Morgunblaðið - 24.10.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.10.2009, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009 Verkefnastjóri eða tæknilegur söluráðgjafi Sensa leitar að nýjum starfsmönnum í samhentan og metnaðarfullan hóp þar sem allir eru tilbúnir að leggja mikið á sig, sýna frumkvæði og veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu. Sensa er stærsti sölu- og þjónustuaðili Cisco sam- skiptabúnaðar á Íslandi og býður viðskiptavinum sínum upp á úrvals ráðgjöf, þjónustu og búnað er lýtur að netlausnum og IP-samskipta- lausnum. Hjá Sensa starfa allir helstu sérfræðingar landsins á því sviði og er lögð mikil áhersla á vönduð og fagleg vinnubrögð. Tæknilegur söluráðgjafi Við óskum eftir kraftmiklum einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund til að sinna sölu á IP-samskiptalausnum. Helstu verkefni: - Ráðgjöf og sala á tæknilegum lausnum til fyrirtækja - Samskipti og samstarf við tæknideild varðandi lausnir og afhendingu lausna Viðkomandi verður að vera lipur í samskiptum, fljótur að tileinka sér nýjungar, geta starfað sjálfstætt sem og í hóp og hafa mikinn áhuga á tæknilegum lausnum. Gott vald á íslensku og ensku, bæði í tal- og ritmáli, er nauðsynlegt. Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur. Verkefnastjóri Við óskum eftir einstaklingi sem er skipulagður, snillingur í samskiptum og áhugasamur um tæknilegar lausnir. Helstu verkefni: - Ábyrgð og utanumhald um samningamál - Skipulagning og eftirfylgni verkefna - Samskipti við birgja, sölu- og fjármáladeild Viðkomandi verður að hafa hæfileika til að skilja tækni- legar lausnir og áhuga á nýjungum, geta starfað sjálf- stætt sem og í hóp, hafa frumkvæði og ástríðu. Gott vald á íslensku og ensku, bæði í tal- og ritmáli, er nauðsynlegt. Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur. STARFIÐ ÞITT? Hjá Sensa er lögð mikil áhersla á velferð starfsmanna, góðan starfsanda og hvetjandi og skemmtilegt starfsum- hverfi m.a. með því að veita starfsmönnum tækifæri til að vaxa með þjálfun og símenntun. Umsóknir skal senda á starf@sensa.is. Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir, fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 3. nóvember. SNÝST UM SAMSKIPTAHÆFILEIKA OG ÞJÓNUSTULUND Kletthálsi 1 - 110 Reykjavík, Sími 414 1400 - Fax 414 1440, www.sensa.is Laus staða grunnskólakennara við Grunnskólann á Suðureyri Vegna fæðingarorlofs er laus 100% staða kennara við Grunnskólann á Suðureyri. Um er að ræða umsjónarkennara í 3. – 5. bekk. Kennarinn þarf að geta hafið störf ekki síðar en 1. desember og mun ráðningin standa út skóla- árið. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2009. Allar frekari upplýsingar veita Magnús S. Jónsson, skólastjóri í síma 450-8395 og á netfanginu msj@snerpa.is og Kristín Ósk Jónasdóttir, grunnskólafulltrúi í síma 450-8000 og á netfanginu: grunnskolafulltrui@isafjordur.is Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lofthæfi- og skrásetningardeild Starfssvið eftirlitsmanns Starfið felst einkum í eftirliti með lofthæfi loftfara og vottun og eftirliti með stjórnkerfum og fyrirtækjum sem annast viðhaldsmál. Menntunar- og hæfniskröfur Krafist er menntunar verkfræðings eða flugvéltæknis. Fimm ára reynsla af viðhaldi og/eða viðhaldstjórnun loftfara er æskileg, eða meistaragráða úr háskóla tengd lofthæfi loftfara. Ennfremur er þekking á hönnun loftfara og gögnum þeirra nauðsynleg og að viðkomandi þekki vel til úttekta og gæðakerfa. Viðkomandi þarf að hafa góð tök á íslensku og ensku. Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega fram- komu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að geta sýnt af sér frumkvæði í starfi, vera skipulagður í verkum sínum og unnið undir miklu álagi. Launakjör taka mið af viðeigandi kjara- samningum opinberra starfsmanna. Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum. Frekari upplýsingar um starfið gefa Ómar Þór Edvardsson deildarstjóri í lofthæfi- og skrásetningardeild (sími 569 4235 /omar@caa.is) og Einar Örn Héðinsson framkvæmdastjóri flugöryggissviðs (sími 569 4187 /einarh@caa.is). Vinsamlegast sendið umsóknir til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 7. nóvember nk. merktar: „Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns“ Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála inn- anlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa. Bókari/skrifstofustjóri Points Systems óskar eftir að ráða bókara/ skrifstofustjóra í fullt starf, áhugasamir sendið umsókn á netfangið points@points.is . Upplýsingar veittar í síma 892 9877. Sveitarfélagið Árborg auglýsir stöðu forstöðumanns dagdvala Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir forstöðu- manni dagdvala á Selfossi. Sveitarfélagið rekur tvær dagdvalir, annars vegar almenna dagdvöl í Grænumörk 5 og hins vegar dagdvöl fyrir einstaklinga með minnisskerðingar í Vallholti 38. Í starfinu felst:  Yfirumsjón með rekstri og faglegri stjórn dagdvalanna  Ábyrgð á starfsmannahaldi  Vinna við gerð fjárhagsáætlunar í samvinnu við verkefnisstjóra félagslegra úrræða  Samvinna við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og aðrar stofnanir og/eða samtök er snerta málefni aldraðra  Mat á þjónustuþörf aldraðra  Þátttaka í stefnumótun í málefnum aldraðra Menntun og hæfniskröfur:  Háskólapróf á félagsvísinda- eða heilbrigðis- sviði  Reynsla af störfum með öldruðum æskileg  Reynsla af stjórnun æskileg  Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og skipu- lagshæfni  Hæfni í mannlegum samskiptum Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga. Starfið hæfir jafnt körlum sem konum. Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist skriflega til Guðlaugar Jónu Hilmarsdóttur, verkefnis- stjóra félagslegra úrræða, Fjölskyldumiðstöð Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfossi, eigi síðar en 9. nóvember nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri félagslegra úrræða, gudlaugjona@arborg.is eða í síma 480 1900 á símatíma mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13.30 – 14.30. Fjölskyldumiðstöð Árborgar veitir íbúum sveitarfélagsins þjónustu á sviði félags-, fræðslu-, íþrótta-, forvarna- og menningarmála með það að markmiði að efla velferðarþjónustu sveitarfélagsins og skapa fjölskylduvænt samfélag. Umsækjendum er bent á að kynna sér hei- masíðu sveitarfélagsins, http://www.arborg.is, þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um þjónustu og stefnu sveitarfélagins í málaflokkum sem tengjast fjölskyldunni með einum eða öðrum hætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.