Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.2009, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009 Lesbók 11 Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík og nýjasta margmiðlunartækni. Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni. Opið alla daga frá kl. 10-17. www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is Sumarsýning á nýlegri íslenskri hönnun úr safneign Húsgagnageymsla safnsins opin almenningi SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Leiðsögn sunnudag kl. 15: Leynast íslensk húsgögn í geymslunni þinni? Íslensk húsgagnaframleiðsla stóð með miklum blóma á tímabilinu 1950-1970 og víða leynast enn húsgögn frá þeim tíma á íslenskum heimilum og stofnunum. Arndís S. Árnadóttir mun í leiðsögn sinni greina frá helstu áföngum í sögu íslenskrar húsgagnasmíði og hönnunar á síðustu öld og tengja við gripi safnsins. Opið lau.-sun. kl. 13-17. Lyngási 7, 210 Garðabæ, sími 512 1526. www.honnunarsafn.is • Aðgangur ókeypis LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Óþekkt augnablik Greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu 1900-1960 úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Leitað er aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is. Söfnin í landinu LISTASAFN ASÍ 26. september til 18. október Guðjón Ketilsson/Hlutverk Lothar Pöpperl Opið 13-17 alla daga nema mánud. Aðgangur ókeypis Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is 28. ágúst – 1. nóvember Lífróður – Föðurland vort hálft er hafið 11. október kl.14 - Fjölskylduleiðsögn og ratleikur Opið 11-17, fimmtudaga 11-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is Aðgangur ókeypis. Listir – hönnun - handverk ÞRÆDDIR ÞRÆÐIR og EINU SINNI ER Kaffistofa - Barnahorn - Leskró OPIÐ: fim.–sun. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði FALINN FJÁRSJÓÐUR: GERSEMAR Í ÞJÓÐAREIGN? 10.7. - 18.10. 2009 Sýning á verkum úr söfnum ríkisbankanna þriggja ásamt völdum kjarna úr verkum Listasafns Íslands. SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 - PUNT OG FISKIKONUR Sigríður Melrós Ólafsdóttir sýningarstjóri mun skoða sérstaklega verk listakvennanna Hildar Hákonardóttur og Hildar Bjarnadóttur ásamt listakonunum sem munu taka þátt í leiðsögninni. HÁDEGISLEIÐSÖGN þriðjudaga kl. 12.10 -12.40, föstudaga kl. 12.10-12.40. SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara frá erlendum listasöfnum. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR. www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Sýningar opnar alla daga: Handritin - sýning á þjóðargersemum, saga þeirra og hlutverk. ÍSLAND::KVIKMYNDIR, 100 íslenskar kvikmyndir til að horfa á. Að spyrja Náttúruna - dýrasafn og aðrir munir í eigu Náttúrugripasafnsins. Þjóðskjalasafn Íslands - 90 ár í Safnahúsi. Merk skjöl úr sögu þjóðarinnar. Gögn frá valdatíma Jörundar hundadagakonungs fyrir 200 árum. Sýning Íslandspósts „Póst- og samgöngusaga - landpóstar, bifreiðar, skip og flugvélar“ ásamt frímerkjasafni Árna Gústafssonar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn: Flökkuæðar - Loftfar Inga Þórey Jóhannsdóttir Bíósalur: Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar Bátasafn: 100 bátalíkön Byggðasafn: Völlurinn Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com Hönnunarsafn Íslands Museum of Design and Applied Art, Iceland skelfilega illa hvað þessa mynd varðar. Svo er alltaf hlægileg uppsetningin á þessum söguheimi, að Bretland sé þetta stórveldi og allt það. Auðvitað hafa myndirnar fengið gríðarlega samkeppni á seinustu áratugum, t.d. frá Die Hard og Bourne-myndunum og þá hafa þær orðið að gefa svolítið í, spýta í lófana. Það er samt einhvern veginn alltaf sama sagan með Bond, maður hlakkar til að sjá hann en hann er auðgleym- anlegur. Hann er eins og sápukúla, gaman að horfa á hana í augnablik en svo er það bara búið. S íðustu tvær myndir sem ég sá voru Bond-myndin The