Síldin - 06.03.1939, Page 2
2
S f’L D I N
án tiilíts til mismunandi gæða.
Annað var ekki hægt, þar eð eng-
inn grundvöllur fyrir réttlátri og
samræmdri skiftingu á mismunandi
greiðslu, fyrir mismunandi gæði,
var til, áður en matslögin k^must á.
Sú tilhögun að greiða jafnt fyrir
alla vöru, varð til þess að draga
úr áhuga og jafnvel getu þeirra
saltenda, sem vildu vanda sig
best, með því að aðrir komust upp
á að framleiða Iágmark gæðameð
minni kostnaði. Voru dæmi til, að
menn leituðust við að afla sér við-
skiftavina — og tókst það í sum-
um tilfellum — með því að gefa í
skyn og sýna í verki, að þeir
væru ekki neinir »ofstækismenn«
í kröfum til fersksíldargæða. —
Þeir sem vildu vanda sig síðastl.
sumar, fengu nú nokkra vernd í
flokkuninni og hinu mismunandi
verði, og hinir miður vandlátu
hlutu, pyngju sinnar vegna, að
gjöra það sem hægt var, til að
hækka vöruna í flokki. Þaö erefa-
laust, að hefði sömu reglu verið
fylgt í ár (1938) og tíðkast hefir
undanfarið: að salta síldina úr-
kastlítið, þá lægi hér nú mikill
hluti matjessíldarinnar, dæmdur
ósamningshæfur og óseljanlegur.
Nú höfum við reynslu fyrir því,
að hægt er að breyta hraklegu
rýrðarári í meðalár. Sú ályktun
liggur þá beint við, að hægt muni
að breyta meðalári i afbragðsár.
Verður það vonandi verkefni ykkar
næst. En hvernig ■ sem árferðið
verður, þá hafið þetta hugfast:
Val fersksíldarlnnar er aðalatrlð-
ið. Fersk og feit sild er ágœtis-
vara og verður það áfram, nema
hún sé skemmd í verkuninni.
Mögur síld eða gölluð er óhœf,
eða léleg ttara, og batnar ekki
hvaða snillíngar sem handleika
hana.
Nú verð eg að snúa mér frá
þessu ánægjulega efni og að öðru,
sem ýmsum mun lika ver að
heyra, en það eru skemmdimar,
sem komið hafa fram á nokkrum
söltunarstöðvum.
Þó þessar skemmdir séu miklu
minni en orðrómur meinfýsinna
íTi- ’ina vill úr gera, eru þær þó
iJfinnanlegar fyrir þá, sem hafa
oioið verst úti. Eg vil taka það
skýrt fram, að það sem eg segi
hér um skemmdirnar, er ekki gert
til að draga fram ávirðingar þeirra,
sem fyrir skemmdum urðu í þetta
sinn. Það mun óþarfi, þeir gleyma
varla sinni lexíu, heldur er það
vegna hinna, sem sluppu í þetta
sinn, en sem sumir hverjir hljóta,
vegna skeytingaleysis, fyr eða síð-
ar að verða hart úti.
Aðalskemmdirnar eru þá: Sœta,
súr og þrái. — Orsakir þessara
skemmda eiga að vera öllum
síldarmönnum kunnar, en eg ætla
samt að rifja upp nokkrar stað-
reyndir:
Þar sem »sæta« oft er frumstig
skemmda og snýst upp í »súr« og
á stundum í »stækju«, þá verður
að telja sömu orsakir allra þessara
stiga. Aðeins athugist að »sæta«
er algengust i sviljalausri síld, en
»súr« eða »stækja« í sviljasíld.
Talsvert af skemmdu síldinni
ber með sér, að hún hefir verið
óhæfilega gömul, eða af öðrum
orsökum orðin skemmd — t.d. sjó-
slegin, rignd, hrakin — fyrir sölt-
un. Um þetta er það að segja, að
á meðan svona síld er tekin til
söltunar, hafa sjómenn ástæðu til
að álíta, að þeir saltendur sem það
gera, séu þeim velviljaðastir og
hinir vandlátu þvert á móti. Sem
betur fer, er nú að myndast það
almenningsálit, að þetta sé hið
versta skemmdastarf.
