Norðlingur

Tölublað

Norðlingur - 11.09.1928, Blaðsíða 3

Norðlingur - 11.09.1928, Blaðsíða 3
NORÐLINGUR 3 birtingu þessarar . fyrirspurnar í heiðruðu blaði yðar og væntanlegt svar yðar. Virðingarfylst. Svalbarði 1. sept. 1928. Björn Líndal. Jarðarför Olgu I Jónasdóttur, sem andaðist á sjiíkrahúsinu á Akureyri 5. þ. m., fer fram frá sjúkrahúsinu fimtudaginn 13. þ. m. kl. 1 e. h, Einar Gunnarsson. Um tvo liði er að ræða í þess- ari fyrirspurn hins heiðraða grein- arhöfundar, hinn fyrri, hvort jeg hafi sjálfur heyrt útgerðarmanninn, sem um er rætt, 'lýsa tapi sínu vegna einkasölunnar, eða um orða- sveim sje að ræða;hinn síðari, hver þessi útgerðarmaðuf sje. Um fyrri lið spurningarinnar er það að segja, að ekki er þar um neinn orðasveim að ræða. Útgerð- armaðurinn sagði þetta við mig, og fer þar ekki neitt á milli mála. En um síðari Iiðinn, hver útgerðar- maðurinn sje, verð jeg að geta þess, að ekki virðist mjer sönnunin um ókosti síldareinkasölunnar vaxa neitt við það, þó nafn hans sje birt, þó reyndur sje í síldarútgerð og síldarverslun. Ummæli hans eru ekki annað en sýnishorn af áliti ótal margra annara á einkasöl- unni, og því ekkert einstök. En þau voru valin af því, að liann hafði áður liaft all-mik!a trú á árangri einkasöiunnar, en reynslan sýndi honum annað, og því voru ummæli hans eftirtektarverð. Ritstjórinn. Peninga- þjófnaður. Tæpum 500 kr. stolið úr Söluturninum á Oddeyri. Á sunnudagskvöldið kl. 8 kveikti búðarstúlkan, sem er í Söluturninum á Oddeyri, á gluggaljósunum eins og hún var vön á kvöldin. Lokaði hún síðan turninum og stakk lyklinum nið- ur í handtösku sína, því þar geymdi hún hann jafnan. Að þessu búnu fór hún inn í Sam- komuhúsið á dansleik þar, en lagði töskuna frá sjer, og ekki á neinn af- vikinn stað. Um kl. 11 fer hún það- an aflur til þess að slökkva Ijósin í turngluggunum, og tekur töskuna, og var hún á sama stað, óhreyfð að sjá. En þegar hún ætlar að fara að opna Söluturninn og taka til lykilsins, er hann farinn. Man hún þó glögt eftir þvf, að hann var í töskunni, þegar hún kom inn í Samkomuhúsið fám kl. st. áður. í stað þess að láta lögregluna vita strax um lykil-hvarfið, því vita mátti að honum hefði verið stolið úr töskunni, fer stúlkan heim og nefnir ekki neitt. En hefði lögreglan vitað um lykil-stuldinn, hefði vörður verið settur um turninn um nóttina. Auðvitað notaði sá, er Iyklinum stal, hann um nóítina, fór inn í turn- inn og stal þar 485 kr. í peningum. Grunur lagðist strax á stúlku nokkra, sém verið hefir í sumar með búð- arstúlkunni í turninum, og það því heldur þar sem hún hefir verið kend við þjófnað áður. Var hún yfirheyrð í gær og gerð þjófaleit hjá henni, En ekki játaði hún stuldinn, og ekk- ert fanst ’njá henni af peningunum. Nú er þessi stúlka farin hjeðan úr bænum, En lögreglan hefir sett menn til þess, að fylgja ferli hennar og at- huga peningamá! hennar. Erlendar símfregnir. Rvík í morgun. Setuliðið í Rínarbygðunum. Sameiginlegur fundur ríkja þeirra, sem hafa setulið í Rínarbygðunum, verður bráðlega haldinn, óg ræðir hann um kröfur Þjóðverja, að kalla heim setuliðið. Enskir verkamenn afneita kom- múnismanum. Frá London er símað, að ársþing breskra verklýðsfjelaga hafi felt með miklum atkvæðamun, að hefja nýja samvinnu við rússnesk verklýðs- fjelög. Frá Albaníu. Frá Tirana er símað, að albaniskir hermenn hafi drepið Lush Preta, foringja Norður-Albana, ákafanand- stæðing hins nýkrýnda konungs, Sanderbergs. Kenna Norður-Albanir konunginum um morðið og sverja að hefna Preta. Til lands og sjávar. Veðrið. Suðvesturland og Faxafl.: f dag vaxandi sunnan og suðaustan, allhvass og rigning í kvöld og nótt. Breiðifj. og Vestfirðir: í dag" hægur suðaustan, í nótt all-hvass suðaustan, rigning. Norðurl., Norðausturland og Austfirðir: í dag hægviðri, í nótt irax- andi sunnan og suðaustan. Víðast úr- komulaust. Suðausturland: í dag stilt og bjart veður, í nótt suðaustan kaldi, rigning. Nániskeiðið, sem haldið verður hjer í matreiðslu síldar, byrjaði í gær eins og til stóð og sækja það 15 þessa viku, í tveim flokkum, og all- margar þegar búnar að biðja um að- gang næstu viku. Sennilega fæst tækifæri til að Iýsa þessu námskeiði nokkru nánar hjer í blaðinu. Göngum hefir verið • frestað um viku á öllu því svæði, er fje kemur af til slátrunar hjer á Akureyri. Er það vegna þess, að sláturhúsið nýja, sem kaupfjelagið er að láta byggja á tanganum, verður nokkru seinna til- búið, en ráð var fyrir gert. Síldarsöltunin. I gær var búið að salta á öllu landinu 114,491 og krydda 40,602 tunnur, eða alls 155,- 093 tunnur. Ekkert söltunarbann. Sá orðrómur hefir gengið undanfarið, að síidar- einkasalan ætlaði sjer nú þessa dagana, að banna meiri síldarsöltun vegna vöntunar á markaði. En þetta mun gripið úr lausu lofti algerlega, enda væri það skrítin ráðstöfun að banna nú söltun á síld, jafn lítið og véiðst hefir fram að þessu.

x

Norðlingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðlingur
https://timarit.is/publication/783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.