Morgunblaðið - 17.04.2009, Page 3

Morgunblaðið - 17.04.2009, Page 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009 Arnar Grét-arsson, fyr- irliði knatt- spyrnuliðs Breiðabliks, hef- ur verið ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins fyrir kom- andi keppn- istímabil. Hann mun jafnframt leika áfram með lið- inu. Arnar, sem er 36 ára, er uppalinn hjá Breiðabliki og kom aftur til fé- lagsins á miðju sumri 2006 eftir langa dvöl erlendis sem atvinnumaður þar sem hann lék með AEK í Grikklandi og Lokeren í Belgíu. Hann á að baki 71 A-landsleik fyrir Íslands hönd og er næstleikjahæsti leikmaður Breiða- bliks í efstu deild með 128 leiki.    Unnur Sigurðardóttir var í gærráðin verkefnisstjóri landsliðs- mála hjá Frjálsíþróttasambandi Ís- lands til 1. júlí. Hún mun m.a. sjá um undirbúning og stjórn landsliðsins sem keppir á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1.-6. júní og í Evrópubik- arkeppninni í Sarajevo í Bosníu 20.- 21. júní.    Ísak Einarsson ætlar ekki að leikameð liði Tindastóls frá Sauðár- króki í úrvalsdeild karla í körfuknatt- leik á næstu leiktíð. Ísak var lyk- ilmaður Tindastóls á síðustu leiktíð en hann er á förum til Noregs.    Jón Orri Kristjánsson skrifaði und-ir tveggja ára samning við körfu- knattleikslið Þórs frá Akureyri á dög- unum. Jón Orri lék stórt hlutverk með liðinu á síðustu leiktíð en Þórs- arar féllu úr úrvalsdeildinni. Þórsarar leita nú að þjálfara fyrir liðið en Hrafn Kristjánsson hefur ákveðið að sækjast ekki eftir því starfi áfram. Hrafn hefur þjálfað liðið undanfarin fimm ár.    Mælingarsýna, að boltinn var á 102 km hraða þegar Christiano Ro- naldo skoraði fyr- ir Manchester United gegn Porto í leik lið- anna í meist- aradeild Evrópu í fyrrakvöld. Ronaldo skaut af 34 metra færi eftir 6 mínútna leik og tryggði liði sínu sæti í undanúrslitum meistaradeildarinnar þar sem það mætir Arsenal.    Liverpool ætlar að losa sig við hol-lenska landsliðsmanninn Ryan Babel í sumar að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum í gær. Liverpool keypti Babel frá Ajax fyrir tveimur árum og greiddi fyrir hann 11,5 millj- ónir punda en Hollendingurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi og er hun- dóánægður með stöðu sína hjá liðinu. Babel hefur fengið fá tækifæri eftir að Liverpool fékk spænska landsliðs- manninn Albert Riera til liðs við sig fyrir tímabilið en Hollendingurinn hefur aðeins sex sinnum verið í byrj- unarliðinu á tímabilinu.    MichaelLaudrup, þjálfari rússneska knattspyrnuliðs- ins Spartak í Moskvu, hefur verið látinn taka pokann sinn eftir sjö mánuði í starfi. Valeri Karpin, framkvæmdastjóri félagsins, mun taka við starfi hans. Liðið hefur aðeins unnið fjóra af fyrstu tíu leikj- um sínum í deildinni. Laudrup, sem gerði garðinn frægan hjá Bröndby, Juventus, Barcelona, Real Madrid, Ajax og danska landsliðinu sem leik- maður, hefur áður þjálfað lið Getafe á Spáni og Bröndby í Danmörku. Fólk sport@mbl.is Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „VÖRNIN var frábær hjá okkur og Óli [Ólafur Haukur Gíslason] fór á kostum í markinu. Þar lá stærsti mun- urinn á liðunum að þessu sinni,“ sagði glaðbeittur þjálfari Vals, Óskar Bjarni Óskarsson, eftir að lið hans hafði unnið öruggan sigur, 25:19, á HK í fyrstu rimmu liðanna í undanúrslitum Ís- landsmótsins í handknattleik karla í Valsheimilinu í gærkvöldi. „Auk varnarleiksins og markvörsl- unnar fór Fannar [Þór Friðgeirsson] hamförum í