Norðlingur

Issue

Norðlingur - 13.03.1929, Page 2

Norðlingur - 13.03.1929, Page 2
2 NORÐLINQUR Siifræii ai|ji|liF||saiii Ofsókn gegn öðrum fyrir* það, sem þeir gera sjáífir. Það mun nú mega líta svo á, að nöfn þau, sem »Norðl.« nefndi í sambandi við síldarkaup alþýðu- burgeisa hjer á Tanganum, hafi verið rjett. »Verkam.« hefur tvis- var komið út síðan, að minst var á þessa nýju síldarkaupmenn, skólastjórann og járnsmiðinn, en í hvorugt skifti sagt eitt orð um rnálið. Vissi »Norðlingur« það raunar áður, að samþykki Verka- mannsins þurfti ekki til. Og hitt ýar líka jafn víst, að síldarkaup jafnaðarmanna áttu sjer stað. Það var tekið fram hjer í blað- inu um daginn, að sennilega liti enginn á það sem neina goðgá, þó Steinþ. og Hallgr. hefðu keypt síld og tekið þann arð, sem af þeim kaupum fjekst. Það var ver- ið að ráðast á ummæli »Verkam.« »um síldarkaupmenn yfirleitt« — að þeir ljetu ekki éitthvað af sölu- ágóða síldarinnar renna til verka- manna. En í þessum ummælum »Verkam.«, um söluágóðann, birt- ist kjarninn í siðfræði alþýðubur- geisanna, kjörorð þeirra og starfslögmál: Ofsækjum aðra fyr- ir það, sem við gerum sjálfir. Lítil atvik geta verið lýsing á heilli veröld. Ein setning getur rúmað eða borið í sjer innræti heillar stefnu, aðferðir margra flokksforingja. »Verkam.« brá, í setningunni um söluágóðann, upp óbrigðulli mynd af lieilindum al- þýðuburgeisanna, svo að hjer eft- ir þarf maður ekki að villast á því, að þeir ofsækja þá starfsemi annara, sem þeir sækjast mjög eftir sjálfir. Þessir öreigavinir hafa á yfir- borðinu verið stórhöggir í garð þeirra, sem þeir telja að þegið hafi bitlinga. Engir gerast þó að- gangsharðari við jötu bitlinganna en þeir sjálfir, þegar þeir hafa aðstöðu til. Hjer á Akureyri hafa þeir skipulagt bitlingana. Kjör- orðið hefur verið: Allir eitthvað! JEinar tók framkvæmdarstjóra- launin, Erlingur útflutningsnefnd- ina, Steinþór sömuleiðis, Halldór trúnaðarstarfið við matið, Jón Guðmann náði sjer í varasætið við síldarstörfin, Jón Steingrímsson skattanefndina og Elísabet »harm- inn« — barnaleikvöllinn. Hallgr. hefur ekki, svo vitað sje, fengið neitt, en þá tók hann síldarkaup- in. — Það þarf ekki að taka það fram, að ekki hafa þeir orðið eftir í bitl- ingalestinni,þeir sunnlensku. Þeir hafa vei’ið enn fengsælli. öll of- sókn þeirra á bitlingana, öll yfir- skins-vandlæting þeirra í því efni hefur nú komið yfir höfuð þeirra og liggur nú á þeim með heljai*- þunga. Þá er öllum í fersku rninni um- tal alþýðuburgeisanna urn »síldai-- spekúlantana«, »braskarana«, og þær lýsingar, sem þeir hafa gefið af atferli þeirx-a. Það hefði mátt ætla, að þar vildu vinir öreiganna hvergi korna nærri. En sjá! Jafn- vel þar hnigu þeir til sömu starf- semi og þeir fordæmdu. Þeir fóru að kaupa síld eins og Líndal og Ásgeir Pjetursson. Og þeir gerðu rneira. Þeir gleymdu að láta hina kúguðu verkamenn sína hafa hluta af söluágóðanum. Siðfi’æði sinni trúir, höguðu þeir sjér nákvæmlega eins og þeii’, sem þeir höfðu ofsótt til margra ára. ógeðslegi'i óheilindi og óhrein- skilni, lítilmannlegri bardagaað- fei’ð og starfshættir hafa ekki komið í ljós í fari neinna »for- ingja« en alþýðuburgeisanna. Til mai’gra ára hafa þeir ofsótt og magnað vitlaust hatur til ein- stakra manna fyrir nákvæmlega það sama og þeir gera sjálfir. Þegar fyrsta tækifæri býðst leggjast þeir flatir fyrir því, sem þeir rjeðust að ástæðulausu á í fari annara, þegar fyrsti mögu- leikinn býðst grípa þeir »bi’ask- ið« tveim höndum og stinga nokkrum þús. kr. í vasann, en hef ja um leið landshróp að öðrum fyrir það sama. Siðfræði »foringjanna« er seyrð. En hún er eins og búast mátti við, þegar hún er sköpuð ýmist af valdagráðugum og bitlingasjúkum meðalmönnum og þar fyrir neðan, eða ábyrgðarlausum umrótsmönn- um, sem sama er, hvað upp snýr eða niður á þjóðfjelaginu. .----------------------------- - NORÐLINGUR ■. *■ *1T5 f f-'”' - ' (kemur út annan hvorn dag) Ritstj. og ábyrgðarm.: JÓN BJÖRNSSON. Skrifstofa og afgreiðsia i Hafnarstræti 98. Sími 226. Pósthólf 54. Áskriftargjald kr. 1,00 á mánuði í iausasölu 10 aura eintakið. ----------------------------. Sjúkrahúsið. Nefnd kosin á bæjarstjórn- arfundi, til þess að koma frani Ineð till. til nýrrar reglugerðar fyrir stofn- unina. Á bæjarstjórnarfundi í gær, hóf Br. Tobiasson umræður um sjúkrahúsið hjer. Kvað hann leika nokkurn grun á því, að mönnum væri ekki með öllu Ijóst, hvernig háttað væri stjórn þess og rekstri. Hann sagði, að til mundu þó vera tvær nefndir, spítala-nefnd og yf- ir-spitalaaíiefnd. Yfirnefndin hefði víst aldrei komið saman, og undir- nefndin hefði verið fremur af- kastalítil. Svo ramt kvæði að ó- kunnugleika manna ,á ýmsu því, er lyti að þessari stofnun, að það ljeki nokkuð á tveim tungum, hver mundi eiga hana, hvort það væri sýslan óg bæjarfjelagið eða stofn- unin ætti sig sjálf. Virtist því brýn nauðsyn bera til, að komist væri til botns í þessu. Kom hann því fram með till. um það, að kos- in væri 3. manna sjerstök nefnd, er kynti sjer fyrirkomulag, stjórn og rekstur spítalans, og kæmi fram með till. til nýrrar reglu- gerðar fyrir hann. í nefndina voru kosnir með hlutfallskosn- ingu: bæjarstjóri, Sigurður Hlíð- ar og Halldór Friðjónsson. í sambandi við þetta, gaf bæj- arstjóri þær upplýsingar, að ekki gæti leikið neinn vafi á því, hver ætti spítalann. Gjafabrjef stofn- unarinnar segði skýrt til um það, að eigandinn væri Akureyrarbær og Eyjafjarðarsýsla. Upphaflega liefðu að vísu 3 næstu hreppar Þingeyjarsýslu verið með. En þeir

x

Norðlingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðlingur
https://timarit.is/publication/783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.