Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Page 6
Eftir Aðalstein Ingólfsson
adalart@mmedia.is
D
rífa Viðar er aldrei nefnd í tengslum við þær hrær-
ingar sem áttu sér stað í íslenskri myndlist á ár-
unum um og eftir stríð, myndir hennar sjást ekki á
yfirlitssýningum safnanna og ef flett er upp í heim-
ildasafni Listasafns Íslands er afraksturinn ein-
ungis eitt lítið boðskort á yfirlitssýningu á verkum
listakonunnar, sem haldin var að henni látinni árið 1975. Í
Listasafninu er að finna eitt málverk eftir hana, keypt 1971,
sama ár og hún lést.
Þó var náms-og listferill Drífu bæði litríkur og óvenjulegur;
til að mynda var hún í læri hjá Morris Kantor í Art Students
League samtímis þeim Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matt-
híasdóttur, síðar hjá Amadée Ozenfant, öðrum af tveimur guð-
feðrum hreinstefnunnar (púrismans) í New York 1943-44 (hinn
var að sjálfsögðu Le Corbusier), og í kjölfarið var hún í skóla
Hans Hofmanns ásamt Nínu og Louisu. Eftir ársdvöl heima á
Íslandi hélt Drífa síðan til Parísar þar sem hún gekk til Fern-
ands Légers. Þótt Drífu tækist ekki að ávaxta sitt listræna
pund í viðlíka mæli og áðurnefndar stallsystur hennar, þá er sú
þróun sem átti sér stað í myndlist hennar framan af að mörgu
leyti sambærileg við það sem við sjáum gerast í verkum hinna
tveggja. Því er brýnt að taka til endurskoðunar þá mynd sem
dregin hefur verið upp af tvíeykinu Nínu og Louisu í New York
og fella inn í hana frásögn af myndlist Drífu, „þriðju listakon-
unnar“ í heimsborginni.
Drífa Viðar var fædd í Reykjavík 1920, dóttir Einars Viðar
Indriðasonar og Katrínar Viðar. Faðir hennar féll frá þegar hún
var barn að aldri og ólst hún upp hjá einstæðri móður ásamt
systur sinni Jórunni, síðar tónskáldi. Katrín Viðar var píanó-
kennari og vandi þær systur við tónlist. Þær léku dável á píanó
og margir tónlistarmenn, rithöfundar og myndlistarmenn voru
heimilisvinir þeirra. Drífa hneygðist snemma til ritstarfa og
myndlistariðkunar, en lét það ekki aftra sér frá því að ganga
menntaveginn. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1938 og kennaraprófi frá Kennaraskólanum ári
síðar. Að því loknu hóf hún íslenskunám við Háskóla Íslands hjá
Sigurði Nordal, en lauk ekki prófi.
Listakonur í deiglunni
Myndlistaráhugi Drífu vaknaði fyrir alvöru eftir stúdentspróf
og má leiða að því líkur að sú mikla gerjun sem varð í íslenskri
myndlist í lok fjórða áratugarins, og meðfylgjandi umræða í
blöðum og tímaritum, hafi haft þar einhver áhrif. Einn af þeim
sem þá stóð í eldlínunni var Jón Þorleifsson, listmálari og gagn-
rýnandi Morgunblaðsins til nokkurra ára, og leitaði Drífa til
hans um tilsögn í myndlist. Jón hafði dvalið í París og fengið þar
innsýn í formhyggju og litakenningar frönsku módernistanna,
og kemur hvorttveggja fram í varfærnislegum manna- og
landslagsmyndum hans. Við vitum ekki hversu ítarlega Jón
skólaði Drífu, en alltént var hún í læri hjá honum um tveggja
ára skeið og talaði ævinlega um hann af virðingu. Við upphaf
síðari heimstyrjaldar sneru síðan heim ýmsir listamenn sem
dvalið höfðu úti í löndum um árabil og jók það enn á fjölbreytni
listalífsins í Reykjavík. Meðal þeirra voru Þorvaldur Skúlason,
Jón Engilberts, Nína Tryggvadóttir og Louisa Matthíasdóttir.
Tímabilið 1939-43 rak hver merkisatburðurinn annan; Handíða-
og myndlistaskólinn tók til starfa, Þorvaldur og Kjarval héldu
tímamótasýningar, og deilur listamanna og Jónasar Jónssonar
frá Hriflu, eins áhrifamesta stjórnmálamanns á landinu, náðu
hámarki með eins konar allsherjarþingi íslenskra listamanna
árið 1942, þar sem viðhorf Jónasar voru kveðin niður og ályktað
var um stofnun listasafns fyrir þjóðina.
