Norðlingur

Tölublað

Norðlingur - 10.07.1928, Blaðsíða 1

Norðlingur - 10.07.1928, Blaðsíða 1
NORÐLINGUR 4. blað. Akureyri 10. júlí 1928. I. ár. Jón Laxdal, tónskáld. Sú fregn hefir borist hingað ný- lega norður, að Jón Laxdal, tón- skáld og stórkaupmaður, hafi látist í hafi á »ís!andi«, er það var á leið- inni ti! landsins nú fyrir fáum dög- um. Fór hann fyrir nokkru utan til þess að leita sjer lækninga við illkynjuðum sívaxandi sjúkdómi, æðakölkun, og mun hún hafa orðið banamein hans. Með Jóni Laxdal er til moldar genginn einn af merkismönnum þessarar þjóðar. í eðli hans voru ríkastir tveir þættir, sem er ekki títt að fari saman í sama manni — list- fengi og fjármálavit. En báðir þess- ir þættir voru ríkir og síerkir. Hann rak verslun og stórkaup- mensku um langt skeið, og farnað- ist sú leið svo vel, að hann varð auðugur maður á íslenskan mæli- kvarða, og án þess að gefa sig þó kaupsýslunni allan á vald eða loka sig úti frá öðrum sviðum Iífsins. ,En hann hafði grundvallaða og sjálfstæða þekkingu á viðskifíalífinu og verslunarháttum öllum og ras- aði ekki fyrir ráð fram í neinu, er að því laut. En kaupsýsla Laxdals lyftir hon- um ekki upp í sæti merkismanna þjóðarinnar, þó að vel mætti hún verða öðrum til fyrirmyndar og lær- dóms. Það, sem gerði hann þjóð- kunnan og kæran meðal landsmanna, voru tónsmíðar hans. Sum lög hans eru og hafa verið þjóðareign um langan tíma, og eru um hönd hötð alstaðar þar, sem söngment er stund- uð og söngur er elskaður. Tón- smíðar hans segja til um annan þátt eðlis hans, — þann, sem mun hafa verið sterkastur og sannastur og hann hafði mest yndi af að leggja rækt við. Laxdal var hið mesta glæsimenni, í stærra lagi að vexti, vel á sig kominn og hinn fríðasti. Hann vai gleði- og risnumaður, ör á fje og heimili hans orðlagt fyrir höfðing- skap og örlæti. Lsxdal var fæddur hjer á Akureyri í október 1865, og var því 63 ára að aldri. Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson hafnsögumaður og Guð- rún Grímsdóttir Laxdal. Hann ólst upp að mestu leyti hjá móðurbróður sínum, Eggert Laxdal kaupmanni, en fór síðan fulltíða maður til Isafjarðar og tók þar við forstöðu Tangsversl- unar. Er hann Ijet af þeim siarfa, fór hann til útlanda og dvaldi þar um hríð; var meðal annars um all-langt skeið starfsmaður f Skotlandsbanka. Vildi hann afb sjer góðrar þekkingar á bankamálum og bankastarfsemi. Er hann hafði utan vérið um nokkurra ára skeið, kom hann heim og settist að í Reykjavík og tók að reka kaup- sýslu fyrir eigin reikning. Hann var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Kristín Egilsdóttir, önnur Elín, dóttir síra Matthíasar Jochumssonar, og sú þriðja, er nú lifir hann, dönsk kona, Johanne, f. Leh-Meyer. Laxdal var konsúll Tjekko-slovaka hjer á landi. Úr veiðistöðvunum. Siglufirði í gærkvöldi. lllviður. Hjer er versta veður og hefir ver- ið síðastliðinn sólarhring, norðaust- an garður með stormi og rigningu. Liggja því öll skip og bátar inni nú. Fóru aðeins tveir vjelbátar í róður, gátu lítið athafnað sig og fengu lítinn afla. I5orsk- og síldveiðar. Fá síldveiðiskip hafa lagt hjer upp enn. Erna kom í morgun með um 1000 tunnur, og Reginn í gær með lítinn afla. Ressi síld hefir verið lögð upp í Goos-verksmiðju, og gaf hún kr. 7.75 fyrir málið. En allur fjöldi útgerðarmanna þeirra, er gera út á síldveiðar, hefir enn ekki náð samningum við verksmiðjueig- endur hjer, og stendur í einhverju þófi með verðið. Þorskveiðar hafa verið tregar und- anfarið. Langsótt og fiskur mis- hittur. Þó eru aflahæstu bátar búnir að fá á þriðja hundrað skippund, og allir nokkuð á annað hundrað. Síldveíðar Norðmanna Hjer. Ekkert hefir heyrst um það nú upp á síðkastið, hvort Norðmenn muni ætla að fjöimenna hingað til síldveiða utan landhelgis. En í vor var talið, að þeir hefðu mikinn við- búnað til þeirra hluta. Væntanlega * má þó gera ráð fyrir því, að svip- aður skipafjöldi komi og áður. Bygging bæjarbryggjunnar stendur nú yfir og miðar verkinu vel áfram. Má fullyrða, að margt breytist til hins betra í verslunar- og atvinnulífi Siglufjarðar, þegar hún er fullgerð. Bæjarbruni. Aðfaranótt laugardagsins kom eld- ur upp í bænum að Hurðarbaki í Villingaholtshreppi í Árnessýslu. Magnaðist hann á svo skömmum tíma, að ekki varð við neitt ráðið, og brann bærinn til kaldra kola á stuttri stundu. Svo brátt bar eldinn að, að' fólk- ið bjargaðist með naumindum úr loganum. En svo er sagt, að af innanstokksmunum hafi engu verið bjargað, smáu nje stóru. Ekki er »Norðling« kunnugt, á hvern hátt eldurinn kom upp.

x

Norðlingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðlingur
https://timarit.is/publication/783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.