Norðlingur

Eksemplar

Norðlingur - 24.12.1929, Side 2

Norðlingur - 24.12.1929, Side 2
2 NORÐLINGUR JÓLAGLEÐI MANGA.* SAGA UR SVEITINNI. Sigríður, móðir Manga, bjó í litlu koti stundargang frá öðrum bæjum. Annað var ekki af fólki í kofanum en þau tvö. Sigríður bjarg- aðist áfram á nokkrum sauðskepn- um, sem hún átti, og á því, sem hún fjekk úr sjó hjá nágrc'nnunum, þegar vel aflaðist hjá þeim. Maður hennar var dáin fyrir þrem árum. — Mangi litli var duglegur. I-Iann passaði kindurnar vetur, sumar, vor og haust, og það svo vel, að orð var á gert. Nágrannarnir sögðu. að hann hefði fjármannsauga. En auk þessa starfa ljetti hann á ýmsa lund undir með móður sinni, — bar vatn í bæinn, sótti eldivið fyrir hana, og fór alla þá smá-snúninga, sem heimilið þarfnaðist.------ Aðfangadaginn, sem Mangi varð 11 ára, var hann snemma á fótum. Fyrst og fremst hafði nú móðir hans sagt honum, að hann yrði að gera óvenjulega vel við kindurnar í dag, því nú væru jólin, og kindurn- ar yrðu að fá einhverja aukagetu eins og mennirnir. Og hann yrði að sópa og þrifa fjárhúsið betur en svona hversdagslega. Hann var því fyr á fótum en hina dagana með- fram vegna þessa. En svo var ann- að, sem beinlínis vakti hann um morguninn. Hann hafði öðruhvoru verið að vakna um nóttina, og þá hafði jafnóðum skotið upp í hug hans, gegnum leiðslu og vímu svefn- rofanna, óljósri og þokukendri hugs- un um jólagjafir. Og nú vakti þessi hugsun hann löngu áður en venju- lega, og var þá orðin fullskýr og á- kveðin: »Hvað skyldi mamma gefa mjer í jólagjöf ?« Þegar mamma hans hafði fært honum kaffið í rúmið, og heitar lummur með, klæddi hann sig með mesta hraða, þvi nú mundi hann eft- ir ýmsu, sem hann þurfti að gera þennan dag. En hann gat einhvern veginn ekki fest hugann við neitt annað en jólagjafir. í’egar hann var klæddur, kom mamma hans til hans, og bað hann að sækja íyrir sig vatn í fötu áður en hann færi að gefa kindunum. Hann hljóp fram í eldhúskytruna og greip fötuna, ljettur í spori og ánægður. 3?egar hann kom út, sá hann, að veðrið var hið fegursta, bjart til lofts og góðviðrisblámi yfir fjöllum, en þó ofurlítill froststirningur. Á meðan rann í fötuna úr litlu lækjarbununni, kom jólagjöfin enn upp í hug hans. Hvað skyldi nú mamma gefa mjer núna. Ef til vill rósótta íleppa, eð nýja skó úr lituðu skinni með skjannahvítum brydding- um. Helst hefði hann nú kosið nokkra ýsubeinsfugla eða dýr, sem hann hafði nýlega sjeð á Hóli hjá drengjunum þar. Einn vinnumaður- inn var mesti dvergur að búa til þesskonar gripi. Og þeir voru nú ekki alveg ónýtir uð eiga og leika sjer að. Fuglarnir voru einkum mesta þing, — nærri þvi eins og lifandi, málaðir allavega litum: rjúp- an hvít, haninn með dæmalausu lit- skrauti og stórum bogadregnum stjel- fjöðrum, hrafninn auðvitað kolsvart- ur eins og hann átti að vera og æðarblikinn hvitur og svartur. En líklega gat það nú ekki látið sig gera, að hann fengi þessa fugla. Og það var nú gott, þó það yrði aldrei nema sauðskinnsskór. Á þeim gæti hann farið til kirkju um jólin og sýnt hinum krökkunum ó- mótmælanlega, að það væri langt frá því, að hann gengi eins og ræf- ill til fara á jólunum. Hann vaknaði upp af þessum hugsunum við það, að mamma hans kallaði heiman frá bæjarveggnum og spurði, hvaða ósköp hann væri lengi að ná í vatnið. Hann rogaðist með fulla fötuna heim og settt hana á eldhúsgólfið. Um leið leit hann á mömmu 9ína eins og til þess að vita, hvort hann gæti ekki sjeð á henni, hvað hún ætlaði honum í jólagjöf. En hann fjekk engan grun um það. Mamma han.s leit "hðeins á hann með sínu venjulega ástúðartilliti, greip svo föt- una og helti úr henni í pott á hlóð- unum. — Nei — hann 37rði auðvit- að bíða til kvölds með þetta, hann fengi ekkert að vita fyr en þá. — Er nú ekki kominn tími til fyrir þig að gefa kindunum, Maggi minnP'spurði mamma hans. — Jú — nú fer jeg, sagði hann, og skaust út úr dyrunum. Þegar í fjárhúsið kom, gleymdi hann jólagjöfinni um stund. Tað voru nú að vísu elcki nema 10 ær og 3 gemlingar, sem hann átti að sjá um, hjörðin var ekki stærri. En í augum 11 ára drengs var það’ mikill hópur og mikið verk og vandasamt að hirða hann og sjá um, að honum liði vel. Og margs var að gæta við þessar 13 kindur. Kolla var nú t. d. svoleiðis, að hún hafði sig aldrei eftir, það var eins og hún væri íeimin, það varð að sjá um, að hún kæmist að garðanum jafn- framt hinum, og helst að standa um stund hjá henni meðan alt var að komast í ró við jötuna. Og svo var það Móra, sem aldrei gat feng- ið sig til að jeta nema á vissum stað við garðann. Fengi hún það ekki, var hún viss með að rölta út í króarhorn og standa þar fýld og dapurleg á svip. Alt þetta og miklu fleira þurfti Mangi litli að sjá urn. Og það var ærið verk fyrir ekki stærri pilt. Þetta var snemma morguns, svo koldimt var enn í húsinu. Mangi kveikti því á grútarlampa sem hjekk í stoðinni við garðahöfuðið. Við það tyá ofurlitlum bjarma um húsið. Og þá varð alt miklu skemtilegra. Þá gat hann eins og horfst í augu við þessa kunningja sína alla, sem biðu eftir máltíðinni úr höndum hans. Þegar hann hafði kveikt, skreið hann upp í tóftina. Tar var vitaskuld koldimt. En Mangi var þar svo kunnugur, að hann þuríti þar ekk- ert ljós. Hann var að gefa úr norð- ari geilinni, og tók nú að losa heyið. Hann glejmtdi jólagjöfinni með öllu, og fór að hugsa um, að Björn á Hóli hefði komið um daginn inn í tóftina til hans og skoðað heybirgðir og allan umgang hans. Og hann hafði verið ánægður með hvoru- tveggja. Svo bar hann bneppið fram í garð- ann, dreyfði því eftir honum. Ærnar ruddust að gjöfinni, og Mangi leit út undan sjer til þess að vita, hvort Kolla kæmist nú að, og Móra á sinn stað. Já — það bar ekki á öðru. En það voru nú líka jólin. Og þá hlaut alt að falla í ljúfa löð. Þegar Mangi hafði lokið því, sem gera þurfti í húsinu, gekk hann heirn. Mamma hans var að láta hangikjötsbóg ofan í potrinn. Tá.

x

Norðlingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðlingur
https://timarit.is/publication/783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.