Ekkert af þessu getur hafa farið framhjá Drífu, né heldur
tvær ungar konur á síðbuxum á fleygiferð um Reykjavík með
striga, staffelí og jafnvel gítar undir handleggjum, milli þess
sem þær héldu vinum sínum selskap í garðhúsi í miðbænum.
Þetta voru þær Nína og Louisa, sprenglærðar í myndlist frá
Danmörku og Frakklandi. Enn sem komið er vitum við fremur
lítið um samskipti þessara þriggja kvenna í Reykjavík, en sú
staðreynd að þær fóru allar til Bandaríkjanna um svipað leyti,
Louisa um haustið 1942 og Nína og Drífa 1943, og innrituðust
þar í sama skólann, Art Students League, bendir til þess að þær
hafi náð að kynnast hér heima. Víst er að þær héldu hópinn þeg-
ar til New York kom, a.m.k. framan af; bréf Nínu til Erlends í
Unuhúsi votta um reglulegan samgang þeirra og á sögulegri
ljósmynd sem tekin var í New York árið 1944 má sjá allar þrjár
í samkvæmi með listmálurunum Leland Bell, síðar eiginmanni
Louisu, Robert de Niro eldra, Virginiu Admiral, Al Kresch og
fleirum. Í samtölum við Jórunni systur sína hafði Drífa orð á því
að oftast hefði Nína farið fyrir þeim þremur og haft afdrátt-
arlausari skoðanir á myndlist og mannlífi en þær stallsystur
hennar, enda var hún þeirra elst.
Líklegt er að upp úr 1944 hafi eitthvað dregið úr samskiptum
þeirra; Louisa hafði þá kynnst Leland Bell, Nína var farin að
umgangast bandarískt listafólk í æ ríkara mæli og Drífa átti sér
eigin kunningjahóp. Á sjötta áratugnum skildu leiðir að mestu,
en þá höfðu þessar þrjár listakonur komið sér fyrir sitt í hverju
landinu, Louisa í Bandaríkjunum, Nína í Frakklandi og Drífa á
Íslandi.
Boldangskonur og fljótariss
Tímabilið í New York hafði mótandi áhrif á þær allar, en mis-
mikið þó. Eins og áður er nefnt voru Nína og Louisa gagn-
menntaðar í myndlist þegar þær sigldu vestur um haf og dvölin
þar gerði tæpast annað en staðfesta fyrir þeim þá módernísku
listsýn sem þær höfðu þegar tekið inn á sig í París og Kaup-
mannahöfn. Drífa átti að baki stystan námsferil þeirra þriggja
og því er mestur nemendabragur á verkum hennar frá tíma-
bilinu í New York. Meðan hún nam hjá Ozenfant, 1943-44, lagði
hún sig eftir dempuðu litrófi og skýrum „arkitektónískum“ stíl
læriföðurins, en dvölin hjá Hofmann kallaði aftur á huglægari
vinnubrögð. Eftir að hún kom til Parísar árið 1946 gaf Drífa sig
síðan alfarið á vald hlutlægum, hálf-kúbískum stíl Légers, það
er tími margháttaðra tilbrigða um kyrra hluti á borði eða kring-
um það: flöskur, blóm eða mandólín. Hins vegar eru þessi nem-
endaverk Drífu langt í frá heilberar eftirlíkingar; til að mynda
einkennast þau af sérstöku litrófi sem vekur hjá áhorfanda
löngun til að kynnast höfundinum nánar. Hrjúf og feimulaus
sjálfsmyndin sem hún málaði seint á New York-tímabilinu er
einnig til vitnis um sjálfstæðan þankagang hennar.
Áhugaverðustu myndir Drífu frá tímabilinu 1943-47 eru ann-
ars vegar mannamyndir hennar, einkum og sérílagi stílfærðar
og þétt málaðar myndir af andlitslausum og oftast fáklæddum
boldangskvenmönnum í afmörkuðu rými, hins vegar nokkrar
abstraktmyndir, hvort tveggja gerðar undir handarjaðri Hof-
manns. Í konumyndunum kallast Drífa iðulega á við þær Nínu
og Louisu í útlistun sinni, sem ber keim allt í senn af skipulegri
afbökun kúbismans, lífrænni formgerð súrrealismans og skap-
hita expressjónismans, en Hofmann var sjálfur hallur undir öll
þessi afbrigði nútímalistar. Inni (1944) heitir mynd af boldangs-
kvenmanni eftir Nínu í þessum stíl í eigu Listasafns Íslands,
þar sem hægt er að bera hana saman við myndina eftir Drífu í
eigu safnsins, Konan mín í kofanum. Til viðbótar mætti nefna
konumynd Louisu Nína í Santa Fe (1943-44) í Listasafni ASÍ.
