Morgunblaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 7
Íþróttir 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009 BJARNI Þór Viðarsson, U21-landsliðsmaður í knattspyrnu, var enn á ný á skotskónum með liði sínu Roeselare þegar það tapaði 3:2 á heimavelli gegn Club Brügge í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Gestirnir kom- ust í 2:0 í fyrri hálfleiknum en Bjarni Þór minnkaði muninn snemma í seinni hálfleiknum með marki úr vítaspyrnu. Skorar mark í öðrum hverjum leik Bjarni Þór hefur nú gert þrjú mörk í þeim sex leikjum sem hann hefur spilað fyrir Roes- elare eftir að hann kom til félagsins frá Twente í Hollandi í lok ágúst. Þrátt fyrir að hafa staðið í efsta liði deildar- innar í gær er lið Roeselare sem fyrr í neðsta sæti deild- arinnar með sex stig, fjór- um stigum á eftir næsta liði sem er Moeskroen. Bróðir Bjarna Þórs, Arn- ar Þór, var á ný í byrj- unarliði Cercle Brügge eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik en liðið gerði 1:1 jafntefli við Kortrijk. Arnar lék allan leikinn en jafn- teflið þýðir að hann er ásamt félögum sínum með þrettán stig fjórum sætum fyrir ofan Bjarna og félaga. sindris@mbl.is Bjarni Þór skoraði gegn toppliðinu Bjarni Þór Viðarsson ÞRÁTT fyrir að vera með aðra höndina í gifsi var landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason að vanda í byrjunarliði OB þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Randers á útivelli í dönsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Í samtali við Ekstra Bladet segir Rúrik ekki annað hafa komið til greina en að spila enda renni víkingablóð í æðum hans. „Höndin er aum. Jú, ég finn til en þetta er nú bara höndin. Ég er nú einu sinni fótbolta- maður,“ sagði Rúrik við vefmiðilinn sem ger- ir mikið úr því að Rúrik sé nú orðinn ástfang- inn af íslenskri snót sem ku heita Ragnheiður og vera laganemi og ljósmyndafyrirsæta. „Ég er í skýjunum yfir þessu. Þetta er ný- skeð, við höfum bara verið saman í mánuð en við þekktumst vel þar áður,“ sagði Rúrik. Jafnteflið þýðir að OB heldur efsta sæti deild- arinnar en liðið er nú með eins stigs forskot á FC Kö- benhavn og Esbjerg, lið Gunnars H. Þorvaldssonar. Gunnar hefur reyndar ekkert leikið með Esbjerg upp á síðkastið og var ekki með þegar það vann 2:0 sigur á Sölva Geir Ottesen og fé- lögum í SönderjyskE í gær. sindris@mbl.is Ástfanginn Rúrik áfram á toppnum Rúrik Gíslason Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is MEÐ tapi á Anfield í gær hefðu vonir Liverpool um deildarmeistaratitil á þessari leiktíð verið orðnar ansi litlar en sé mið tekið af spilamennskunni sem liðið sýndi gegn Englandsmeist- urunum er ljóst að enginn skyldi af- skrifa það í titilbaráttunni. Þar fóru Suður-Ameríkanarnir og miðjumenn- irnir Javier Mascherano og Lucas Leiva fremstir í flokki með magnaðri baráttu sem reyndar kostaði þann fyrrnefnda rautt spjald undir lok leiksins. Brasilíumanninum Lucas hefur ein- mitt gengið erfiðlega að heilla stuðn- ingsmenn Liverpool eftir að hann kom til félagsins frá Gremio í heima- landinu árið 2007. Gárungarnir hafa jafnvel haft á orði að Benítez hafi fundið eina Brasilíumanninn sem ekki búi yfir knatttækni. Eftir brotthvarf Xabi Alonso til Real Madrid í sumar virðist hins vegar vera kominn tími fyrir þennan 22 ára gamla miðjumann að sanna sig og hann átti frábæran leik á Anfield í gær eins