Vitinn - 25.08.1939, Qupperneq 3
Föstudaginn 25. ágúst 1939.
3
í Herjólfsdal.
Lag eftir Oddgeir Kristjánsson.
Hittumst, bræður í HerjólfscLal,
hátíðarkvöld — æskcm á völd.
Fyllum háreistan fjallasal
fagnaðarsöng, nóttin er löng.
Við drekkum glæsta guðaveig,
glaðir tæmum lífsins skál í einum teig.
Vonir rætast við söngvaseið,
sorgir og þraut líða á braut.
Gleðin brosir nú björt og heið.
Bjargfuglahjal ómar í Dal.
Á Fjósakletti brennur bál;
böndum ástar tengir nóttin sál við sál.
Árni úr E y jum.
Fegurðarsamkeppni.
Hver er maðurinn?
Persónusaga Vitans.
Sigurjón í Gefjun.
Hann var fyrr meir toll-
heimtumaður, en snerist síðar
til betri vegar. Er hann nú einn
mestur virðingarmanna í flokki
Hriflunga, relcur höndlun mikla
með voðir og dúka, svo sem
nafni hans á Álafossi.
Aðal-áhugamál: Bob-spil.
Kollega vor í Reykjavík, Vik-
an, sem sællar minningar flutti
fílinn frá Afríku í Heimaklett,
og skóp hina ódauðlegu, tann-
lausu „Miss Heimaey“, hefir
undanfarið verið með „fegurð-
arsamkeppni“ á prjónunum.
Sjálfsagt fer þessi samkeppni
einhvern veginn, þ. e. við fáum
að öllum líkindum íslenzka feg-
urðardrottningu. Allir muna
hinar blíðu ásjónur, sem birtust
í Teofaní-pökkunum hérna um
árið. Það munu hafa verið 50
fegurstu konur með þjóð vorri
(enda hækkuðu cigaretturnar,
strax og myndirnar hættu að
fylgja pökkunum) — og er Teo-
faní-safnið því merkileg heim-
ild um fegurð íslenzkra kvenna
á þeim árum. Nú hefur Vikan
lofað að sýna oss 10 fegurstu
stúlkurnar, svo að það verður
sjálfsagt glæsilegt úrval. En oss
finnst vanta nokkuð á þetta. Þótt
vér sjáum snoturt stúlkuandlit
á mynd, er engin trygging fyrir
því, að stúlkan sé að öðru leyti
fagursköpuð. Gæti hún ekki
verið víxluð eða snúin, of
„slank“ eða of „sver“?
Viljum vér hérmeð stinga
upp á öðru fyrirkomulagi.
Mætti fá til nefnd, sem skipuð
væri listamönnum og fæðuefna-
fræðingum. Væri hún svo látin
standardiséra eitt general- ven-
us-mál af fullkomlega velskap-
aðri stúlku. Mætti svo birta
myndir af stúlkunum fremur
fáklæddum, t. d. með njóla-blað.
Viljum vér hér með stinga
beina þessu til þeirra, sem hlut
eiga að máli.
*
Móðirin: Jæja börnin mín!
Þið hafið okkar samþykki. Guð
gefi, að sól hamingjunnar megi
skína á hjónaband ykkar, eins
og hún hefir skinið á hjónaband
okkar.
Faðirinn: Já, þá fáið þið að
minnsta kosti ekki sólsting.
*