Abstraktmyndirnar eru athyglisverð viðleitni Drífu til að til-
einka sér ýmsar af hugmyndum Hofmanns um aflfræði eða
„dýnamík“ myndflatarins. Í kennslu sinni hnykkti Hofmann
stöðugt á því að abstraktlistamaðurinn ætti aldrei að líta á yf-
irborð myndar sem rými heldur sem flöt, að litirnir ættu að
stjórna framvindu mynda, ekki fyrirfram gefin formgerð, og
„dýnamíkin“ í myndunum ætti fyrst og fremst að ráðast af inn-
byrðis átökum lita. Til að slá á meinta dýpt sumra lita; t.a.m.
virðist blár eða brúnn litur alltaf vera „aftar“ á fleti en rauðir
eða gulir litir, átti listmálarinn að magna upp „dýpri“ litinn með
ýmsum hætti, lýsa hann eða auka á áferð hans, allt í því augna-
miði að árétta tvívídd flatarins. Þetta var það sem Hofmann
nefndi „push and pull“ og hefur orðið fleygt orðatiltæki í mynd-
listarsögunni. Mér sýnist sem þarna sé að finna skýringuna á
ýmsu því sem við sjáum í abstraktmyndum Drífu frá 1943-45,
sem sýndar voru í galleríinu Nútímalist á Skólavörðustíg um
daginn: sjálfstæði litaflatanna í myndum hennar, frjálslegu við-
horfi hennar til myndbyggingar – málverk hennar geta snúið á
ýmsa vegu – og ekki síst á fjölbreyttri áferðinni. Um mörg þess-
ara verka má jafnvel hafa sömu orð og gagnrýnandinn Clement
Greenberg hafði um málverk Hofmanns, nefnilega að í höndum
hans væri engu líkara en myndflöturinn væri ekki „hlutlaust
fyrirbæri, heldur veitti málaranum beinlínis viðnám, og sjálf
málningarvinnan fælist fremur í að pota í flötinn, þjarma að
honum, rissa í hann heldur en að teikna á hann og hjúpa með lit-
um.“ Í leiðinni er vert að minna á það að umrædd nemenda-
málverk Drífu eru að öllum líkindum fyrstu abstraktmyndir ís-
lenskrar listakonu og eiga því fortakslaust heima í opinberu
safni.
Seinna meir sagði Drífa fjölskyldu sinni að Hofmann hafi
stundum þótt nóg um hitann í litum hennar: eitt sinn kom upp
eldur í skóla hans og átti lærimeistarinn þá að hafa sagt að það
hlyti að hafa kviknað í út frá málverkum Miss Vidar.
Myndi
Drífa dv
þá hörgu
og gekk
hitt í Ne
minni áh
mál han
hún hafð
áhrif á D
byggja u
aðall Dr
útlínute
Árið 1
eiga Skú
ar og se
itt að sin
tóku sin
isfari mi
argagnr
skreytti
Á önd
bjarga a
Af skilja
Drífu, au
leggja m
þær lön
Drífu er
hugmyn
lega spr
Meða
eru ann
ekki óra
manna h
landslag
átti sum
Af síð
ingarna
sinni og
grænni
ar þjóðs
Theódór
auðveld
þarf oft
andi útlí
áður er
Ég er
framlag
ar mynd
vörðustí
Þriðja
konan
Drífa Viðar Sjálfsmynd frá um 1945. „Í konumyndunum kallast Drífa iðulega á við þær Nínu og Louisu í útlistun sinni,“ segir Aðalsteinn Ingólfsson.
Hin síðari ár hefur skamm-
tímaminnið verið einn af fylgi-
fiskum myndlistarinnar. Og þeg-
ar svo er komið að
nýútskrifaðar íslenskar lista-
spírur þekkja ekki til fimmtugra
myndlistarmanna með álna-
langa ferilskrá, er ekki nema
von að einhverjir hvái þegar
nafn Drífu Viðar ber á góma.
Drífa í ra
Abstrakt
Hrjúf og feimulaus sjálfsmyndin
sem hún málaði seint á New York-
tímabilinu er einnig til vitnis um
sjálfstæðan þankagang hennar.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
6 LesbókMYNDLIST