Mestöll skemmda síldin sýnir,
að henni hefir verið illa vöðlað
í saltinu. Það útaf fyrir sig getur
valdið súr í síld, sem hefði slopp-
ið, ef vel hefði verið vöðlað. AI-
gengur galli á skemmdu tunnun-
um er vond »niðurlagning« (röð-
un) síldanna. Það útaf fyrir sig
getur valdið stórskemmdum, þótt
annað sé í lagi. Þó að þessir tveir
gallar hafi sennilega ekki verið
algengasta aðalorsökin til skemmd-
anna í þetta sinn, þá hafa þeirátt
sinn þátt í hvernig fór. Þetta eru
einnig algengustu gallarnir á þeirri
síld, sem óskemmd var talin, og til
stórlýta og ófarnaðar, þótt ekki
ylli gjörskemmdum. Þessu veldur
aðallega þrennt, en hvert útaf fyrir
sig er fullnægjandi:
1. Viljaleysi eða skilningsleysi
saltandans, stuðningsleysi hans við
verkstj, eða eftirlitsmanninn, og
knífni í útbúnaði stöðvanna. Hvað
segið þið t. d. um þann saltanda,
sem ætlast til, að sami maður sé
verkstjóri og eftirlitsmaður á stöð
með 60 stúlkur, og aftekur að
verkstjórinn taki sér svo mikið sem
einn aðstoðarmann við eftirlitið
meðan á söltun stendur? Eða þar
sem ekki voru til bjóð( til að vöðla
síldinni í, heldur voru notaðír
sömu stamparnir, sem hreinsað var
í ? Eða saltendur, sem í áheyrn alls
fólksins atyrða eftirlitsmanninn —
e. t. v. án saka — og þar með
eyðileggja alla virðingu hans hjá
fólkinu.
2. Ódugnaður og getuleysi eftir-
litsmanna og vevkstjóra.
Eg kom á stöð í sumar. Þar
voru öll bjóð svo full, að salt og
síld rann út á planið, vöðlun var
eftir þessu og niðurröðun sömu-
Jeiðis. Eg stóð þarna góða stund
og svipaðist eftir eftirlitsmannin-
um, og loks sá eg hann, þar sem
hann sat upp á tunnu og var að
tala við kunningja sinn. Á annari
stöð sá eg eftirlítsmanninn ekkert
annað gera en leggja botna
fyrir stúlkurnar. Þær voru búnar
að koma því svo fyrir, að hann
hafði nóg að gjöra við það. Hvor-
ugur þessara eftirlitsmanna er í
L. S., og eru svona áberandi dæmi
sjaldgæf, sem betur fer. Verkstjóra
og stöðvarstjóra veit eg um, sem
telja sér allt annað óviðkomandi
en það, að síldin komist í tunn-
urnar, hvernig sem það er gjört,
og grípa jafnvel fram í nauðsyn-
legar ráðstafanir eftirlitsmannanna,
oft án annars skiljanlegs tilgangs
en að gjöra sig vinsæla hjá þeim,
sem í augnablikinu telja sig græða
á hroðvirkninni, sem í þessum til-
fellum er kölluð »nauðsynlegur
hraði«.
Hroðvirknin, sem er afleiðing
klaufsku og óverkhyggni, veitir þó
síður en svo hraða; enda get eg
sannað það hvenær sem er, að á
þeim söltunarstöðvum, þar sem
vinnan er vönduðust, þar er líka
vinnuhraðinn mestur.
3. Þá kemur að því, sem ávallt
er haft á oddi, þagar fundið er að
vinnubragðagöllum i síldarverkun,
bæði þeim sem nefndir eru hérað
framan og öllum þeim ótöldu, sem
sé: kunnáttuleysi, óhlýðní og ótrú-
mennsku kvenfólksins. Því miður
er víst mikið hæft í þessu, en
undarlega finnst mér þeir, sem
mest orð hafa á, gera lítið til að
breyta þessu. Engan hefi eg þó
heyrt halda því fram að þetta eigi
að vera svona, og þeim sem telja
allt ómögulegt, tökum við, sem
höfum séð framfarirnar á bestu
stöðvunum, ekkert mark á. Við að
bera vinnugæðin á stöðvunum
saman við stjórnsemi yfirboðar-
anna, kemur það i ljós, að þar sem
eru færir og stjórnsamir yfirmenn
og húsbóndi þeirra veitir þeim góða
aðstöðu, þar eru vinnubrögðin best.
Eg hika því ekki við að haldaþvi
fram og undirstrika það, að yfir-
mennirnir, og sérstaklega saltend-
urnir, eiga aðalsökina á þvi sem
aflaga fer á þeirra eigin stöðvum.
Það sé fjarri mér að mæla því
kvenfólki bót, sem þráttfyrir góða
tilsögn og aðstöðu við vinnuna,
engum sönsum eða framförum
tekur. Er vonandi, að þær sem
svo hegða sér, annaðhvort sjálfar
viðurkenni réttleysi sitt til að spilla
vörunni, sem þeim er trúað fyrir
og borgað fyrir að vinna við, eða
að aðrir, sem hlut eiga að máli,
sjái ráð til að losna við óvöndun
þeirra.
