Norðlingur - 05.10.1929, Qupperneq 3
NORÐLINGUR
3
(Framh. af 1. síðu).
fram af uppfyllingunni á flugferð og
niður í djúpið. Hvarf þar maður
og bíll niður á svipstundu.
Á fimtudagsmorguninn var feng-
inn kafari til þess að koma vírum
á bílinn, svo unt væri að ná hon-
Um upp. Var hann dreginn upp
með »rambukka«, heill og óskadd-
aður, og sat Jón í sæti sínu eins og
þegar hann fór út af.
FRIÐUN.
Dómsmálpráðuneytið hefir lagt fyrir mig að tilkynna, að
sökum fækkunar á rjúpum sjeu þær alfriðaðar þetta ár og veiði
því bönnuð einnig á tímabilinu 15. þ. m. til ársloka.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 11. okt. 1929.
Steingrímur Jónsson.
Hjálparstöð Rauða krossins
er flutt íBrekkugötu 11 (hús Frímanns Jakobssonar, neðstu hæð.)
Enginn vafi er á því, að Jón
fyrirfór sjer af ásettu ráði. Bera
því glöggast vitni brjef þau, er hann
hafði skriíað áður.
En rjett er að geta þess, að nokkru
áður höfðu gengið þær kviksögur
um bæinn, að hartn heföi átt að fá
mann til þess að kveikja í bílum
þeim, sem brunnu á Bifreiðastöð
Revkjavíkur fyrir skömmu og getið
hefir vqrið um hjer í blaðinu. En
samkvæmt yfirlýsingu lögreglustjóra,
í Reykjavík, er enginn fótur fyrir
þessu. En þetta mun liafa valdið,
ásamt öðru ef tíl vill, hinu sviplega
fráfalli Jóns.
Daginn áður en hann fjell frá,
hafði hann skrifað fjölda manna brjef,
og ráðið þar til lykta ýmsum mál-
efnum sínum. Brjef þessi öll hafði
hann látið leggia inn á lögreglustöð-
ina, og jafnframt brjef til lögreglu-
stjóra. í því segir hann honum, að
hann geti ekki aíborið þann orða-
sveim, sem um sig gangi í bænum,
og því grípi hann til þessa óyndis-
úrræðis.
Jón var hinn gerfilegasti og karl-
rriannlegasti maður, duglegur með
afbrigðum og drengur hinn besti.
Ættaður var hann úr Skagafirði.
Hann var orðinn efnaður vel. Á
síðari árum var hann nokkuð veill
fyrir hjarta, en vann þó af hinum
mesta dugnaði og afburða ósjer-
plægni að starfi sínu. Er að honum
mikill mannskaði.
Brúarsmiöir þeir, sem unnið hafa
að bygginu tveggja brúa í Svarfaðar-
dal f sumar, eru nú komnir hingað
alfarnir utan að og með öll áhöld.
Er því smíði brúanna lokið að fullu
og öllu. Heyrst hefur nú nýlega, að
von væri á fjármálaráðherra hingað
norður bráðlega, og verði honum
falin framkvæmd brúarvígslunnar.
Til lands og sjávar.
í*orsteinn Forsteinsson skip-
stjóri, að Þórshamri i Reykjavík varð
60 ára í gær. Hann er einn með
fremstu athafnamönnum þar syðra, og
var lengi skipstjóri á togara.
Hlutaveltu halda stúkurnar Brynja
og ísafold á morgun til ágóða fyrir
hússjóðinn. Verður þar vafalaust um
að ræða bestu hlutaveltuna á haustinu.
Má t. d. drepa á aðra eins drætti og
farmiða til Pingvalla 1930, tonn af
kolum, hina fegurstu mynd, sem kost-
ar mikið fje, kryddsíldaríunnu, korn-
mat, kassa af rúsínum og aðra stór-
góða og eigulega rauni.
KaupendurNorðlings, sem bústaða-
skifti hafa um þessi mánaðamót, eru
beðnir að láta afgreiðsluna vita um
það, svo fyrirbygð verði vanskil á
blaðinu.
Kvæðabók er komin á markað-
inn hjer eftir Davíð Stefánsson. Heit-
ir hún »Ný kvæði. Pað er allmikil
bók, um 10 arkir. Líklegast er, að
þar sje um bestu bók Davíðs að ræða.
Annars verður hennar minst rækilega
hjer í blaðinu innan skamms.
Friðun rjúpna. Eins og sjá má
af auglýsingu hjer í blaðinu i dag,
hefir dómsmálaráðuneytið ákveðið al-
friðun rjúpna þetta ár. Er ástæðan
sögð fækkun á rjúpum. Vafalaust er
mðrgum þeim, sem góðan arð hafa
haft af rjúpnaveiðum, fremur iítið um
þessa ráðstöfun gefið. En sjálfsagt er
að gera þær ráðstafanir meðan ifmi
er til, að rjúpunni fækki ekki úr hófi
fram.
Epli,
Appelsionr
08 Vínlier
komu með Islandl í
VERSL. GEYSIR.
Notuð íslensk tríinerEd
kaupi jeg ætíð hæðsta verði.
Biðjið um verðJista.
Duglegir umboðsmenn óskast til
að annast innkaup. Góð ómakslaun.
Rjarni GuðHfltdsson,
Túni. — Árnessýslu Hrg.
Ung kýr,
snemmbær, óskast til kaups. R.v.á.
Stúlka óskast
til að gera hrein búðargólf.
R. v. á.
TnxhaiiH,.t:„
Tvö rúmstæði
— notuð — annað fyrir fullorðna
hitt fyrir krakka, til sölu með tæki-
færisverði. R. v. á.