Morgunblaðið - 08.04.2009, Qupperneq 3
ð velta þessum hlutum fyrir mér og
gott að losna við þann bagga sem ég
á öxlunum,“ sagði hinn 29 ára gamli
an en hann býður fyrrverandi sig-
um mótsins í mat á miðvikudags-
Það er hefð sem hefur ríkt lengi á
mótinu og ætlar Immelman að bjóða
llkjöt að hætti Suður-Afríkumanna
msu góðgæti. Tiger Woods bauð upp á
gara og mjólkurhristing ári eftir fyrsta
á Mastersmótinu árið 1997. Skotinn
yle kom á óvart árið 1989 þegar hann
at ári eftir sigurinn á Mastersmótinu
le bauð upp á slátur eða „haggis“ og
i allir kátir með matinn en fé-
urinn var víst góður. seth@mbl.is
a“
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2009
FRANSKI knatt-
spyrnumaðurinn
Sylvain Soumare
skrifaði undir
samning við
Grindavík í gær
en hann hefur
verið til reynslu
hjá félaginu und-
anfarnar tvær
vikur. Samning-
urinn gildir út
þessa leiktíð.
Sylvain Soumare er 26 ára örv-
fættur kantmaður og verður í bún-
ingi nr. 18. Hann lék síðast með
Olivais E Moscavide í portúgölsku
2. deildinni en fékk sig lausan und-
an samningi um áramótin. Áður lék
hann með SC Vinea Eisenstadt í
Austurríki en hann hóf ferilinn með
US Creiteil í Frakklandi.
Soumare er annar leikmaðurinn
sem semur við Grindavík á skömm-
um tíma en á dögunum gekk Þór-
arinn Brynjar Kristjánsson til liðs
við félagið.
Soumare lét ekki sitt eftir liggja í
gær þegar leikmenn Grindavíkur
tóku að sér að bóna bíla til fjáröfl-
unar á æfingaferð til Vest-
mannaeyja í vor. skuli@mbl.is
Fór beint í að bóna bíla
Sylvain
Soumare
KARLALIÐ Norð-
ur-Karólínu lagði
Michigan State í úr-
slitaleik bandaríska
háskólakörfuboltans
aðfaranótt þriðju-
dags, 89:72. Úrslita-
leikurinn fór fram í
Ford Field-
keppnishöllinni í
Detroit og voru
72.922 áhorfendur á
leiknum. Það má
segja að leikmenn Norður-Karólínu
hafi gert út um leikinn strax í upphafi
þegar liðið náði 30 stiga forskoti, 34:4.
Munurinn var 21 stig á liðunum í hálf-
leik, 55:34, og er það met í þessari
keppni. Ekkert lið hefur skorað fleiri
stig í fyrri hálfleik í úrslitaleiknum en
þetta er fimmti titill Norður-Karólínu í
þessari keppni frá upphafi og er liðið
þriðja sigursælasta liðið í þessari
keppni ásamt Indiana. Kentucky hefur
sjö sinnum sigrað en UCLA er með yf-
irburði á þessu sviði með 11 titla.
Michael Jordan, fyrrverandi leik-
maður Chicago Bulls, var að sjálfsögðu
á meðal áhorfenda en hann var í sig-
urliði Norður-Karólínu árið 1982 undir
stjórn Dean Smith.
seth@mbl.is
Norður-Karólína meistari
Roy Williams
þjálfari Norður-
Karólínu
Guðjón ValurSigurðsson
og samherjar í
þýska hand-
knattleiksliðinu
Rhein-Neckar
Löwen mæta Al-
freð Gíslasyni
og lærisveinum
hans í Kiel fjór-
um sinnum á einum mánuði. Liðin
mætast tvisvar sinnum í lok apríl í
undanúrslitum meistaradeildar
Evrópu í handknattleik. þriðja við-
ureignin verður í undanúrslitum
þýsku bikarkeppninnar hinn 9.
maí og fjórði leikurinn fer fram í
Kiel 16. maí í þýsku 1. deildinni.
Aðalsteinn Eyjólfsson hefur svosannarlega komið liði SV
Kassel á inn á sigurbraut síðan
hann tók við stjórn þess í desem-
ber. Kassel er nú komið í þriðja
sæti SV-riðils þýsku 3. deild-
arinnar í handknattleik og er að-
eins þremur stigum á eftir toppliði
riðilsins þegar fimm umferðir eru
eftir. Aðeins efsta lið riðilsins fer
upp í 2. deild á næstu leiktíð.
