Morgunblaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Frábærar grindur
Ný sending af grindum komin í hús.
Bestu grindurnar á markaðnum.
Til í Húsasmiðjunni, sama verð og á
www.liba.is
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is,
www.theta.is
Nudd
Temple Massage
Whole Body Healing Massage based
on Tantric principles. For men,
women and couples. Tel. 698 8301.
www.tantra-temple.com
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 34.900. Hljómborð frá kr.
8.900. Trommusett kr.649.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í
símum 561 6521 og 892 1938.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Íslenskur útifáni
Stór 100x150 cm. 3.950 kr.
Krambúðin, Skólavörðustíg 42,
Strax Laugarvatni, Strax Mývatni,
Strax Seyðisfirði, Strax Flúðum,
Úrval Selfossi, Úrval Egils-
stöðum, Hyrnan Borgarnesi,
Strax Búðardal.
Óska eftir
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull
nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is , í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
Ýmislegt
TILBOÐ
Vandaðiðr herraskór úr leðri á til-
boðsverði kr. 3.500.-
Margar gerðir og litir.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
NÝTT - NÝTT - NÝTT
Teg. 10253 - mjúkur og yndislegur,
svaka flottur í BCD skálar á kr.
3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-
.
Teg. 42026 - vel fylltur og stækkar
þig um númer í BC skálum á kr.
3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bátar
Strandveiðimenn
Fiskiker gerðir 300, 350, 450
og 460. Línubalar 70 og 80 l.
Allt íslensk framleiðsla í hæsta
gæðaflokki.
www. borgarplast.is
Völuteig 31,
Mosfellsbæ,
s: 561 2211.
Bílaþjónusta
!
"
#
$%&
'
( ) * +
!
"#$ %#&'( )
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
VANTAR ÞIG PENING?
Ertu með gullskartgrip, gullpening
eða annað úr gulli sem þú vilt selja?
Komdu til okkar á Laugaveg 76 og
þiggðu gott staðgreiðsluverð.
Uppl. í s. 695 2804.
Atvinnuauglýsingar
•
Upplýsingar gefur
Sigurbjörg í síma
862 1286
Blaðbera
vantar á
Siglufjörð.
Á Hólaveg og
Hlíðarveg
Blaðbera
vantar
Au pair / maid
Au pair/maid wanted in Oslo Norway. Active
family seeks friendly and responsible Au
pair/maid for fulltime job in our 2 homes. Will
live 50 minutes away from Oslo in beautiful
surroundings by the sea.
Please contact Ingrid tel +47 41454497.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar
þakklæti og djúpri virðingu fyrir
Sigurveigu. Guð blessi ykkur öll og
minningu hennar.
Sólveig og
Jón Hjörleifur Jónsson.
Elsku amma Veiga. Það er sárt
að kveðja. Upp vakna þó fallegar
minningar um þig þegar ég hugsa
til þín. Hversu þú og afi voruð okk-
ur barnabörnunum alltaf svo góð er
það fyrsta sem kemur mér í huga.
Ávallt var maður velkomin á ykkar
heimili og ekki sjaldan sem allur
skarinn fékk að gista. Þá voru sett-
ar dýnur um allt gólf og vel búið um
mann. Afi sagði síðan heimatilbún-
ar sögur og fór með bænir.
Ekki voru það eingöngu barna-
börnin sem sóttu mikið í ykkur
heldur öll fjölskyldan og vinir ykk-
ar sem var nú ekki lítill hópur. Mik-
ill gestagangur einkenndi ykkar
heimili og þú alltaf með á könnunni
og með því. Ég sakna þess að koma
í heimsókn í Hvassleitið til þín.
Hitti þá alltaf einhvern úr fjölskyld-
unni og fleira skemmtilegt fólk.
Við fórum í mörg ferðalögin sam-
an og alltaf jafn gaman að hafa
ömmu og afa með. Við eyddum sam-
an nánast hverju aðfangadags-
kvöldi. Þið afi sunguð þá ætíð með
þegar messan byrjaði kl. 18. Finnst
mjög tómlegt að heyra ekki í ykkur
á þessum tíma á aðfangadag. Þið
sunguð við hvert tækifæri. Það var
sama hversu margir komu saman í
söng þá fór aldrei framhjá neinum
ef þú varst meðferðis í hópnum með
þína kröftugu rödd.
Ég hef alltaf verið mjög stolt af
að eiga þig að sem ömmu. Afburða
glæsileg kona að utan sem innan
með farsælan söngferil að baki.
