Skólablaðið - 21.12.1943, Page 3
Tuttugasta og fimmta dag deseniber mánaðar héldu Romverjar og fleiri heiðnar
þ.jóðir jólahátíð. Þeir fögnuðu hækkandi sól. - Hin kristna kirkja var stofnuð.
Hun tók við þessari hátíð, en hreytti tilefni hennar. Þa skyldu menn minnast Hrott-
ins Jesú Krists, er fæddist, er sól tók að hækka á lofti - einnig í sögulegum skiln-
ingi. En hvaða boðskap hefir hann að flytja.. oss, er vór minnumst hans á jólunum?
"Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn,. til þess að hver, sem
á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf,... Hræðizt eigi þá, sem lík-
amann deyða, en geta eigi deytt sálina,'éh'hræðizt heldur þann, sem mátt hefir til
að tortíma hæði sál og líkama í helvíti,,,, Eða hvaða endurgjald mundi maður gefa
fyrir sálu sína?" , , ,
"Nytt boðorð gef óg yðurs ÞÓr skuluð .elska hver annan a sama hatt og eg^hefi
elskað yður. Af því skúlu allir þeklcja, að þór eruð mínir lærisveinar, að þór herið
elsku hver til annars", f
"Hverjum, sem því heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, honum ma líkja
við hygginn mann, er byggði hús sitt á bjargi, og ste^piregn kom ofan, og lækir
komu, og stormar blesu og skullu á því húsi, en það fóll ekki, því að það var grund-
vallað á bjargi. 0g hverjum, sem heyrir oessi orð mín og breytir ekki eftir þeim,
honun má líkja við heimskan mann, er byggði hús^sitt á^sandi, og steypiregn kom
ofan, og lækir komu, og stormar blósu og buldu á því húsi, og það fell, og fall
þess var mikið."
Þorir Kr, Þórðarson.