiðlapistli Lesbókar segir Gauti
Kristmannsson þá gagnrýni sem beinst hefur
að Jóhönnu fyrir vikið byggjast á landlægu of-
mati Íslendinga á enskukunnáttu sinni.
Tungumál Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur
er tónlistin. Hún er einn okkar efnilegustu
píanóleikara og segir frá lífi sínu í tónlistinni í
Lesbók í dag. Hún hætti oft að spila, en sem
betur fer byrjaði hún oftar en hún hætti.
begga@mbl.is
Háttatal hið nýja
ORÐANNA HLJÓÐAN
BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR
Tungumálið er litríkur
skrúðgarður og þar gónir
maður ekki bara á fífla.