sókninni. Á heildina litið var þetta alvöru leikur í úrslitakeppni, spennan var mikil og varnarleikur beggja liða til fyrirmyndar,“ sagði Óskar ennfremur. Hann var ánægður með að hafa getað leyft Sigfúsi Sig- urðsson að hvíla sig í leiknum. Sigfús hefur ekki jafnað sig á meiðslum. Ósk- ar vonast til þess að hans menn haldi uppteknum hætti í næstu viðureign liðanna á mánudaginn og tryggi sér annan vinning og þar með sigur í rimmunni. „Ef við ætlum að verða meistarar þá verðum við að vinna leik- ina á útivelli,“ sagði Óskar Bjarni Ósk- arsson. Spennustigið var alltof hátt „Spennustigið var of hátt hjá okkur, menn ætluðu sér um of og fóru þar með langt fram úr sér,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK, sem skilj- anlega var ekki eins hress og kollegi hans hjá Valsliðinu. „Við gerðum alltof mikið af mistökum og nýttum illa opin marktækifæri. Varnarleikurinn var í lagi þótt við eigum að geta gert betur. En fyrst og fremst var það sókn- arleikurinn sem varð okkur að falli, þar vorum við staðir, náðum ekki að skapa okkur nógu góð færi. Á heildina litið þá fundum við aldrei taktinn í sóknarleiknum. Þá lék Óli Gísla okkur grátt í marki Vals. Framhjá því verður ekki litið,“ segir Gunnar og bætir við að hann geti lofað stuðningsmönnum HK að þeir sjái allt annað og betra lið þegar HK og Valur leiða saman hesta sína á nýjan leik á mánudagskvöldið í Digranesi. „Þá ætlum við okkur sig- ur.“ Vörn okkar var frábær og Óli fór á kostum um. Þrátt fyrir að lenda sex mörkum undir þá varð engin taugaveiklun í liðinu en einhvern veg- inn hrökk allt í gang hjá okkur við sýndum loksins hvað býr í liðinu,“ sagði stórskyttan Rúnar Kára- son, sem skoraði 9 mörk fyrir Framara á Ásvöll- um í gærkvöld. ,,Það er búið að vera gott hugarfar á æfing- unum undanfarið og ég vissi að við gætum vel tek- ið Haukana á góðum degi og ekki síst eftir að Haukarnir sögðu að við værum óskamótherjarnir. Það tókst að leggja þá að velli og það sást vel að við vorum liðið sem hafði meiri sigurvilja. Við ætl- um ekkert að staldra við þennan leik. Við ætlum að halda þessu striki og gera út um þetta einvígi í Safamýrinni á mánudaginn.“ gummih@mbl.is anmat hjá okkur“ „VIÐ getum þetta, það sýndi sig að þessu sinni. Síð- asti leikur okkar við HK fyrir 10 dögum var hrika- lega lélegur af okkar hálfu. Það kom ekki til greina að endurtaka það að þessu sinni,“ sagði Ólafur Haukur Gíslason, sem átti frábæran leik í marki Vals gegn HK í gær, varði 21 skot, þar af tvö víta- köst. „Vörnin var hreinlega frábær að þessu sinni og ekkert svipuð þeirri sem við lékum í síðasta leik, munurinn er alveg hrikalegur. Síðan falla hlutirnir með okkur að vissu leyti. Heimavöllurinn er sterkt vígi hjá okkur þar sem við höfum ekki tapað lengi og sú staðreynd hjálpar okkur mikið. En fyrst og fremst var það frábær varnarleikur okkar sem lagði grunninn að þessum sigri. Það er ekkert smá mál að halda hinu frábæra sóknarliði HK niðri með þeim afleiðingum að það skorar aðeins 19 mörk,“ sagði Ólafur og vildi ekki gera mikið úr eigin afrekum í leiknum og vísaði mest til þess hversu vel samherjar hans hafi leikið. Ólafur hefur glímt við meiðsli upp á síðkastið og var um tíma vafasamt að hann gæti tekið þátt í leiknum. „Ég er ekki orðinn góður ennþá, en ég bara get ekki sleppt þessu tækifæri og geri því allt til þess að leika því mig langar svo hrikalega að verða Íslandsmeistari,“ sagði Ólafur Haukur Gísla- son, markvörður og fyrirliði