Viggó Sig-urðsson,
þjálfari hand-
knattleiksliðs
Fram í karla-
flokki, var í gær
úrskurðaður í
eins leiks bann á
fundi aganefnd-
ar HSÍ. Ástæða
bannsins er sú að Viggó fékk úti-
lokun eftir viðureign Akureyrar
og Fram í N1-deild karla á síðasta
sunnudag. Hann má þar með ekki
stjórna Framliðinu í fyrsta leik
þess við Hauka í undanúrslitum
úrslitakeppninnar sem hefst
fimmtudaginn 16. apríl.
René Vandereycken var í gærsagt upp starfi landsliðsþjálf-
ara Belgíu í knattspyrnu. Belgar
töpuðu tvisvar sinnum í síðustu
viku fyrir Bosníu í undankeppni
heimsmeistaramótsins og eru nú í
fjórða sæti fimmta riðils und-
ankeppninnar, ellefu stigum á eft-
ir Spáni sem forystu.
Jason Kidd, leikstjórnandi Dall-as Mavericks í bandaríska
NBA körfuboltanum, er kominn í
þriðja sætið yfir þá leikmenn sem
flestar stoðsendingar hafa gefið í
deildinni og ruddi þar með sjálfum
Magic Johnson úr vegi. Stoðsend-
ingakóngurinn er sem fyrr, John
Stockton. Kidd náði áfanganum í
leik gegn Phoenix á sunnudag, en
hann gaf alls 14 stoðsendingar í
leiknum. Er hann þá samtals kom-
inn með 10.142 stoðsendingar á
ferlinum, en í öðru sæti listans er
Mark Jackson, sem lék lengst af
með New York Knicks og Indiana
Pacers, með 10.334 sendingar.
Metið á John Stockton (Utah
Jazz) sem fyrr segir, með 15.806
stoðsendingar.
Fólk sport@mbl.is
Leikurinn var jafn og spennandi og Gauti Þor-
móðsson kom Íslandi yfir þegar tæpar 11 mínútur
voru liðnar, eftir undirbúning Ingvars og Emils
Alengaards. Kínverjar jöfnuðu rétt áður en fyrsta
lota var úti, 1:1.
Íslenska liðið var heldur sókndjarfara og hélt
áfram að sækja í annarri lotu. Bæði lið fengu
hættuleg færi og m.a. fékk Emil Alengaard sann-
kallað dauðafæri en náði ekki að skora.
Kínverjarnir voru öllu beittari í byrjun þriðju
lotu og skoruðu fljótlega, 2:1, en á þeim tíma voru
tveir Íslendingar í refsiboxinu og því fátt um
varnir. Eftir það náði íslenska liðið betri tökum á
leiknum en náði ekki að jafna fyrr en rúm mínúta
var til leiksloka. Í það skiptið voru Kínverjarnir
tveimur mönum færri, íslenska liðið nýtti sér það
til fullnustu og Egill Þormóðsson skoraði, 2:2, eft-
ir sendingu frá Ingvari.
Þá var framlengt og rétt eftir að íslenska liðið
átti hættulega sókn komst ein Kínverjanna inn
fyrir vörn Íslands og brotið var á honum. Dæmt
var víti og úr því skoruðu Kínverjar gullmark og
tryggðu sér með því sigurinn, 3:2.
„Ég er ánægður með að allir okkar menn
spiluðu vel og tóku þátt í leiknum en í svona móti
er mikilvægt að nýta allan mannskapinn. Ég er
líka ánægður með þann karakter í liðinu að jafna
svona seint í leiknum og það var sérstaklega gam-
an fyrir Egil að skora sitt fyrsta A-landsliðs-
mark,“ sagði fyrirliðinn Ingvar Þór Jónsson.
Ísland mætir Norður-Kóreu í öðrum leik sínum
á mótinu í dag. vs@mbl.is
„Vorum of mikið
í refsiboxinu“
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirliðinn Ingvar Þór Jónsson lagði upp bæði
mörk Íslands gegn Kínverjum í gær.
Ísland tapaði fyrir Kína á gullmarki, 3:2, í Serbíu
„HVORT liðið sem var hefði getað sigrað í dag en
við vorum helst til of mikið í refsiboxinu að þessu
sinni,“ sagði Ingvar Þór Jónsson, fyrirliði landsliðs-
ins í íshokkí, eftir að það tapaði, 2:3, fyrir Kínverj-
um í framlengdum leik í fyrstu umferð 2. deildar
heimsmeistaramótsins í Novi Sad í Serbíu.
Í HNOTSKURN
»Kínverjar fengu 2 stig fyrir sigurinn á Ís-landi, þar sem hann vannst í framleng-
ingu. Ísland fékk 1 stig þar sem staðan var
jöfn eftir venjulegan leiktíma. Annars eru
þrjú stig fyrir sigur í íshokkíleik.
