Oddur - 01.01.1927, Blaðsíða 2
2
O D D U R
í ræðum ok vildi vera fyrir öllum öðrum,
sem vera átti fyrir helgi sakir hans ok ann-
arra hluta. Var för hans öll hin glæsiligsta.
Þess getr Sighvatr skáld í Þorvaldardrápu:
Þorvaldr vas und himnum.
Hér autan ferr
friðr fylkis niðr
fráneygr Dana;
Ok báru í byr
blá segl við rá
(dýr var dögglings för)
drekar landreka;
Skreið vestan viðr *
varr-glæstr, sás bar
út andskota
Austrlenins þaðan.
En, þeirs kvámu,
kilir, vestaq, til
of leið liðu
Limafjarðar brim. (Framh.)
Vér ætlum bráðum
að halda þíng.
Vér Oddur Sigurgeirsson kunngjörum öll-
um vorum flokksmönnum að vér ætlum að
halda sambandsþing áður en 13 tungl eru af
lofti: nákvæmar getum vér ekki kunngjört
boðskap vorn í þetta sinn, því svo stendur
á í flokk vorum eru eiginlega tveir flokkar.
Það erum vér Oddur Sigurgeirsson forseti og
utan um oss er nokkuð fjölmenn klikka hér
í Reykjavík, en flokkurinn er annars dreyfð-
ur um alt landið, til lands og til vatns, milli
fjalls og fjöru; saman stendur hann af klík-
um í kaupstöðum og sveitaþorpum, og sjáv-
arhúsahvirfingunni; út um landið eru margir
oss og vorri höfuðklikku mótsnúinni útaf
grallaramálinu, verðum vér því að útreikna
að hafa þingið á þeim tíma sem samgöngur
eru stirðastar svo ofsterku klikkurnar ekki
geti sent fulltrúa- Hér í höfuðbo'rginni eru
margar klikkur, sem rétt hafa til að senda
fulltrúa, en vér getum nú nokkurnvegin ráð-
ið yfir þessum höfuðstaðaklikkum: Vér send-
um út þá Gvönd smala og Gvönd geltir.
Björn digra,- Maríu mey, frú Eglu og Siggu
drotningu. Þetta fólk veit hvernig það á að
tala við lýðinn. Það kemur eins og stóð þess-
ir slúbbertar og bullur og kjósa þá sem vér
viljum að verði kosnir. Svo þegar þessu er
aflokið þá kalla eg saman mína yppurstu
Jaxla og segi þeim að svona skulum við hafa
það, eins og eg tilset, bara prófa, bara prófa.
Eg segi eg er forseti og eg prófa en við
ráðum allir. Við skulum, segi eg, ekki taka
til greina neinar tillögur frá Grallaramönnum,
við skulum útiloka þá frá öllum störfum úr
öllum nefndum. Við skulum takmarka mál-
frelsi þeirra. Við skulum reyna að fara svo
illa með þá að þeir hlaupi upp og geri skan-
dala. Þá rekum við þá út og þá losnum við
við þá. Húrra! Allir mínir menn hrópa húrra.
Eg geri ráð fyrir að Kaupi verði banginn,
og segi: töpum við ekki atkvæðum við þing-
kosningarnar næst, ef við missum þá úr
flokknum. Eg svara: »Við græðum atkvæði
ýmsir stórjaxlar og grænjaxlar og fínir menn
og bullarar og braskarar koma með okkur^
þegar þeir heyra að grallaralýðurinn er far-
inn«. Eg geri ráð fyrir að Kaupi verði orð-
laus og fallist á þetta. Þá getur verið að
Siggi sjóari nuddi saman lófunum og segi:
»Ef við ætlum að ná í milliklassamenn, þá
verðum við að módisera okkur eins og dansk-
urinn hefir gjört«. Þá lít eg bara á sjóarann
og segi: »Við skulum stryka út af stefnu-
skránni: þetta um þjóðnýtingu, fátækralög,
kaupmannavonsku og margt fleira og setjum
inn aptur að við keppum allir yppurstu jaxl-
ar eptir að verða þingmenn og ráðherrar. Eg
veit að Jónas vinur vor verður ekki reiður
þó við breytum þessu. Ef nú Flix stæði upp
og hvern fjandann varðar okkur um hvað