og reyndar fleiri leikmenn Liverpool enda var sig- urinn verðskuldaður og rúmlega það. „Leikmennirnir sýndu frábæran karakter og stuðningsmennirnir voru sem okkar tólfti maður. Hugarfarið var gott og það voru allir að vinna saman, alveg frá markverðinum og til aftasta stuðningsmanns í stúkunni,“ sagði Benítez eftir leikinn en stuðn- ingsmenn Liverpool sköpuðu ótrúlega stemningu í stúkunni og sungu dátt allan leikinn. Þegar Michael Owen kom svo inná sem varamaður í seinni hálfleiknum, á sinn gamla heimavöll, mátti sjá borða með áletrunum á borð við „hvar varst þú þegar við vorum í Istanbúl?“ og „eitt sinn United- maður, aldrei Liverpool-maður,“ auk þess sem baulað var hressilega á þennan fyrrverandi leikmann Liver- pool. Með sigrinum komst Liverpool í 5. sæti og er liðið sex stigum frá toppliði Chelsea sem vann 5:0 stórsigur á Blackburn en United er í 2. sætinu, tveimur stigum á eftir þeim bláu. Að- spurður um titilvonir Liverpool nú er Benítez pollrólegur. „Við megum ekki missa okkur yfir þessum úrslitum, við eigum leik strax á miðvikudaginn. En við sýndum og sönnuðum að við erum betri en fólk heldur. Leikmennirnir svöruðu mörg- um spurningum með þessum leik,“ sagði Spánverjinn ánægður með þennan þriðja sigur Liverpool í röð á United. Kollegi hans hjá United, sir Alex Ferguson, var ósáttur við Andre Marriner dómara leiksins en einnig spilamennsku sinna manna. „Ég er vonsvikinn yfir spila- mennskunni, sér í lagi í fyrri hálfleik. Þetta var slæmt af okkar hálfu. Seinni hálfleikurinn var mun skárri en við töpuðum vegna einnar eða tveggja mikilvægra ákvarðana,“ sagði Fergu- son sem vildi meina að andrúmsloftið á Anfield hefði haft sitt að segja. „Það er erfitt fyrir dómarann að höndla það. Ég veit ekki hvort það var vegna skorts á reynslu en hann mun alla vega læra af þessum leik,“ sagði Ferguson. „Betri en fólk heldur“  Pressunni létt af Benítez með sigri Liverpool á Man. Utd  S-Ameríkanarnir magnaðir á miðjunni  Owen fékk óblíðar viðtökur á gamla heimavellinum Reuters Góður Rio Ferdinand og Nemanja Vidic áttu í mestu vandræðum með að halda aftur af Fernando Torres í gær. Í HNOTSKURN »Liverpool hefur nú unniðþrjá síðustu leiki sína við Manchester United í ensku úr- valsdeildinni en liðið vann báða leikina á síðustu leiktíð. »Fernando Torres gerðifyrra markið í gær og er þar með markahæstur í deild- inni með 8 mörk ásamt Didier Drogba og Darren Bent. Eftir erfiða fjögurra leikja taphrinu er óhætt að ætla að leikmenn Liv- erpool hafi létt nokkurri pressu af Rafa Benítez knattspyrnustjóra sínum með 2:0 sigrinum á Man- chester United í stórleik helg- arinnar í ensku úrvalsdeildinni. Hinn frábæri framherji Fernando Torres gerði gæfumuninn með góðu marki á 65. mínútu en David N’Gog gulltryggði svo sigurinn í uppbótartíma. Nemanja Vidic, varn- armaður United, fékk skömmu áður að líta rauða spjaldið þriðja Liver- pool-leikinn í röð. Grétar RafnSteinsson landsliðsmaður í knattspyrnu var enn á ný á varamanna- bekknum hjá Bolton þegar liðið lagði Everton að velli í gær, 3:2, í tíundu umferð ensku úrvalsdeild- arinnar. Grétar, sem var fastamaður í liðinu á síðustu leiktíð og stóð sig með mikilli prýði, hefur aðeins byrj- að tvo af ellefu leikjum tímabilsins og í öðrum þeirra var honum skipt af leikvelli í hálfleik.    