Morgunblaðið - 08.04.2009, Page 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2009
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
8 liða úrslit, fyrri leikir:
Manchester United – Porto .....................2:2
Wayne Rooney 15., Carlos Alberto Tevez
85. – Cristian Rodriguez 4., Mariano
Gonzalez 89.
Villarreal – Arsenal..................................1:1
Marcos Senna 10. – Emmanuel Adebayor
66.
Síðari leikirnir fara fram miðvikudaginn
15. apríl.
England
1. deild:
Sheffield United – Barnsley .....................2.1
Watford – Southampton ...........................2:2
Crystal Palace – Coventry........................1:1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Coventry og skoraði mark liðsins á 31.
mínútu.
Staðan:
Wolves 41 23 8 10 71:49 77
Birmingham 41 21 12 8 49:33 75
Sheff. Utd 41 19 13 9 61:38 70
Reading 40 19 12 9 65:35 69
Burnley 41 18 12 11 63:55 66
Cardiff 39 16 16 7 54:39 64
Preston 41 17 11 13 54:51 62
Swansea 41 13 20 8 57:46 59
Bristol City 41 15 14 12 50:44 59
Q.P.R. 41 14 15 12 38:38 57
Ipswich 41 14 14 13 52:46 56
Sheff. Wed. 41 14 12 15 45:53 54
C. Palace 41 14 11 16 51:50 53
Coventry 40 13 13 14 43:47 52
Watford 41 14 9 18 61:65 51
Doncaster 41 14 7 20 34:49 49
Derby 39 12 12 15 49:54 48
Blackpool 41 11 14 16 40:53 47
Barnsley 40 12 10 18 39:50 46
Plymouth 41 12 10 19 38:51 46
Norwich 41 11 10 20 50:59 43
Nott. Forest 41 10 12 19 42:61 42
Southampton 41 9 14 18 42:59 41
Charlton 40 7 11 22 44:67 32
2. deild:
Hereford – Brighton .................................1:2
Leyton Orient – Leeds..............................2:2
Staðan:
Leicester 41 23 14 4 73:36 83
Peterborough 41 24 9 8 73:49 81
Millwall 41 23 7 11 57:44 76
MK Dons 40 21 9 10 76:45 72
Leeds 41 22 6 13 69:47 72
Scunthorpe 39 20 7 12 69:52 67
Tranmere 41 19 9 13 56:43 66
Southend 41 19 7 15 52:54 64
Oldham 41 15 14 12 60:58 59
Stockport 41 15 12 14 54:49 57
Colchester 41 16 9 16 53:54 57
Huddersfield 41 15 12 14 53:59 57
Walsall 41 15 10 16 55:59 55
Bristol R. 40 14 12 14 67:52 54
Orient 41 13 10 18 39:50 49
Hartlepool 41 12 10 19 60:69 46
Yeovil 40 11 13 16 34:57 46
Swindon 41 10 15 16 60:64 45
Carlisle 41 11 11 19 51:65 44
Crewe 41 12 8 21 54:72 44
Northampton 39 10 12 17 51:52 42
Brighton 40 9 12 19 44:63 39
Hereford 40 9 6 25 37:67 33
Cheltenham 40 7 10 23 46:83 31
ÍSHOKKÍ
HM karla, 2. deild
Kína – Ísland............................................. 3:2
Nan Fu 18., Chao Du 43., Weiyang Zhang
65. – Gauti Þormóðsson 11., Egill Þormóðs-
son 59.
Eftir framlengingu.
Norður-Kórea – Ísrael ..............................1:2
Serbía – Eistland .......................................5:4
Eftir framlengingu.
HANDKNATTLEIKUR
Í gær var dregið til undanúrslita í Evrópu-
mótum félagsliða karla og útkoman varð
þessi:
Meistaradeild Evrópu:
Hamburg (Þýsk.) – Ciudad Real (Spáni)
Kiel (Þýsk.) – RN Löwen (Þýsk.)
Evrópukeppni bikarhafa:
Kadetten (Sviss) – Nordhorn (Þýsk.)
Amicitia (Sviss) – Valladolid (Spáni)
EHF-bikarinn:
Gorenje (Sló.) – St. Otmar St. Gallen (Sviss)
Gummersbach (Þýsk.) – Aragón (Spáni)
Áskorendabikarinn:
Besiktas (Tyrk.) – Resita (Rúm.)
