Norðlingur - 11.09.1928, Side 4
4
NORÐLINGUR
Þriggja herbergja íbúð
með eldhúsí óskast til leigu frá 1.
okt n. k. Semja ber við
Sigurð Guðmundsson
skólameistara.
Borð- og dívanteppi
Afar falleg eru nýkomin og
seljast mjög ódýrt hjá
Baldvin Ryel.
MUNDLOS-saumavjelar eru bestar.
Fást í verslun Norðurland.
Síldarafii þeirra skipa, sem lagt
hafa upp til söltunar hjer við Eyja-
fjörð, var í gær þessi: Sindri 5195
tunnur, Lotti 445 (er nú hætt), Sjö-
stjarnan 2057, Flóra 816, Þingey 14-
36, Sandve 758, Hjalteyrin 2353,
Helga 2286 (er hætt), Hvítingur 1543
(er hættur), Krislján 2616, Líf 1956,
Bláhvalurinn 703 (er hættur), Valur
1148, Vonin 462 (er hæít), Gerpir
2005, Andey 2575, Rán 2904.
Húsbruni. í fyrrinótt brann til
kaldra kola járnklæddur timburskúr,
er tilheyrði Vífilstaðahæli og verið var
að byggja, en ekki lokið við alger-
lega. Átti að nota hann fyrir hæsna-
og svínageymslu og var því allstór.
Engum er Ijóst enn, hvernig eldur
hefir farið að komast í þetta hús, því
að það var lokað, og um það gekk
ekki nokkur maður frá hælinu og
hafði ekki gengið langan tíma. Er
helst gert ráð fyrir, að einhverjir að-
vífandi menn hafi farið þarna inn um
nóttina, því að vart varð við eldinn
kl. 2 — 3, og farið ógætilega með eld-
spítu eða þá kveikt í af hreínum
prakkaraskap. Málið hefir nú verið
afhent bæjarfógeta til rannsóknar.
Trúlofanir Opinberað hafa nýlega
trúlofun sína ungfrú Inger Bjarkan,
Akureyri, og Chr. Olsen-Lúkken blaða-
maður. Ennfremur ungfrú Puríður
Stefánsdóttir, Akureyri, og R. Gabrí-
elsson síldarkaupmaður í Gautaborg.
Gagnfræðaskólinn. í fyrra fóru
14 þeirra, er tekið höfðu gagnfræða-
próf, upp í 4. bekk. En nú í haust fara
20 og eru það alt reglulegir nem-
endur. Fara engir suður til framhalds-
náms nema 2 Hafnfirðingar.
af fallegum
manchet-
skyrtum, bind-
um og slaufum, afar ódýrum axlaböndum og fleira nýkomið.
Baldvin Ryel.
Munið
að kaupa
SILKOLIN-ofnsvertu,
Hún er sú
BESTA
sem fæst.
Allur útbún-
aðurfyrirgufu-
W vjelar og
m ó t o r a .
Hafnarstræti 18 Rvík.
Símar: 27, 2127, 2183.
Símnefni: FOSS.
Rannsókn heita vatnsins. Með
íslandi síðast kom hingað Rorkell
Þorkellsson veðurstofustjóri þeirra er-
inda, að rannsaka hvort unt mundi að
bora fyrir heita vatninu í Glerárgili
svo að það yrði notað að öllu eða
einhverju til upphitunar barnaskólan-
um nýja, jafnframt sundlaugarhitun-
inni. Hefir Porkeil annast laugabor-
anirnar fyrir sunnan nú í sumar, og
er því manna reyndastur á þessu
sviði. Hann stóð hjer við aðeins
meðan fsland var hjer og hafði því
engan tíma til að gera grein fyrir at-
hugunum sínum, en tnun senda þær
bráðlega hingað til bæjarsijórnariiinar,
og mun þá verða sagt frá hjer í blað-
inu, að hvaða niðurstöðu hann hefir
kornist.
Stefngrímur Matthíasson hjer-
aðslæknir hrasaði af hjóli niðri á
bryggju á föstudaginn var, og meidd-
ist nokkuð á höiöi Liggur hann rúm-
fastur sfðan.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Brasso ber sem
gull af eiri af
öðrum fægi-
Iegi.
FÆST ALSTAÐAR.
KEX
Nýkomnar 15 teg. af
Kexi. Verðið. lágt.
Versl. Oddeyri,
■
LANG BEZTI
skóáburðurinn er
Fæst í skóbúðum og
verslunum