Spy Who Loved Me og Algjör Sveppi og leitin að Villa. Mér fannst sú síðarnefnda nokkuð skemmtileg, góð- ur gangur í henni, hún er fjörleg, skemmtileg fantasía og sjarmerandi leikarar. Þarna er ágætis húmor á ferð og gam- an hvernig smáatriði eru unnin, t.d. þegar farið er inn í heim barnsins sem er að hlusta á útvarpsfréttir og þulurinn fer allt í einu að lesa „blablaba“ og „leiðinlegt, leiðinlegt“. Giss- ur fréttamaður á Bylgjunni gerir þetta afskaplega vel. Hvað Bond varðar var ég að kynna dóttur mína fyrir hon- um og valdi þessa mynd af handahófi. Ég keypti hana í brí- aríi af því hún var mér afskaplega kær á unglingsárunum. Hún er hins vegar orðin stirð og trénuð, húmorinn lélegur, hún er klunnaleg. Nýjasta tækni og vísindi hafa alltaf verið í forgrunni í Bond-myndum en það hefur það hefur elst Glápari | Ásgrímur Sverrisson Hann er eins og sápukúla, gaman að horfa á hana í augnablik en svo er það bara búið. Höfundur er ritstjóri icelandcinemanow.com. FÖSTUDAGSKVÖLD Ójá, menning- arvitinn tók að sjálfsögðu forskot á vertíð helgarinnar á sýningu Leik- félags Akureyrar á Lilju eftir Jón Gunnar Þórðarson. Jón byggir verk- ið lauslega á kvikmynd Lúkasar Moodyssons um skelfilegt líf Lilju sem var fórnarlamb þrælahalds og nauðungar í nútímanum. Jón Gunn- ar vann leikritið meðan hann var við nám í Drama Centre í London og leikritið var frumsýnt í Manchester í fyrra. Ekki var það til að draga úr forvitninni um Lilju að sýning Gunn- ars fékk glimrandi dóma hjá Engl- um, þar á meðal fimm stjörnur í gagnrýni dagblaðinu Manchester Evening News. Menningarreisan tek- ur stefnu í suðurátt. LAUGARDAGUR Hádegi í Borgarnesi, og guðdómlega sjávarmet- issúpan í Vinakaffi. Ef veðrið verður ekki þeim mun andstyggilegra verður spanað aftur í norðurátt og tekinn léttur sprettur upp Grá- brók, sem verður að teljast eitt skemmtilegasta eldfjall landsins, og sennilega eitt fárra eldfjalla sem hægt er að ganga upp tröppur á. Þetta fjall ráða semsagt aumustu amlóðar við, en hvenær kemur rúllustiginn? Það er stórmál í þessari reisu að ná úr Grábrókarævintýrinu niðrí Borgarnes aftur áður en Geirabakaríi er lokað. Þar birgir maður sig upp af alvöru ástarpungum eftir siglfirskri uppskrift – þeir eru í alvöru talað hvergi betri en hjá Geira; ást í hverjum bita. Hver segir að ekki megi borða ástarpunga í kvöldmat á laugardegi? Það verður gert skammlaust, og af ítrustu nautn, meðan beðið er eftir að klukkan nálgist átta. Þá er það ástin og sagnfræðin í Landnámssetrinu; sýningin Brúðarræninginn, um stórbrotna ævi brúðarræningjans séra Odds V. Gíslasonar, en einn af höfundum hennar, Guðmundur Brynjólfsson hreppti í vikunni Íslensku barna- bókaverðlaunin fyrir bókina Þvílík vika, sem maður verður auðvitað að lesa við tækifæri. Þótt ástin sé orðin sterkt þema í þessu helgarlífi, verður því sleppt þessu sinni að gista hjá Venusi; eftir leiksýninguna verður stefnan tekin á Rósenberg sem er vitaskuld einn af heitustu stöð- unum í höfuðborg allra landsmanna, Reykjavík, einkum þegar kemur að tónlist. SUNNUDAGUR Það er ekki hægt að vakna þreyttur á sunnudags- morgni. Morgunkaffi á Kaffivagninum á Granda léttir svo sannarlega byrðar dagsins og gefur fyrirheit um góðan dag, rótsterkur uppá- hellingur, – engin tilgerð í kaffinu á þeim bænum. Sýning Guðjóns Ketilssonar í Listasafni ASÍ er stóra verkefni dags- ins, og rétt að mæta strax uppúr hádegi og vera búin að skoða áður en Guðjón flytur sitt listamannaspjall á staðnum kl. 15. Þá verður maður væntanlega búinn að velta verkunum þokkalega fyrir sér sjálf- ur áður en listamaðurinn skerpir sýnina á þau. Spurning hvort maður nær ekki að hlaupa niðrí Ráðhús fyrir fjögur, þegar Stórsveit Reykja- víkur hefur sinn lúðrablástur með vestur-íslenska stjórnandanum Richard Gillis og Bjössa Thor í einleikshlutverkinu. begga@mbl.is HELGIN | Hjá þeim víðförla Notið af ítrustu nautn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.