»Ísland leikur við Norður-Kóreu í dag,Eistland á föstudag, Serbíu á laugardag
og Ísrael á mánudag.
»Reiknað er með að Eistland og Serbíaséu langsterkust en hin fjögur liðin berj-
ist um að halda sæti sínu í 2. deild. Efsta liðið
fer upp í 1. deild en neðsta lið fellur í 3. deild.
!"# $"%
&
'"# ("%
)*#
+
, *
+
.
&
$"# /"%
+
.
%
.
&&
,0
#1
"# '"%
2
+**#
4%
#1
+
#
5*#
6
"# '"%
#
7
6
.
#
8
9
9**
2**
:*
;
;
<
&
-
=
2**/>"%
# !" +
2
82"9**
?
2
2@
.
##
,&*#&
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Þetta er gríðarlega skemmtilegt
verkefni því með okkur í þessum
riðli í Bosníu eru heimamenn,
Serbía og Svartfjallaland og dóm-
ararnir koma sjálfsagt frá Króat-
íu,“ sagði Stefán í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Þetta verður
því mjög krefjandi verkefni sem
við erum að fara í,“ bætti hann
við.
Íslenska lið hélt til Kaup-
mannahafnar í gær, þaðan til Vín-
ar og loks til Bosníu þar sem mót-
ið hefst á föstudaginn og lýkur á
sunnudag.
„Við ætlum auðvitað að reyna
að koma liðinu áfram úr þessum
riðli, en þetta verður erfitt og við
gerum okkur grein fyrir því. Serb-
ar eru með sterkasta liðið – eitt af
þremur bestu í heiminum í þess-
um aldursflokki og léku til úrslita
við Rússa á síðasta móti. Svart-
fjallaland er með svipað lið og við
og ég held að Svartfjallaland hafi
unnið með einu eða tveimur mörk-
um síðast þegar þjóðirnar mætt-
ust í þessum aldursflokki,“ sagði
Stefán.
„Það er því alveg ljóst að þetta
verður hörkumót, en við erum
með fínt lið og ætlum okkur að
reyna að gera góða hluti.
Við byrjum á föstudaginn og
mætum þá Serbum, mætum síðan
Svartfjallalandi á laugardag og
Bosníumönnum á sunnudaginn, en
þá ætti að vera orðið ljóst hvaða
þjóðir komast áfram. Við lítum á
leikinn á laugardaginn sem úr-
slitaleik um hvaða lið komist
áfram með Serbíu,“ sagði Stefán.
Riðill þessi átti að vera leikinn
hér á landi en vegna efnahags-
hrunsins var hætt við það. „Út af
árferðinu urðum við því miður að
hætta við að sjá um þennan riðil.
Það var auðvitað mjög óheppilegt
í ljósi þess hvaða þjóðum við erum
með í riðli, en við ætlum okkur að
komast áfram úr riðlinum,“ sagði
landsliðsþjálfarinn.
Krefjandi en ætlum áfram
U19 ára kvennaliðið í Bosníu Leikur í „austantjaldsriðli“ um páskana
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í hand-
knattleik, skipað 19 ára stúlkum og
yngri, hélt í gær til Bosníu þar sem
liðið tekur þátt í undankeppni Evr-
ópukeppninnar. Stefán Arnarson,
þjálfari liðsins, segir verkefnið erfitt
en allir séu ákveðnir í að komast
áfram.
að
ir er
yor
rk í
við
ar
úrslit
ið
allt
“
útu
s
. Ar-
sen-
rir
o
vik-
sen-
a
var-
eti
ll-
AP
al
MARKVERÐIR:
Heiða Ingólfsdóttir, Haukum
Sigríður Ólafsdóttir, FH
Sunneva Einarsdóttir, Fram
AÐRIR LEIKMENN:
Aðalheiður Hreinsd., Stjörnunni
Anna Erlingsdóttir, KA
Elín Helga Jónsdóttir, Fylki
Ester Ragnarsdóttir, Stjörnunni
Hanna Rut Sigurjónsdóttir, Fylki
Indíana Jóhannsdóttir, Stjörnunni
Ingibjörg Pálmadóttir, FH
Karen Knútsdóttir, Fram
Rut Jónsdóttir, Holstebro
Sigríður Hauksdóttir, Fylki
Stella Sigurðardóttir, Fram
Unnur Ómarsdóttir, KA
Þorgerður Atladóttir, Stjörnunni
Þórhildur Gunnarsd., Stjörnunni
Íslenski landsliðshópurinn í Bosníu