Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 9
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Gallabuxur á
ÚTSÖLU
Verð 5.500 kr.
st.
36-56
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ í mýr-
arbolta verður haldið í Tungudal
við Ísafjörð um verslunarmanna-
helgina. Keppt verður á laugardag
og sunnudag. Auk þess sem þétt
tónleikadagskrá verður báða dag-
ana í samstarfi við Innipúkann.
Skráning hefur farið fram úr
björtustu vonum og hefur þátttaka
aukist um rúmlega 100% á milli ára.
45 lið eru nú skráð til leiks, nokkuð
fleiri í karladeildinni eða 28.
Skráningu lýkur á morgun kl. 10.
Frekari upplýsingar um mótið má
finna á www.myrarbolti.com.
Morgunblaðið/RAX
Fótbolti Meiri drulla verður á vell-
inum á Ísafirði um helgina.
Barist í mýrinni
AÐ ÓSK for-
stjóra Landspít-
alans, Huldu
Gunnlaugs-
dóttur, hefur Ög-
mundur Jón-
asson
heilbrigð-
isráðherra veitt
henni leyfi frá
störfum til eins
árs frá 1. októ-
ber 2009. Heilbrigðisráðherra hef-
ur ákveðið að setja Björn Zoëga
sem forstjóra Landspítalans, frá 1.
október og þar til leyfi skipaðs for-
stjóra rennur út.
Forstjóri LSH í árs-
leyfi frá störfum
Hulda
Gunnlaugsdóttir
Á MORGUN, miðvikudag, kl. 15.30,
gengur Anna Þorbjörg Þorgríms-
dóttir með gesti um Nesstofu og
segir frá húsinu og fyrirhugaðri
uppbyggingu safnasvæðis Seltirn-
inga í Nesi. Nesstofa var byggð á
árunum 1761-1767 sem embætt-
isbústaður landlæknis og er nú eitt
af elstu húsum landsins. Hún er nú
hluti að húsasafni Þjóðminjasafns
Íslands. Nesstofa er opin alla daga í
sumar kl. 13-17 og er ókeypis inn.
Opið á Nesstofu
EVRÓPUMÁLARÁÐHERRA
Frakka, Pierre Lellouche, heimsæk-
ir Ísland í dag. Hann fundar með ut-
anríkisráðherra, Össuri Skarphéð-
inssyni, og Árna Þór Sigurðssyni,
formanni utanríkismálanefndar,
hittir alþingismenn, fræðimenn og
heimsækir fyrirtæki. Lellouche,
sem tók nýlega við ráðherraemb-
ætti, er þekktur fræðimaður á sviði
alþjóðasamskipta og varnarmála.
Ráðherraheimsókn
HINN 6. ágúst
nk., kl. 22.30
standa frið-
arsinnar fyrir
kertafleytingu til
að minnast
kjarnorkuárás-
anna á Hiros-
hima. Í ár mun
baráttufólk aftur
hittast til að minnast atburðarins
og setja fram kröfur um framtíð án
stríðs, hernáms og kjarnorku-
ógnar.
Kertafleytingarnar munu fara
fram við Tjörnina í Reykjavík, og í
Lystigarðinum á Egilsstöðum og á
Akureyri og ef til vill á fleiri stöð-
um á landinu.
Kertafleyting gegn
kjarnorkuógn
STUTT
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
ÁSGEIR Jóns-
son, for-
stöðumaður
greiningardeildar
Kaupþings, hefur
skrifað bókina
Why Iceland?
How the World’s
Smallest Country
Became the Melt-
down’s Biggest
Casualty sem kom út í Bandaríkj-
unum á mánudaginn. Bókin er fyrst
og fremst skrifuð fyrir hinn ensku-
mælandi heim sem Ásgeir segir að
hafi mikinn áhuga á efnahagshruninu
á Íslandi og allt aðra sýn á það sem
hér gerðist en Íslendingar sjálfir. Ís-
lensk útgáfa bókarinnar er þó fyr-
irhuguð.
„Það er engin tilviljun að banda-
rísku fjárfestingabankarnir lenda í
vandræðum á sama tíma og bankarnir
hér, enda módelið ekkert ósvipað. Af
þessum fimm stóru fjárfestinga-
bönkum í Bandaríkjunum er enginn
þeirra fjárfestingabanki lengur, þeir
hafa verið teknir yfir eða þeim
breytt.“ Spurður hvort módelið hafi
þá ekki verið gallað segir Ásgeir að
módelið hafi virkað vel síðustu tíu árin
en vissulega hafi það reynst ákaflega
illa þegar fjármálakreppan skall á.
„Bankarnir brugðust að sumu leyti
við gagnrýninni 2006. Allir bankar
lengdu í útgáfu skuldabréfa og fóru í
innlánasöfnun. Það sem við gerðum
okkur ekki grein fyrir var hinsvegar
kerfisbundin áhætta í íslenska kerf-
inu. Íslenska fjármálakerfið ein-
kenndist af þremur stórum fjárfest-
ingabönkum og það er dálítið sér-
stakt, líka það að þeir voru í svona
mikilli erlendri starfsemi.“
Spurður hvort ekki hefðu átt að
kvikna viðvörunarljós í greiningar-
deildum, vegna þensluáhrifa slíkrar
starfsemi í umhverfi þar sem fjár-
magn var ódýrt og til staðar, segir Ás-
geir það hárrétt. „Ég get sýnt þér
greiningar frá 2006 þar sem við sögð-
um að fasteignamarkaður væri að
fara að lækka, en svo hækkaði mark-
aðurinn í staðinn í eitt ár til viðbótar.
