Vitinn - 25.08.1939, Blaðsíða 1
I. ÁRG.
VESTMANNAEYJUM 25. ágúst 1939.
1. TBL.
Framtíðar samgöngutæki.
Skeyti, gripið úr lausu lofti:
„Pétur sunclkappi syndir frá
Eyjum til meginlandsins næst-
næstu þjó&hátíð. Tekur vænt-
anlega farþega“.
Ef nokkuð er að marka þessa
frétt (sem útvarpið myndi
sennilega kalla „1/2-opinbera"),
er hér um merkilega samgöngu-
bót fyrir okkar einangraða
byggðarlag að ræða.
Að vísu má búast við, að flug-
ferðir verði þá orðið nokkuð
reglulegar milli lands og Eyja,
en sjálfsagt mun hitt verða ör-
uggara. Reyndar hafa sumar
aðrar áætlanir Péturs slegið út
bæði „Súðina“ og „Selfoss“ —
eins og t. d. þegar hann ætlaði
að sækja lundann í Bjarnarey
hérna um árið, en eigi að síður
ættu menn að gefa gaum að
þessari áætlunarferð, því að oft
eru skipin yfirfull og erfitt að
fá pláss, einmitt um þjóðhátíð-
ina.
Þetta ætti heldur ekki að taka
business frá Flugfélaginu, því
búast má við, að það hafi líka
nóg að starfa, þegar þar að
kemur. —
*
— Bara að ég væri svo ríkur,
að ég gæti keypt mér bíl.
— Guð almáttugur! Hvað ætl-
ar þú að gera með bíl?
— Hver hefir sagt, að ég ætli
að kaupa bíl?
FORSPJALL
Með þessu blaði hefur „Vit-
inn“ göngu sína. Það er ætlun-
in, að hann verði fyrst og fremst
skemmtirit, sem komi reglulega
út, annanhvern föstudag.
Hér hafa mörg gamanblöð
verið gefin út, misjöfn að gæð-
um og innihaldi, en öll hafa þau
átt vinsældum að fagna á þeirra
stuttu ævi.
Það er eindreginn ásetning-
ur ,,Vitans“ að reyna að lifa vel
og lengi — en tíminn sker úr,
hvemig til tekst. Aðallega mun
„Vitinn“ flytja skemmtiefni og
skopmyndir, og gera góðlátlegt
gaman að ýmsu því, er honum
þykir gefa tilefni til slíks. Vill
hann reyna að forða mönnum
frá óvitaskap öllum eða fávita,
án þess þó að spila sig sem
nokkurn ofvita. Þætti honum
gaman að geta orðið nokkurs
konar oddviti meðal blaða hér,
eins og Ástþór er í bæjarstjórn-
inni.
„Vitinn“ mun þó ekki ein-
göngu verða gamanblað, heldur
mun hann líka flytja fræðandi
efni, einkum um Eyjarnar. T. d.
mun hann hafa fastan Eyjadálk,
þar sem birtast munu ýmsir
fróðleiksmolar úr sögu Eyj-
anna.
Óskum vér svo eftir langri og
farsælli samvinnu við Eyja-
skeggja.
V irðingarfyllst,
tJtg.