Norðlingur

Eksemplar

Norðlingur - 13.03.1929, Side 3

Norðlingur - 13.03.1929, Side 3
NORÐLINGUR ........... g s 5 Ef þjer þurfið að fá yður falleg VINGLÖS. smekk- leg VATNSGLÖS, hentugar VATNSFLÖSKUR, skrautlega BLÓMSTURVASÁ, snotur og þægileg KÖKUFÖT og SKÁLAR og góðar KÖNNUR, ALT ÚJR KRISTALL og óskiljanlega ódýrt, þá komið þar sem úrvalið er mest og nýjast. H.f. Carl Höepfners-verslun. 2 w i I I 1 É hefðu mist rjettindi sín, og gætu því ekki skoðast sem eigendur lengur. Oæjarsíninn. Samband á nóttunni. Þeir eru sjálfsagt ekki fáir, sem hafa furðað sig á því, að inn- anbæjarsíma hjer á Akureyri skuli vera lokað kl. 10 að kvöldi, og að sambandslaust skuli vera í bænum alt að því helming sólar- hringsins. Þetta hefði mátt skilja á þann veg, að eftir klukkan 10 að kveldi legðist hvert mannsbarn í dá, eftir kl. 10 gerði enginn neitt, ætti enginn erindi við ann- an og öll starfsemi bæjarfjelags- ins, sem farið gæti fram gegnum síma, kæmi aldrei að eilífu til mála. En þessu er svo sem ekki þann- ig farið með Akureyri eina. Hið sama er uppi á teningnum með aha aðra kaupstaði landsins, aðra en Reykjavík. Þar er símasam- band innan bæjar alla nóttina. Er merkilegt, að menn skuli hafa þagað yfir þessu fram að þessu, þar sem ekki verður þó á móti borið, að þeir, sem símann hafa, greiða sæmilegt gjald fyrir hann. Það mun hafa verið tilfinning- in fyrir þessu sleifarlagi, sem kom Jóni Sveinssyni bæjarstjóra til að fara á fund landsímastjóra á meðan hann var fyrir sunnan nú síðast, og spyrja hann að því, hvort símastjórnin sæi sjer nú ekki fært að fara að hafa opinn símann á nóttunni í stærstu kaup- stöðum landsins. Gaf bæjarstjóri upplýsingar um þetta á bæjar- stjórnarfundinum í gærkveldi. Það verður því óskiljanlegra hvað lengi hefur þurft að bíða eftir þessari rjettarbót, þegar þess er gætt, að landsímastjóri gat þess, að sá kostnaðarauki, sem þetta leiða af sjer, mundi ekki nema meiru en 2000 kr. fyr- ir símann. Það er ekkert álitamál, að það renna margar stoðir undir það, að nætursamband sje haft í bæjum. Drap bæjarstjóri á þrjú atriði: :ii' ,*í . . .'fi*. í< líl Þ.i ' í * Viðskiftalíf alt, veikindi og elds- voða. Liggur það í augum uppi, hve mikils virði það er, þá er veikindi bera að höndum, að geta strax fullvissað sig um það, hvort sá læknir, sem sækja á, er við- staddur eða ekki. Sama máli er að gegna með eldsvoða að nóttu til. Slökkvilið ætti að geta orðið held- ur viðbragðsfljótara á vettvang, ef hægt er að ná til þess í síma, heldur en að smala því saman á annan hátt. Bæjarstjóri gat þess, að land- símastjóri hefði tekið vel í mála- leitun sína, en þó talið sennilegt, að bæirnir yrðu að taka einhvern þátt 1 kostnaði við vökur á stöðv- unum. En virðist nú nokkur nauð- syn bera til þess? En ekki væri rjett að láta málið stranda fyrir neitun bæjarstjórnar um ein- hverja smáupphæð til þessara hluta. Lagði landsímastjóri til, að málið væri borið undir bæjar- stjórn, og hún segði álit sitt um það. Var því vísað til fjárhags- nefndar. Til lands og sjávar. »Afsökunin«. Nú er Halldór Friðjónsson mjög farinn að draga saman seglin í skólastjóramálinu. Pó er hann ekki orðinn nærri því al- gáður enn. Sjálfsagt hafa all-margir lesið grein formanns skólanefndar í »Degi« síðast. Halldór segir að hún sje ekkert annað eh »afsðkun« fyrir viðtalið í »Norðl.’«. En í upphaíi greinar sinnar segir hann þó, að Brynl. »helli úr skálum reiði sinnar« yfir sig. Eftir því er þá *afsökun« fólgin í því, að maður »helli úr skál- um reiði sinnar« yfir þann, sem mað- ur er að biðja afsökunar! Nei, Hall- dór er ekki orðinn heilbrigður enn. »CaroIine Rest«. Nefnd sú, er sjer um þá stofnun, hefir nýlega Iagt til við bæjerstjórn. að nokkrar umbæt- ur væru gerðar á henni, bæði í hest- húsinu og í sambandi við gistingar í húsinu. Nefndin telur brýna nauð- syn bera til, að hreinsað sje tafailaust frá húsinu malar- og grjóthrun það, sem borist hefir að því úr brekkunni sunnan við, því annars liggi það und- ir skemdum. Fánaslagur. Á mánudaginn var átti Friðrik krónpiins afmæli og var flaggað á nokkrum stöðum hjer í bæn- um, m. a. á Sjúkrahúsinu með danska fánanum. Nokkrum nemendum Gagn- fræðaskólans þótti það ósvinna, að flaggað væri fyrir konungsefni íslend- inga með dönskum fána, og fóru til og drógu fánann í hálfa stöng. Þegar þeir voru farnir var fáninn dreginn upp á ný. í næstu »frfmínútum« fór allur þorri nemenda enn á vettvang og heimtaði fánann dreginn niður. Nokkurt karp varð um það milli nemenda og danskrar hjúkrunarkonu, hvort þessu fengist framgengt eða ekki. En enginn má við margnum, og var fáninn dreginn niður. En hjúkrunarkonan lofaði því, að sá ís- lenski skyldi heldur ekki koma upp þennan daginn, og efndi hún það. Dráttarbrautin. Bæjarstjórnin hef-

x

Norðlingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðlingur
https://timarit.is/publication/783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.