Hermann Hreiðarsson á enn viðmeiðsli að stríða og gat því ekki leikið með botnliði Portsmouth sem gerði markalaust jafntefli við Hull á útivelli. Hermann hefur ekk- ert getað leikið með Portsmouth á þessari leiktíð en hann ku vera að skríða saman og gæti verið orðinn klár í slaginn þegar liðið mætir Wig- an um næstu helgi.    Jóhannes KarlGuðjónsson var allan tímann á varamanna- bekknum þegar lið hans Burnley tapaði sínum fyrsta heimaleik á þessari leiktíð í ensku úrvals- deildinni gegn Wigan, 3:1. Nýlið- arnir, sem misstu markvörðinn Bri- an Jensen meiddan af leikvelli á 15. mínútu, höfðu unnið fjóra fyrstu heimaleiki sína, þar á meðal Eng- landsmeistara Manchester United.    Kári Árnasonþótti sýna mikið víkingseðli í leik með liði sínu Plymouth gegn lærisveinum Roy Keane hjá Ips- wich í ensku 1. deildinni í knatt- spyrnu um helgina. Kári fékk harkalegt oln- bogaskot í gagnaugað frá Jon Wal- ters leikmanni Ipswich sem opnaði djúpan skurð en hann neitaði að láta skipta sér út af heldur lét vefja höf- uð sitt og spilaði allan leikinn. Paul Sturrock stjóri Plymouth var ósátt- ur við að Walters skyldi ekki rekinn af leikvelli. „Dómarinn hefur ekki séð atvikið. Ég ætla alla vega að leyfa honum að njóta vafans. En ég er undrandi á að aðstoðardómarinn skyldi ekki sjá það. Hann er með svakalegan skurð við augað,“ sagði Sturrock. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli.    Arsenal tapaði dýrmætum stigumí toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið missti niður tveggja marka forystu gegn West Ham í gær og gerði 2:2 jafntefli. Jöfn- unarmarkið kom eftir umdeildan vítaspyrnudóm. Fólk sport@mbl.is „ÉG hlakka til loka leiktíðarinnar og að geta þá komist héðan,“ sagði Garðar í viðtali við sjón- varpsstöðina TV2 þar sem hann gagnrýnir stjórnarmenn félagsins harðlega. Hann er ósátt- ur við að hafa ekki fengið nýjan samning í vor eins og búið var að lofa honum en núverandi samningur hans rennur út í lok yfirstandandi leiktíðar. Stjórnarmenn Fredrikstad báru fyrir sig skort á fjármagni en skömmu síðar festi félagið þó engu að síður kaup á tveimur nýjum leik- mönnum. „Stjórnarmennirnir komu til mín, sögðust ætla að gefa mér nýjan samning og tilkynntu það svo á fréttamannafundi. Mánuði síðar sögðust þeir ekki geta það vegna þess að það væru ekki nægir peningar til staðar. Þeir hafa ekki komið vel fram við leikmennina sína,“ sagði framherjinn stæðilegi sem er einnig afar ósáttur við að hafa svo ekki verið leyft að fara til enska 2. deild- arfélagsins Hartlepool þegar það sóttist eftir að fá hann í sínar raðir nýverið. Fredrikstad tapaði í gær fyrir Molde á heima- velli, 2:1, og kom Garðar þá inná sem varamaður á 80. mínútu. Hann krækti í vítaspyrnu skömmu síðar sem færði Fredrikstad mark. Þessi úrslit þýða hins vegar að Fredrikstad endar í þriðja neðsta sæti deildarinnar og þarf að spila við lið úr 1. deild um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Garðar kom til Fredrikstad frá Val í ársbyrjun 2007 en var þar áður hjá KR og Stjörnunni. Hann hefur skorað 17 mörk í 56 leikjum í norsku úr- valsdeildinni. sindris@mbl.is „Hlakka til að komast héðan“  Garðar Jóhannsson ósáttur hjá Fredrikstad  Fékk ekki að fara til Englands Garðar Jóhannsson landsliðsmaður í knattspyrnu er hundóánægður með stjórnarmenn norska úr- valsdeildarfélagsins Fredrikstad, sem hann hefur verið á mála hjá frá ársbyrjun 2007. Garðar Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.