Víkingur - 01.08.1928, Blaðsíða 7
VÍKINGUR
7
Árnason, en hættur nú og er
gamlaður.
Bíldudalur
þar var áður kaupmaður Pétur
Thorsteinsson (óskilgetin sonur
'Porsteins bakara á Isafirði), Pétur
átti margar smáskútur og verzl-
aði mikið, þótti hann harður við
heldri menn en vinsæll al hinum
minni mönnum, á undan honum
vcrzlaði {>ar Hákon Bjarnason,
hann var faðir Ingibjargar ping-
konu, Lárusar dómara og hans
bræðra. Par var Glaumbær, par
bjó verkaíólkið, ferðalangar og
flakkarar, sjómenn og svallarar,
var par ofj dansað á laugardags-
kvöldum og höfðu margir komið
við hjá Sigvalda áður en j^eir fóru
á ballið (Sigvaldi er nú löngu
hættur að selja brennivín, hann
hefur um langt skeið verið ráðs-
maður hjá lélögum mínum á
Ingólfshvoli), oft var farið seint
að hátta í Glaumbæ, sérstaklcga
danskvöldin og kom pá oft fyrir
að fólk viltist á rúmum.
Við Arnarfjörð er Selárdalur
•{jar var Lárus prestur faðir Ólafs
lagaprófessors, var hann ríkur
maður eins og prestum ber að
vera. Á móti Selárdal eru Lokin-
hamrar par bjó Gísli fáðir nafna
míns sem nú er fógeti á Isafirði.
III. KAFLI
Dýrafjörður.
Inn á Dýrafjörð, fegursta og
frægasta fjörðin á Vesturlandinu
vogum skorna! Par bjó. Gísli
Súrsson á Sæbóli í Haukadal og
Auður Vésteinsdóttir, sú er göf-
ugust er allra kvenna er petta
land hefur bygt, par fæddist upp
Snorri Goði er raunar ekki hét
Snorri heldur Þorgrímur og var
Porgrímsson. Par var Matthías
kaupmaður, sá er nú telur pen-
inga í Sambandshúsinu. Pá ér
Pingeyri par komum við inn og
sýndi ég par skegg mitt og bún-
ing og var fólkið mjög hrifið af
hvoru tveggja, Par bjó Þorvaldur
Gneisti (sjá Gíslasögu Súrssonar),
par komu í mínu ungdæmi
Amerískir fiskimenn frá Boston,
voru peir á lúðuveiðum og drukku
mikið brennivín og voru kvenn-
samir með afbrigðum, fjölgaði
pví mikið fólki um tímabil par
í firðinum pó ekki flyttist pað að
úr öðrum byggðarlögum, allmikið
dofnaði yfir firðinum eftir að
Ameríkumenn hættu sínum veiði-
skap, en svo kom Björn J. Blön-
dal pangað í hittið fyrra og
hresti nokkuð upp á sakirnar og
stofnaði par verkamannafélag. _
Við Ijarðarbotninn er bær sem