Einnig varaði ég við áhættunni af því
að taka gengisbundin lán. En ég skal
alveg viðurkenna að við vorum með-
virkir hvað hlutabréfin varðar og við
hefðum mátt vera miklu gagnrýnni á
markaðinn. Þetta er hinsvegar tíu ára
tímabil sem er blómatímabil sem end-
ar með algerri bólu. Við hefðum átt
að vera miklu, miklu gagnrýnni en við
vorum og ég tek á mig fulla ábyrgð
hvað það varðar. Greiningarnar á
fasteignamarkaði, efnahagslífi og
gjaldeyrismarkaði sem greiningar-
deildin gerði standa alveg fyrir sínu –
hlutabréfin, þar tókst ekki eins vel
til.“
Lært af mistökunum
Ásgeir segir bókina ekki beinlínis
vera persónulegt uppgjör sitt heldur
sé áherslan lögð á hvaða lærdóm er-
lendar þjóðir geta dregið af vandræð-
um Íslands. „Við virðumst sveiflast á
milli þjóðrembu og minnimáttar-
kenndar. Í bólunni hugsuðum við
okkur sem við værum einstök, en í
vetur að við værum spillt þjóð og
slæm. En hvað útlendingana varðar
er þetta, sem gerðist hér, hluti af því
sem er að gerast hjá þeim.“
„Það var reynt að koma í veg fyrir
hrun hlutabréfamarkaðarins. Það var
dregið úr veðköllum í stærri stöðum
2008 og undanfarinn, eins og ég nefni
í bókinni, er að 2006 fengu öll þessi ís-
lensku fjárfestingafélög lán frá al-
þjóðlegum bönkum. Þau tóku allt það
sem þau höfðu grætt á hækkun hluta-
bréfa og veðsettu það, með lánum frá
bestu bönkum í heimi. Þessi félög
breyttust þá og t.d. FL Group ákvað
þá bara að taka yfir Glitni. Þetta er
það sem veikir okkur allverulega því
síðar þegar hlutabréfaverðið fer að
lækka þá lenda öll þessi félög í veð-
köllum hjá erlendum aðilum og þá
byrja vandræðin – og það er árið
2008. Að einhverju leyti fara bank-
arnir í það að reyna að bjarga þessum
félögum. Staðan 2008 held ég að hafi
verið sú að þessir stóru viðskiptavinir
voru orðnir kerfislega mikilvægir.
Það er það sem var aðalvandamálið.“
Voru menn búnir að mála sig út í
horn? „Algjörlega“ segir Ásgeir.
„Þrátt fyrir að við héldum að við vær-
um komin með alþjóðlegan hluta-
bréfamarkað þá var það bara þannig
að það átti enginn útlendingur neitt á
markaðnum, nema aðeins í Össuri.
Síðan þegar við lendum í áfalli og
landið hættir að fá fjármagn, hver á
þá að kaupa hlutabréfin og með
hvaða fjármögnun? Það má segja að
efnahagsreikningur bankanna hálf
frjósi við þetta. Það má gagnrýna
bankana að hafa leyft sér að lána út á
þessar stöður. Þetta er það sem skap-
aði hin raunverulegu vandamál.“
Stóru viðskiptavinirnir
voru kerfislega mikilvægir
Íslenska bankakerfið var fast í vítahring kerfislægrar áhættu og meðvirkni
Krufið Ásgeir Jónsson hefur krufið íslenska efnahagshrunið frá sjónarhóli
innanbúðarmanns í bók sinni sem gefin var út á mánudaginn á ensku.
Í HNOTSKURN
»Íslenska hagkerfið var orðiðþjakað af kerfislegri áhættu
og hlutabréfabólu sem að miklu
leyti var fjármögnuð með gjald-
eyri.
»Hlutabréfin voru að lang-mestu leyti í eigu Íslendinga
og því var kaupendahópurinn
afmarkaður þegar bréfin fóru
að lækka og því hrun fyrir-
sjáanlegt.
»Bankar freistuðust til aðreyna björgun þegar veðköll
erlendra aðila fóru að berast.
Ásgeir Jónsson
ORA, niðursuðuverksmiðja, hefur
ákveðið að innkalla kjötbollur í
brúnni sósu í 850 g dósum vegna
hugsanlegs galla við framleiðslu
vörunnar.
Samkvæmt tilkynningu sem fyr-
irtækið sendi frá sér í gær, hefur
komið upp galli í einni af fram-
leiðslulotum vörunnar.
Í samræmi við gæða- og öryggis-
stefnu Ora nær innköllunin þó til
allra 850 g dósa af vörunni, óháð
framleiðslulotu. Strikamerkið sem
auðkennir innkallaðar dósir er
5690519020412, að því er segir í til-
kynningu.
Skilist í næstu verslun
„Þeir sem hafa í fórum sínu
stærri dósina af Ora kjötbollum í
brúnni sósu (850 g), eru beðnir um
að skila henni til næstu verslunar,
við fyrsta hentuga tækifæri. Ekki
er skilyrði að vörunni sé skilað
þangað sem hún var upphaflega
keypt. Innkallaðar dósir fást bættar
í öllum verslunum sem selja Ora,“
segir í tilkynningunni frá niður-
suðuverksmiðjunni.
Ora innkall-
ar kjötbollur
í brúnni sósu
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
50% afsláttur
af öllum vörum
ÚRVAL AF YFIRHÖFNUM
Á ÚTSÖLUNNI
Laugavegi 63 • Sími 551 4422
Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli