Oddur - 01.01.1927, Page 3

Oddur - 01.01.1927, Page 3
O D D U R 3 Jónas segir. En hvað segja verkakar)arnir«. Þá segi eg bara og reiði stafinn: Jónas gleypti hvalinn og hann gleypir okkur líka ef við látum hann ekki ráða með, en verkallana; við látum Gvönd smala fara út með ösku- fötu frá Maríu mey & Co. og sá ösku í aug- un á lýðnum og sjá þeir loka nokk augum og hlýða. Annars skal eg segja ykkur það, góðir flokksmenn, að hann Flix er eg mest í vandræðum með af öllu, hann rétt teimist með eins og taumþungur húðarjálkur frá Kristófer Grímssyni. Eg verð altaf að hafa eitthvað framundan nefinu á honum sem hann langar í og eg lofa ekki að hann fái, en neita heldur ekki. Svo þegar eg læt ann- an fá það, þá þarf eg að hafa eitthvað nýtt á takteinum handa honum að lykta af. Þetta tekur á taugarnar. Jæja, góðir hálsar. Það skal verða fyrirmyndar /þetta jaxlaþing. O, hvað eg hlakka til að kvelja minni hlutann, beita hann rangindum. Húrra! húrra! 1 nafni réttlætis, jafnréttis, friðar og kærleika. Húrra! Oddur S i g u r g e i r s s o n af Skaga, ritstjóri margra blaða, höf. margra bóka. Oddur S i g u r g e i r s s o n, bæjarmálapólitíkus. Palladómar um hina útvöldu fulltrúa hins íslenska verkalýðs. Amen. Mússulini er forseti verkamannanna á Italíu, Stauning í Danmörku, en á íslandi eru tveir, eg sjálfur, Oddur Sigurgeirsson formanns- sonur af Skaganum, yfir Harðjaxlflokknum, og Jón Baldvinsson yfir Alþýðuflokknum. í mínum flokk eru góðir og harðvítugir karlar, en Jón segir að í sínuni flokk séu slúbbertar og bullur. Hjalti Jónsson framkvæmdarstjóri bauð mér á þingið, sagðist hann eiga þar svo marga fulltrúa, að ekki mundi verða þar mikið við mér amast. Eg var því á þinginu sem gestur Hjalta vinar iníns, en ekki í boði Jóns Baldvinssonar kollega míns. Eg notaði vel tímann, þar sem eg hvorki hafði mál- frelsi né tillögurétt og skrifaði upp þessa palladóma sem hér fara á eftir. Eg er maður skygn með afbrigðum, eg sé bæði anda dauðra og lifandi manna sem áhrif hafa á þá menn, er eg horfi á, og um leið sé eg inn í hugskot þeirra og les eins og á bók fyrirætlanir þeirra sem fyrir áhrif- unum verða. Þetta mun heita á vísindamáli Spírisósahriflismus. Eg geri ekki ráð fyrir að mér vinnist tími til að lýsa öllum fulltrúum nákvæmlega. Þeir voru svo margir. Háttv. kollega minn, Jón Bald., sagði í þingsetn- ingarræðu sinni að þeir væru of margir, þeir væru að vaxa sér yfir höfuð, en við mig sagði hann í þingveislunni, að sig vantaði múla (múlbeysli) á alla þessa hausa, hann meinti þöngulhausa, því hann hló þegnr hann nefndi hausa; það er líka óþarfi að lýsa öll- um þingmönnum á þinginu. Það er nóg að taka það í kippum og þá verð eg að hafa það eins og við höfðum það í gamla dagana sjómenn- irnir, eg Oddur Sigurgeirsson, Stjáni blái og Sæmundur sífulli, að þegar við vórum búnir að draga allan aflann upp á seiluólar, þá gerðum við það stundum til að sýna hvað við værum fengsælir að.benda á helstu gol- þorskana og stórýsurnar og þá urruðum vér um leið og vér prófuðum. ' Þá byrja eg. Eg tek silfurbýantinn minn upp úr vasanum — eg keypti hann hjá Pétri Halldórssyni daginn sem hann til að styrkja vora göfugu reglu greiddi atkvæði með því að menn mættu drekka áfengi við hátíðleg tækifæri. Vasabókin mín er í skinnbandi og keypti eg hana í fyrra norður á Akureyri hjá Þorsteini Metúsalem, sem Jón kollega minn Baldvinsson ætlar að bjóða fram fyrir alþýðuflokksþingmann þar norðurfrá á næsta hausti. Svo byrja eg — sný mér að fyrsta gol- þorskinum, kollega mínum Jóni Baldvinsson. Poliska skoðun hans er sósastaunhriflismi. Hann mun vera ættaður úr Þórnesþing, dvaldi lengi á ísafirði, eins og Haraldur hinn munn- ræpi. Hann var ekki bráðgjör í æsku, hvorki

x

Oddur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Oddur
https://timarit.is/publication/765

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.