Morgunblaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
204. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
VINNUR
ÞÚ?
Leynist vinningur
Í pakkanum
þÍnum
Ef þú kaupir Homeblest
kexpakka gætir þú unnið
glæsilegan vinning
Þrjár 50.000 kr. úttektir
frá Intersport, Markinu eða Útilífi
Átján 15.000 kr. úttektir
frá Intersport, Markinu eða Útilífi
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
85
12
«VEISLA Í FARANGRINUM
LAXNESS VISSI AF
ÞÝÐINGARVILLUNNI
« EINKUNNAGJÖFIN
Atli Guðnason er
einn á toppnum
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ERLENDUR Gíslason, skiptastjóri
þrotabús Baugs Group, er að skoða
hvort forsendur séu fyrir því að
rifta kaupum Gaums, eignarhalds-
félags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
og fjölskyldu, á stórum skíðaskála í
Courchevel í Frakklandi.
„Við erum að skoða hvort hægt
sé að rifta sölusamningi [vegna
skálans]. Það má finna að því, hann
var ekki rétt verðlagður,“ segir Er-
lendur, en salan á skálanum frá
Baugi til Gaums
var hluti af „alls-
herjar uppgjöri“
milli Gaums og
Baugs, að sögn
Erlends.
Í lögum um
gjaldþrotaskipti
eru heimildir fyr-
ir því að rifta
gjafagerningum,
t.d. kaupsamn-
ingum sem fólu í sér eiginlegar gjaf-
ir ef kaupverð endurspeglaði ekki
raunvirði viðkomandi eignar eða ef
sala átti sér stað sex til tólf mán-
uðum áður en viðkomandi þrota-
maður fékk fyrst heimild til
greiðslustöðvunar.
Í tölvupósti sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, sem Jón Ás-
geir Jóhannesson sendi lögmanni
sínum, Einari Þór Sverrissyni, hinn
18 nóvember 2008, er fjallað um
skálann, en þar er Jón Ásgeir að
kynna „game-planið varðandi
skála“ fyrir lögmanninum. Þar lýsir
Jón Ásgeir því hvernig hann ætli, í
tveimur skrefum, að endurfjár-
magna skálann og selja hann. | 13
Skiptastjóri þrotabús Baugs Group skoðar kaupsamninga
Sölu á skíðaskála rift?
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
ALÞJÓÐLEGUR fjárfestingarsjóður
í umsjón Róberts Wessman hefur
keypt ráðandi hlut í bandaríska lyfja-
fyrirtækinu Alvogen. Fyrirtækið er
ein af afkastameiri lyfjaverksmiðjum í
Bandaríkjunum og var áður í eigu
lyfjafyrirtækisins Procter & Gamble.
Róbert verður stjórnarformaður fyr-
irtækisins.
Á undanförnum
misserum hefur
Róbert unnið að
uppbyggingu al-
þjóðlegs fjárfest-
ingarsjóðs með
það að markmiði
að fjárfesta í sam-
heitalyfjafyrir-
tækjum. Kaupin á
Alvogen eru fyrsta fjárfesting sjóðsins.
Í samstarfi við fyrrverandi stjórn-
arformann Alvogen og bandaríska fjár-
festingafélagið AFI Partners verður
unnið að frekari uppbyggingu félagsins
á alþjóðlegum lyfjamarkaði undir
stjórn Róberts. Lykilfjárfestir fyrir ut-
an AFI er Ghiath Sukhtian, stjórnar-
formaður Suktian International og Ta-
buk pharmaceutical, sem er annað
stærsta fyrirtækið í Sádi-Arabíu.
Róbert segir hugsanlegt að
ákveðnar stoðeiningar verði á Íslandi í
framtíðinni. Slík starfsemi krefjist vel
menntaðra starfsmanna og sé gjald-
eyrisskapandi. „Það væri því mjög
ánægjulegt að setja upp hluta af starf-
seminni hér þegar Alvogen færir út
kvíarnar frá Bandaríkjunum inn í Evr-
ópu,“ segir Róbert.
Um 400 manns starfa nú hjá Alvo-
gen í Bandaríkjunum og væntanlegar
tekjur á árinu 2009 eru um fimm millj-
arðar króna.
Með meirihluta í stjórn
bandarísks lyfjafyrirtækis
Alþjóðlegur fjárfestingarsjóður í umsjón Róberts Wessman kaupir í Alvogen
Róbert Wessman
Kaupa ráðandi hlut | 6
GRÓÐURELDUR á heiði austan við Kleifarvatn var slökktur í gær.
Slökkviliðsmenn höfðu barist við eldinn frá því kl. 19 á mánudag, en eftir
að aðstoð frá Þyrluþjónustunni barst tók slökkvistarf ekki nema eina og
hálfa klukkustund. Áður hafi Landhelgisgæslan neitað aðstoð. | 12
ÞYRLAN SKIPTI SKÖPUM Í SLÖKKVISTARFI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BALDUR, 72 tonna sjómæl-
ingabátur, gætir íslensku landhelg-
innar á meðan varðskipin tvö eru
bundin við bryggju vegna sum-
arstopps hjá Landhelgisgæslunni.
Varðskipin, sem eru 1.200 tonn að
stærð, hafa ekki verið á sjó síðan
10. júlí.
Auk almennrar löggæslu annast
Baldur fiskveiðieftirlit samkvæmt
samstarfssamningi við Fiskistofu.
Að sögn Hilmars Helgasonar hjá
Landhelgisgæslunni er áhöfn Bald-
urs þaulvön eftirlitsstörfum, en hún
hefur einnig starfað á varðskip-
unum. Þá er Baldur mjög vel tækj-
um búinn. »11
Sjómælingabátur gætir
íslensku landhelginnar
SÆNSK hjón,
sem ætluðu til
ítölsku eyjunnar
Capri, óku til
bæjarins Carpi á
Norður-Ítalíu
vegna þess að
þau stafsettu
nafn eyjunnar
rangt í GPS-
leiðsögutækið sitt. Um 650 km eru
á milli staðanna.
Hjónin vöktu mikla undrun bæj-
arbúa í Carpi þegar þau spurðu
hvar Blái hellirinn væri. „Capri er
eyja. Þau furðuðu sig ekki á því að
þau skyldu ekki hafa þurft að fara
yfir brú eða með báti,“ sagði einn
bæjarbúanna.
Rétt stafsetning mikilvæg
FJÁRLAGANEFND Alþingis
fundar í dag og er aðeins eitt mál á
dagskrá: Icesave. Guðbjartur
Hannesson, formaður nefnd-
arinnar, segir miða ágætlega.
Nefndin hefur fengið til sín öll sér-
álit efnahags- og skattanefndar en
frá utanríkismálanefnd vantar tvö
sérálit. Á mánudag er væntanleg
úttekt Hagfræðistofnunar Háskól-
ans. Reiknað er með að nefndin af-
greiði málið í næstu viku. »12
Icesave verður afgreitt úr
fjárlaganefnd í næstu viku