Suceava (Rúm.) – Bern Muri (Sviss)
í kvöld
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Reykjaneshöll: Keflavík – Grindavík ..17.30
TENNIS
Úrslitaleikir Íslandsmótsins í meistara-
flokkum karla og kvenna fara fram í Tenn-
ishöllinni í Kópavogi og hefjast kl. 16.
„ÉG slæ svo stutt í upphafshöggunum að ég heyri
þegar boltinn lendir,“ sagði hinn 73 ára gamli kylf-
ingur Gary Player á fundi með fréttamönnum á
Augusta-vellinum í gær. Suður-Afríkumað-
urinn er með keppnisrétt á Mastersmótinu en
allir fyrrverandi sigurvegarar á mótinu hafa
keppnisrétt á meðan þeir hafa áhuga á að
leika. Player sigraði þrívegis á mótinu, síðast
1978. Hann verður í ráshóp með Luke Donald
(Englandi), Stephen Ames (Kanada) fyrstu
tvo keppnisdagana.
Suður-Afríkumaðurinn Trevor Immelman
hefur titil að verja en allra augu beinast að
Tiger Woods sem hefur leikið gríðarlega vel
eftir vel heppnaða aðgerð á vinstra hné í júní
sl. þar sem slitið krossband var lagað.
Fáir höfðu trú á því að Trevor Immelman myndi
sigra á Mastersmótinu í fyrra og þá sérstaklega þar
sem Tiger Woods var í baráttunni um sigurinn. Im-
melman lék lokahringinn á 75 höggum en það dugði
til þess að sigra Woods með þriggja högga mun.
Immelman er í svipaðri stöðu fyrir mótið í ár. Fáir
hafa rætt um möguleika hans. Allra augu beinast að
Tiger Woods og Phil Mickelson sem gætu haft sæta-
skipti á heimslistanum þar sem Woods hefur einokað
efsta sætið síðustu misseri.
„Ég sagði við sjálfan mig eftir sigurinn í fyrra að ég
ætlaði að ávallt að leika eins og ég gerði á Mast-
ersmótinu. Ég áttaði mig á því að ég gæti ekki haldið
það út og þegar mér tókst það ekki fór ég að efast um
sjálfan mig. Síðasta ár hefur því verið erfitt og ekki
eins gott og ég átti von á sem atvinnukylfingur. Ég er
hættur að
það var g
var með á
Immelma
urveguru
kvöldið. Þ
Mastersm
upp á gril
ásamt ým
hamborg
sigurinn á
Sandy Ly
bauð í ma
1987. Lyl
voru ekki
lagsskapuTrevor Immelman
og Gary Player.
„Slæ svo stutt að ég heyri boltann lenda
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Fimm mínútum áður en flautað var til
leiksloka á Old Trafford leit út fyrir að
Carlos Tévez væri að tryggja Man-
chester-liðinu sigur þegar hann skoraði
annað mark liðsins með frábæru skoti
af stuttu færi eftir sendingu frá Wayne
Rooney. Sú reyndist alls ekki vera
raunin, sigur var ekki í höfn. Leikmenn
Porto neituðu að játa sig sigraða eftir
að hafa verið hreint frábærir lengst af.
Marino Gonzalez jafnaði metin á 89.
mínútu eftir hreint dæmalaust slakan
varnarleik Evrópumeistaranna.
„Úrslitin voru sanngjörn að mínu
mati. Í fyrri hálfleik var Porto betra lið-
ið en í seinni hálfleik náðum við betri
tökum á leiknum. En að fá á sig markið
undir lokin og hvernig það kom var afar
dapurt. Við áttum að verjast því og ég
held að mína menn hafi skort einbeit-
ingu. Við eigum leik á laugardaginn og
það er enn að miklu að keppa fyrir okk-
ur en víst er að þetta var erfiður leik-
ur,“ sagði Ferguson við ITV-sjónvarps-
stöðina í gærkvöldi.
Leikmenn Porto komu flestum á Old
Trafford á óvart í gær með því að blása
til sóknar strax í upphafi leiksins.