Eg hefi nú gerst orðmargur um
það, sem eg þó ekki álít aðal-
orsök skemmdanna í þetta sinn,
smáatriði sem sumir kalla; hefði
eg þó þurft að tína til fleiri atriði,
en rúm er takmarkað. Mér virðist
sem það hafi minni áhrif á afkomu
atvinnuvegarins, þótt nokkur hundr-
uð tunna eyðileggist árlega, heldur
en hitt, hve þeirri vöru sem út er
ílutt er ábótavant, samanborið við
það sem hún gæti verið. Þess-
vegna varð mér svona tíðrætt um
»smáatriðin«.
Aðalorsök stórskemmda af sœtu
og súr er saltleysi, eða ýmsar
rangar aðferðir, sem verka á sama
hátt. í sumar var það ekki óalgeng
skemmdaorsök, að sama saltmagn
var notað í svilfulla og seinveidda
síld og snemmveidda og tóma.
Það vildi til, að saltskamtur var
aukinn seinni partinn, en þá var
síldin eyðilögð með því að ápakka
hana eftir jafnlangan tíma og
snemmveidda síld, án þess að at-
huga, að síldin var ekki og gat
ekki verið orðtn saltrunnin. Það
kom fyrir að snurpusíld, sem var
þykkri en reknetasíld, eins svilfull
og söltuð sama daginn og með
sama saltmagni og reknetasíld, á
sömu stöð, slapp við skemmdir,
en reknetasíldin eyðilagðist. Það
S í L D I N
Ritstfóri 09 ábyrgOarmaOur;
Baldvin Þ. Kristjánsson
AfgreiOslumaOur:
Leó Jónsson.
Siglufjaröarprentsmiðja.
var af því, að fyrst lagðist heldur
meira af reknetasíldinni í tunnurn-
ar, heldur en af hinni, svo var
reknetasíldin látin standa og siga
í ca. 20 klst. en hin ekki lengur
en 6—7 tíma. Afleiðingin: talsvert
meira af síld í sama saltmagni —
minna saltmagn = oflítið salt.
Þessum skemmdum' hefði þó
verið hægt að afstýra, með þvi að
athuga hvað var að gerast í tunn-
unum áður en síldin átti að vera
orðin saltrunnin, eða í sumum til-
fellum við ápökkun. En þetta var
vanrækt, þrátt fyrir það, að til at-
hugunar á síðastveiddu síldinni,
sem mest skemmdist, var nógur
tími, söltun var lokið á þeim tíma,
sem aðgerðin þurfti að fara fram.
Það er varla ómaksins vert að
geta um þá ásökun, sem borin
hefir verið á síldarmatið (sérstak-
lega á mig), að heimtuð hafi ver-
ið svo stíf pökkun, að síldin hafi
skemmst af því. Það er satt, að
við heimiuðum stífa pökkun, mér
er ekki kunnugt um að út hafi
verið flutt linpökkuð tunna í ár,
hitt gátum við ekki ráðið víð, að
fyrir kom að ofpökkuð tunna fór
stundum til Póllands.
Mér er ekki kunnugt neitt dæmi
um það, að ef síld var orðin salt-
runnin og örugg áður en hún var
pökkuð, að hún hafi súrnað ein-
göngu af of stifri pökkun. Enda
eru skemmdu tunnurnar, sem eru
lítið brot af allri framleiðslunni,
engu meira pakkaðar en sem út
er flutt og var óskemmt.
Þá kem eg að þráaskemrndun-
um. Það er nú orðið viðurkennt,
að þrái kemur eingöngu af pœkil-
leysi. Skemmdir af pækilleysi bera
ávallt vott um óafsakanlegan
trassaskap, nema um sé að kenna
óhæfum eða óbætanleguin tunn-
um. Þrái er einhver hvumleiðasta
skemmd, sem fyrir kemur á allri
matvöru og ekki sist i síld. Eg tel,
að útflutta matjessildin hafi verið
óvenju laus við þráa í ár, en nóg
er i þvi sem skemmdist, og ekki
held eg að því verði mótmælt, að
á öðrum tegundum síldar sé þrá-
inn algengur og til stórskammar
og skaða.
Eins og allir L. S. menn vita,
hefir á síðustu árum verið lögð
sérstök áhersla á vöndun matjes-
síldar og hefir óneitanlega orðið
miklu meiri framför á verkun
þeirrar síldartegundar en öðrum.
T. d. sýndi það sig með suma
af þeim, sem tóku síldverkunar-
prófið í sumar, að þótt þeir gætu
Framh. á 6. síðu.