Uppáhaldslagið mitt með þér er Í
dag skein sól. Finnst svolítið erfitt
að heyra það núna þessa dagana en
það mun lagast með tímanum og
brátt mun koma bros í stað táranna.
Ég er bara þakklát fyrir að hafa átt
svona góða ömmu og afa sem áttu
mikinn þátt í að móta mann í lífinu
með mikilli nærveru sinni og til ein-
stakrar fyrirmyndar sem mann-
eskjur. Gleði er myndin sem ég sé
þegar ég hugsa til þín og ykkar
saman og þá er ekki erfitt að brosa.
Elsku amma, ég mun sakna þín.
Það er huggun að hugsa til þess að
þú sért komin aftur til afa og Kötu
systur þinnar. Veit að þau taka vel á
móti þér.
Guðrún Theodóra Hrafnsdóttir.
Elsku hjartans Veiga mín.
Í rauninni veit ég ekki hvað ég á
að segja við þig að leiðarlokum.
Það eru svo ótal, ótal minningar
sem koma upp í hugann í sambandi
við okkar kynni, þú varst sú besta
og yndislegasta manneskja sem ég
hef kynnst.
17 ára gömul hitti ég ykkur Óla
fyrst, mér var tekið opnum örmum,
það var eins og að ganga inn í gleði-
ríki. Í smátíma bjuggum við hjá
ykkur á Grettisgötunni, Lárus, ég
og Óli, fyrsta barnabarnið, það sem
þið dekruðuð við hann. Þó að við
Lárus höfum skilið talaði ég alltaf
um þig sem Veigu tengdamömmu
enda verður þú alltaf í hjarta mínu.
Ólafur þinn hefur tekið vel á móti
stóru ástinni sinni með gítarspili og
þið getið tekið upp þráðinn á ný
með söng og spili.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Öllum í fjölskyldunni sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Guðný (Gullý).
Sigurveig Hjaltested
Fleiri minningargreinar um Sig-
urveigu Hjaltested bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Árið er 1962.
Níu ára gamall Eyja-
peyi fær að fara í sveit, eins og það
var kallað.
Áfangastaðurinn er Neðri-Dalur
undir Eyjafjöllum. Þetta var ein af
þessum stóru stundum í lífi mínu.
Neðri-Dalur átti eftir að vera heimili
mitt á sumrin mörg næstu sumur.
Þar bjuggu hjónin Ingólfur Ingvars-
son og Þorbjörg Eggertsdóttir. Ing-
ólfur lést 1995, en Þorbjörgu kveðj-
um við nú í dag. Heimilið var stórt, en
þau munaði ekkert um að bæta
„strákpjakki“ í hópinn. Sumrin í
Neðri-Dal voru ógleymanleg og dvöl-
in þar reyndist mér ómetanleg í líf-
inu.
Þorbjörg reyndist mér góð
„fóstra“ og strengurinn, sem þar var
Þorbjörg
Eggertsdóttir
✝ Þorbjörg Eggerts-dóttir fæddist í
Dældarkoti í Helga-
fellssveit 26. maí 1919.
Hún lést á dvalarheim-
ilinu Kirkjuhvoli 15.
júlí síðastliðinn.
Útför Þorbjargar
fór fram frá Stóra-
Dalskirkju, V-
Eyjafjöllum, laug-
ardaginn 25. júlí síð-
astliðinn.
bundinn, slitnaði
aldrei. Móttökurnar í
lok söluferða á Hvols-
völl, eftir að þau voru
komin þangað, voru
yndislegar, spjallað um
gamla tíma yfir kaffi og
með því, sem aldrei
skorti. Eftir að Ingólf-
ur féll frá og Þorbjörg
flutti á Kirkjuhvol á
Hvolsvelli urðu sam-
verustundirnar færri,
en alltaf var tekið á
móti mér með sama
brosinu.
Í maíbyrjun sl. átti ég dagstund
með Þorbjörgu og Tryggva syni
hennar á Kirkjuhvoli. Enn voru mót-
tökurnar stórkostlegar, ég leystur út
með gjöfum, til að bæta í sjóð minn-
inganna.
Þrátt fyrir áföllin í lífi hennar var
alltaf horft fram á veginn. Þorbjörgu
var alltaf annt um tengslin við Gils-
bakkafólkið úr Eyjum.
Um leið og ég sendi afkomendum
hennar mínar innilegustu samúðar-
kveðjur vil ég þakka Þorbjörgu fyrir
allt í minn garð og minna.
Blessuð sé minning Þorbjargar
Eggertsdóttur.
Guðni Friðrik Gunnarsson
(gamall kúarektor í Neðri-Dal).