Norðlingur - 14.08.1928, Blaðsíða 3
NORÐLINGUR
3
'1
’
kaupir
Ingóffur Árnason,
Siglufirði.
’
«1—11 ii^—i ;
En þessa stórhríðarnótt mann-
legs brjálæðis, mannlegra hörmunga,
bióðs og logandi borga vill G. fá
hingað. Fyrir þessum ægileik fell-
ur það á knje og tárast af hrifni!
»Faðir, fyrirgef þeim, þvíþeir vita
ekki hvað þeir gera.«
^ — Ar—■
}
ferskan og
saltaðan,
Lifur S1aog
Fisk
Tekið frá bændum,
gefið jafnaðar-
mönnum.
Undanfarið hafa komið fram all-
háværar raddir um það, að núverandi
kjördæmaskipun væri á ýmsa lund
óhentug og órjett, svo að með nú-
verandi fyrirkomulagi skapaðist mikið
misrjctti meðal kjósenda í landmu.
Sumstaðar nefðu t. d. um 500 kjós-
endur sama atkvæða-magn á þingi
eins og 1200 eða 1300. Með því
væri í raun og veru frelsi manna og
jafn rjettur til áhrifa á Iöggjöf og lands-
stjórn fyrir borð borinn. En grundvöllur
þingræðisins, þeirra stjórnarhátta, setn
við nú búum við, væri einmitt jafn
rjetti allra kjósenda til óbeinna
íhlutana um landstjórn og löggjöf. —
Framsóknarílokkurinn hefur öðrum
flokkum fremur átt sigur sinn þessum
ójöfnuði og þessu misrjetti að þakka.
Honum er því að sjálfsögðu tneinilla
við nokkrar umbætur á kjördæmaskip-
uninni. »Tíminn* frá 14. júlf sýnir
ótvírætt ilskuna gegn umbótunum og
lagfæringunni. En um leið og hann
bannfærir rjettlátari og sanngjarnari
kjördæmaskipun, heggur hann sinn
eigin þingflokk holsári.
Blaðið segir, að nú eigi að fara
að ná af bændunum »því eina sem enn
hefir ekki verið af þeim tekið, því
eina, sem verður þeim til bjargar, ná
af þeim alkvæðisrjettinum ?«
»Tímanum« fer þarna eins og ör-
vita manni, sem gengur í eld til þess,
að geta ráðist á andstæðing sinn, og
skaðbrenm'st svo sjálfur.
Ólíklegt er, að hann ætlist til, að
búið sje að gleyma aðgerðum Fram-
sóknarflokksins á síðasta þingi. Hver
gekk þá í bandalag við Jafqaðarmenn
til þess, að »taka atkvæðisrjettinn* af
bændum? Rað voru fulltrúar bænda,
Framsóknarflokksmennirnir. Reir eru
þeir einu, sem hafa sýnt sig bera
að því að taka atkvæðin af bændum.
Með skiftingu Gullbringu- og Kjósar-
sýslu í tvö kjördæmi, tóku þeir eitt
þingsæti af bændum og gáfu Jafnað-
armönnum. Um það fjellust
þeir í faðtna við socialistana
— vegna þ,ess, að sama er, hvort
Jafnaðarmaður eða Framsóknarmaður
á sæti á þingi. Alt er sama tóbakið.
»Tíminn« hefði ekki átt að minna
á breytinguna á kjördæmaskipuninni
á þennan hátt. Ef hann er hræddur
um, að sýna eigi bændum órjett með
lagfæringu á því máli, þá bendir hann
fyrst og fremst eftirminnilega á sinn
flokk, sem hrifsar í augsýnilegri valda-
græðgi kjördæmi frá bændum og
leggur það f hendur þeirra manna,
sem eru hjer og alstaðar, mestu
óþurftarmennirnir í garð bændanna —
jafnaðarmanna.
Eftir næstu kosningar hafa nú
bændur einu þingsæti færra en nú,
vegna þessara aðgerða Framsóknar-
manna. Pað er eftir að vita, hvort
bændur eru menn til að muna þeim
það. En þeir sem nú fara með völd-
in í Framsóknarflokknum eru einu
þingsæti öruggari. Peir hafa tekið
frá bændum og hlaðið undír sig
persónulega. Það órjettlæti og
þingsætisrán kostar þá ekki annað en
það, að fleygja einu sinni enn mergjuðu
beini í Jafnaðarmenn — til að fá að
sitja, og fallast í innilegri faðmlög
við fjandmenn bændanna.
Til lands og sjávar.
Veðurútlit (tvö næstu dægur):
Suðurland, Faxaflói, Breiðifjörður, Vest-
firðir: í dag og nótt hægur, sumstað-
ar skýjað, og sumstaðar skúrir í kvöld
og nótt. Norðurland, Norðausturland,
Austurland og Suðausturland j í dag
og nótt hægviðri, þurt veður. Hiti á
\
\
i
\
)
Rúmtep.pi misl. frá , . kr. 2,00
Rekkjuvoðir hv. . . — 3,75
Kvensokkar sv. og misl.— 0,85
Karlm. sv. og misl. frá — 0,75
Peysur bláar karlm.-----7,50
Pullovers — — — 7,85
Milliskyrtur —-----------3,50
Manshettsk. m. 2 flibb. — 7,50
Háisbindifeiknaúrvaifrá— 1,50
Fiibbar jinir, hálfsfífir og stífir k
Karlm. nærföt, settið frá kr. 4,80 r
Axlabönd karlm.---------1,50
do. drg. — — 0,90
Göngustafir — — 1,85
Hálstreflar U00
Taubuxur — — 9,00
Húfur, Hattar, Kasketter.
Vinnufatnaðurinn viðurkendi.
Kvenkjólar og kápur með
g j a f v e r ð i
o. m. m. fi.
fflesta úrval og lægst verð.
BRAUNS VERSLUN.
Páll Sigurgeirsson.
Akureyri í morgun kl. 8 10 gr. Mest-
ur hiti á landinu á Blönduósi 13 gr.
Dánarfregn. í gær Ijest á heimili
sínu, »Caroline Rest* hjer 1 bænum,
Guðbjörg Halldórsdóttir, Einarssonar
frá Skógutn, rúmlega tvítug að aldri.
Hún hafði komið heim í sumar af
Kristneshæli, og var búin að þjást af
berklum á annað ár. En nú fjekk
hún inflúensuna, og þoldi hún ekki
það áfall. Guðbjörg heitin var hin
efniiegasta og vinsælasta stúlka.
Samlagsmjólkin. Á heilbrigðis-
nefndarfundi síðast hreyfði hjeraðslækn-
irinn því, að »almenn umkvörtun væri
um það í bænum, að hin gerilsneydda
mjólk samlag8ins súrnaði í flöskunum.«
Taldi hann víst, að það mundi með-
fram vera þvi að kenna, að papplok-
urnar á flöskunum væru settar í með
höndunum, í stað til þess gerðra vjela.
Heilbrigðisnefndin ákvað, að fela heil-
brigðisfulltrúa sínum að ræða málið
við framkvæmdarstj, kaupfjelagsins til
þess að fá þetta bætt.