Cristian Rodriguez kom gestunum yfir
á 4. mínútu en þá strax höfðu leikmenn
Porto ógnað marki heimaliðsins.
Rooney jafnaði metin á 15. mínútu
eftir mikil mistök í vörn Porto þar sem
einn varnarmanna liðsins sendi knött-
inn hugsunarlaust aftur á markvörð
sinn. Leikmenn Manchester United
máttu teljast heppnir að sleppa við að
fá fleiri mörk á sig í fyrri hálfleik.
Leikur Villarreal og Arsenal á Spáni
skiptist mjög í tvö horn. Leikmenn Vill-
arreal voru sterkari í fyrri hálfleik en
Arsenal-menn voru beittari í þeim síð-
ari.
Adebayor skoraði jöfnunarmark Ars-
enal á 66. mínútu með glæsilegri bak-
fallsspyrnu og gæti markið reynst dýr-
mætt þegar upp verður staðið en liðin
mætast á ný í næstu viku.
Tógómaðurinn Emmanuel Adebayor,
framherji Arsenal, sagðist eftir leik
liðsins í gær ekki vita hvernig sér tókst
að skora úr hjólhestaspyrnu.
„Ég veit ekki hvernig mér tókst a
skora en það sem mestu málir skipti
að boltinn fór í netið,“ sagði Adebay
sem hefur þar með skorað fimm mör
meistaradeildinni á tímabilinu.
„Ég held að við höfum gert vel en
mættum mjög góðu liði sem erfitt va
að leika gegn. Þrátt fyrir hagstæð ú
verður seinni leikurinn erfiður en vi
erum á heimavelli og munum gera a
sem við getum til að komast áfram,“
sagði Adebayor.
Gallas frá í langan tíma?
Arsenal varð fyrri áfalli á 42. mínú
í leiknum í gær þegar William Galla
meiddist á vinstra hné eftir að hafa
lennt í samstuði við Giuseppe Rossi.
sene Wenger, knattspyrnustjóri Ars
al, sagði í gærkvöldi að útlit væri fyr
að meiðsli Gallas væru alvarleg. Svo
kann að fara að hann verði nokkrar v
ur frá keppni af þeirra völdum.
Manuel Almunia, markvörður Ars
al, heltist einnig úr lestinni snemma
leiks. Hans meiðsli eru ekki eins alv
leg en þó talið ósennilegt að hann ge
tekið þátt í síðari leik Arsenal og Vil
arreal á miðvikudaginn eftir viku.
A
Glæsimark Tógóbúinn Emmanuel Adebayor í þann mund að reka smiðshöggið á glæsimak sitt án þess að varnarmaður Villareal fái vörnum við komið.
Eru í erfiðri stöðu
Leikmenn Porto blésu til sóknar frá upphafi leiks á Old Trafford Ferguson segir
jafnteflið vera sanngjarnt Adebayor man ekkert eftir markinu Meiðsli hrjá Arsena
EVRÓPUMEISTARAR Manchester United
eru heldur betur í erfiðri stöðu eftir að
hafa aðeins náð jafntefli við Porto, 2:2, á
heimavelli sínum í fyrri viðureign lið-
anna í 8-liða úrslitum meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Arsen-
al stendur hins vegar nokkuð vel að vígi
eftir jafntefli, 1:1, í heimsókn sinni til
Villarreal á Spáni þar sem tveir leikmenn
liðsins fóru meiddir af leikvelli.
Í HNOTSKURN
»Manchester United ogPorto mætast aftur í Porto
á miðvikudaginn í næstu viku.
Mörkin tvö sem liðið gerði á
Old Trafford í gær geta reynst
dýrmæt.
»Manchester United hefurkomist í undanúrslit í meist-
aradeildinni síðustu tvö ár og
er ríkjandi Evrópumeistari.
»Porto varð síðast Evr-ópumeistari fyrir fimm ár-
um. Vann þá Manchester Unit-
ed í undanúrslitum.
ÞORGRÍMUR Þráinsson hefur ver-
ið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs
Vals í knattspyrnu. Hann tekur við
af Þór Hinrikssyni sem hætti í
haust. Þór þjálfar yngri flokka Vals.
Þorgrímur að-
stoðarþjálfari