Norðlingur - 11.09.1928, Blaðsíða 1
NORÐLINGUR
31. blað.
Akureyri 11. september 1928.
I. ár.
Tómas Baldvinsson.
F. 21. sept. 1905. — D. 31. ágúst 1928.
Kveðja föðursins.
Sonur minn!
Úti er þrauta-ferill þinn.
— Drottinn gefur, drottinn tekur,
dásemd lífs úr helju vekur,
flytur þig í faðminn sinn,
sonur minn.
Horfði’ jeg á
þína æsku- og unglings þrá
leggjast undir berklabjargið,
bera þunga sjúkdómsfargið,
blikna eins og brotið strá,
horfði’ jeg á.
En jeg fann —
guð mjer hafði gefið m a n n :
þú varst glaður, þó þú liðir,
þó þú alt af hjálpar biðir,
færðir geisla í föður-rann,
það jeg fann.
■B AKU REYRAR BIÓ
Priðjudagskv. kl. 8'/>•
Aðalhlutverkið í þessari ágætu
myud leikur
John Barrymore.
Gagnfræöaskólinn nfi
í Reykjavík.
SÚKKULAÐI
flýgur út.
Horfi jeg
æftir þjer um undra veg.
Orðin vaka á vörum mínum:
víst mun drottinn gæta að sínum.
Hans er gæskan guðdómleg,
það veit :jeg.
Sonur minn!
Nú er horfinn harmur þinn.
Þú ert frjáls og fleygur andi,
fararsæll á nýju landi.
rFljúgðu heill í himininn,
sonur minn.
/. B.
Skólastjóri er nú ráðinn við hann,
og má segja, að þar hafi fengist
maður, sem trúa má fyrir því starfi,
Ágúst H. Bjarnason prófessor. Verð-
ur skólinn settur 1. október og
hefir aðsetur í Iðnskólanum. Kenn-
aralið mun ekki vera fastráðið enn.
Flesf allir nýsveinarnir, sem kenslu-
málaráðherra vísaði frá Mentaskól-
anum í vor, hafa nú sótt um hinn
nýja skóla, og margir fleiri. Lítur
út fyrir mikla aðsókn að honum.
E* ekki líklegt annað nú, en heldur
verði fáment í hinum nýja unglinga-
skóla hökulbolsans Ingimars, sem
Jónns Jónsson stofnaði. En það
er þá hægt að fullnægja því betur
ætlunarverkinu: að ala nemendurna
upp f trúnni á kommúnismann.