Valsmanna, eftir sig- urinn á HK í gær, 25:19. iben@mbl.is Langar svo hrikalega til að vinna Ólafur Haukur Gíslason Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is Ljóst var strax í upphafi leiks að taugar leikmanna voru þandar til hins ýtrasta og nokkuð var um mistök. Varnir beggja liða voru þéttar en hún var þéttari Valsmegin því markvörður þeirra, Ólafur Haukur Gíslason, var mættur til leiks á ný eftir meiðsli. Hann tók þau skot sem vörnin náði ekki og þar skildi á milli liðanna. Varnarleikur HK var einnig mjög góður en þegar kom að markvörslunni þá stóðu Kópavogsbúar gestgjöfum sínum talsvert að baki. Sem fyrr segir var varnarleikurinn í aðalhlutverki. Þess varð strax vart á markaskorinu, sem var lítið. Eftir 15 mínútna leik var staðan 5:3, Val í vil. Þrjú af fyrstu fimm mörkum HK voru skoruð úr vítakasti. Það fór vel á því að Fannar Þór Friðgeirsson innsiglaði þriggja marka forskot fyrir Val fáein- um sekúndum áður en leiktíminn í fyrri hálfleik var úti, staðan 10:7. HK-liðið náði sér aldrei á flug í síð- ari hálfleik í sókninni. Þar brugðust lykilmenn algjörlega. Sóknarleikurinn var nær allan leikinn mjög einhæfur og gekk aðallega á milli þriggja manna. Hornmennirnir voru varla með og línumaðurinn, Einar Ingi Hrafnsson, fékk engan frið til þess að athafna sig innan um varnarmenn Vals sem fóru á kostum. Valsliðið lék frábæran varnarleik og markvarslan var í takti við það þar sem Ólafur Haukur varði 21 skot. Sóknarleikurinn var brokkgengur en slapp vel til sökum þess hversu klaufalegir leikmenn HK voru. Þeir misstu boltann úr höndum sér, ann- aðhvort vegna kæruleysis eða van- hugsaðra skota og sendinga. Það kostaði gríðarlega orku og nú er spurningin hvort Valsmenn verða búnir að fylla á tankinn þegar kemur að næstu viðureign – á mánudag. HK-menn verða heldur betur að bæta sóknarleik sinn ætli þeir sér að ná fram oddaleik í þessu einvígi. Morgunblaðið/Golli Gegnumbrot Sigfús Páll Sigfússon leikmaður Vals brýst hér í gegnum vörn HK en Sverre Jakobsson er til varnar. Valsmenn sigruðu örugglega 25:19.  Sóknarleikurinn brást alveg hjá HK BIKARMEISTARAR Vals voru svo sann- arlega klárir í slaginn þegar úrslita- keppnin hófst í gær. Þeir voru á tánum frá fyrstu mínútu á meðan leik- mönnum HK brast þor og kjarkur þar sem reynslumenn brugðust í sókninni. Valsmenn tóku völdin í leiknum strax og innbyrtu sex marka sigur, 25:19. Staðan í hálfleik, 10:7, Val í vil. Valsmenn voru sannarlega klárir í slaginn 25-19 Vodafone-höllin, undanúrslit Íslandsmóts karla í handknattleik, fyrsti leikur, fimmtud. 16. apríl 2009. Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 6.3, 7.5, 10:7, 16:12, 19.14, 21:17, 25:19. Mörk Vals: Fannar Þór Friðgeirsson 11/2, Arnór Þór Gunnarsson 7/3, Sigurður Eggertsson 3, Ingvar Árnason 2, Heimir Örn Árnason 1, Orri Freyr Gíslason 1. Utan vallar: 6 mínútur. Varin skot: Ólafur Haukur Gíslason 21/2 (þar af 6 til mótherja). Mörk HK: Valdimar Fannar Þórsson 5/2, Gunnar Steinn Jónsson 3/3, Ólafur Bjarki Ragnarsson 3, Ragnar Snær Njálsson 3, Már Þórarinsson 2, Einar Ingi Hrafnsson 1, Ragnar Hjaltested 1, Sigurgeir Árni Ægisson 1. Utan vallar: 6 mínútur. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 6 (þar af 5 til mótherja), Björn Ingi Friðjónsson 8 (1 til mótherja). Dómarar: Ingvar Ragnarsson og Jónas Elíasson. Áhorfendur: Um 450, flestir þeirra stuðningsmenn HK. STAÐAN ER 1:0 FYRIR VAL VALUR-HK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.