Norðurland - 20.04.1977, Blaðsíða 7
DAGBOk
VlkUNNAR
• Um helgina
Akureyrarkirkja: Skátamessa
sum'ardaginn fyrsta kl. 11 fh.
Messa sunnudag kl. 2 eh. - BS.
Messað í Grímsey 24. þm. (1.
sunnudag í sumri) kl. 2 eh.
Sálmar 476, 96, 478, 481 og
518. - P.S.
Samkoma votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, 2. hæð,
sunnudaginn 24. apríl kl. 16.00.
Fyrirlestur: Góðar fréttir úr
bestu átt. Allir velkomnir.
Síðdegisskemmtun fyrir aldr-
aða í Sjálfstæðishúsinu nk.
sunnudag kl. 3. — Félagsmála-
stofnun Akureyrar.
• Gjafir til FSA
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak
ureyri hafa borist eftirtaldar
gjafir: Til minningar um Sum
arrósu Sigurbjörnsdóttur frá
Sigríði Guðmundsdóttur kr.
1000. Gjöf frá Ragnhildi Jóns
dóttur, Elliheimili Ak., kr.
10.000. Til minningar um
Helga Jakobsson, Ytra-Gili,
frá börnum Eiríks Helgasonar
fró Dvergsstöðum kr. 10.000.
Gjöf frá Oddnýju Jónsdóttur
kr. 5.000. Til barnadeildar í
minningu Júlíu Stefánsdóttur
frá afa og ömmu, Þuríði Jóns-
dóttur og Magnúsi Júlíussyni,
Sunnuhvoli, kr. 10.000. Til
minningar um Gunnar Bald-
vinsson Ólafsfirði, frá Krist-
jáni Rögnvaldssyni kr. 5.000,
frá Finni Björnssyni kr. 1.000,
frá Vigfúsínu og Gunnlaugi
Vigfússyni kr. 5.000. Gjöf frá
Guðfinnu Jónsd. kr. 11.800.
Frá Eyfirðingafélaginu í Rvík
til barnadeildar kr. 250.000.
Til minningar um hjónin Jako
bínu Guðbjartsdóttur og Jón
Almar Edvaldsson frá börn-
um þeirra kr 100.000. Gjöf frá
öskudagsliði kr. 1.300. Áheit
frá K.G.G. kr. 1.000. Til barna
deildar frá Margréti og Guð-
finnu kr. 1.000. Frá þakklát-
um vini kr. 40.000. Gjöf frá
Guðrúnu Á., Guðlaugu, Heiðu,
Hafdísi og Karen til barna-
deildar kr. 12.700. - Með þakk
læti og bestu óskum til gef-
enda. - Torfi Guðlaugsson.
• Ferðalög
Ferðafélag Akureyrar: Göngu
ferð á Hólafjall kl. 13 sunnu-
daginn 24. apríl. Ekið að Þor-
móðsstöðum og gengið þaðan.
Þátttaka tilkynnist í sima
23692 laugardag kl. 19—21.
• Fundir
Félag verslunar og skrifstofu-
fólks: Almennur félagsfundur
á skrifstofu félagsins, Brekku
götu 4, 28. apríl kl. 18.15. —
Fundarefni: 1) Lagabreyting-
ar. 2) Heimild til verkfallsboð
unar. — Stjómin.
• Alltaf uppselt
á Bugsy Malone
Síðan Borgarbíó fór að sýna
myndina Bugsy Malone í síð-
ustu viku hefur alltaf verið
PISTILL VIKUISINAR:
• •
Oreigar allra
landa ••••
Fyrir þremur og hálfu ári snerist fasistísk herforingja-
klíka í umboði burgeisanna í Chile gegn löglega kjörinni
stiórn Allendes forseta, steypti henni af stóli og endur-
reisti þar í Iandi alræði auðvaldsins, — að sjálfsögðu
með stuðningi frelsisenglanna í Hvíta húsinu eins og fyrri
daginn.
I kjölfar gagnbyltingarinnar hófst alda pólitískra morða
og hryðjuverka sem ekki áttu sér neína hliðstæðu á síðari
tímum. I Morgunblaðinu talaði einhver um „sigur lýð-
ræðisins“.
Og auðvitað var þetta sigur „lýðræðisins“ í sama skiln-
ingi og auðvaldið leggur í það orð. Þar kveinka menn sér
ekki við því að tala um „frjálsan útvarpsrekstur" þött í
landi heyrnleysingja sé, „prentfre)si“ þar sem enginn kann
að lesa eða „fundafrelsi“ handa hlekkjaþrælum, enda
allt saman skrásett vörumerki.
Við hin látum ekki gabbast: auðvitað táknar „frjáls út-
varpsrekstur“ á máli burgeisanna ekki annað en frelsi
handa auðkýfingum til að reka áróður í krafti peninga-
valds. Það er því nauðsynlegt að skoða hugtök eins og
frelsi ogj Iýðræði í því samhengi sem þau koma fyrir í,
einungis þannig getum við áttað okkur á raunverulegu
innihaldi þeirra.
Lítum nú á blessað lýðræðið í Chile. V-þýska tímaritið
„Stern“ birti fyrir nokkru grein um ástandið í þessu Iandi
og afleiðingar gagnbyltingar burgeisanna. Þar segir frá
Chicago drengnum Milton Friedman sem herforingja-
stjórnin fékk til fulltingis sér við stjórn efnahagsmála.
Ætla mætti að þessi Nóbelsverðlaunahafi og talsmaður
svæsnustu auðvaldshyggju sem um getur hefði fengið
þarna hin ákjósanlegustu starfsskilyrði, þar sem engin
verkalýðshreyfing er hinum „frjálsu einstaklingum“ fjöt-
ur um fót I Chile.
Jú, aðferðirnar voru ekki dónalegar: þau fyrirtæki sem
Allendestjórnin hafði þjóðnýtt voru aftur fengin „dugandi
einstaklingum“ í hendur, miklum fjölda manna var sagt
upp störfum og kaupið hjá hinum Iækkað gífurlega. Eða
eins og einn stjórnmálamaður orðaði það: Grindhoruðum
sjúldingnum sem Iapti dauðann úr skel var ráðlagt nýtt
mataræði: eta ekki neitt.
Takmarkið var náttúrulega þar eins og hér að koma
í veg fyrir bannsetta verðbólgjuna. Og árangurinn af hinu
hávísindalega Iæknisráði Chicagó-drengsins fræga lét ekki
á sér standa: verðbólgan minnkaði úr 340,7% á árinu
1975 í um það bil 170-180% á árinu 1976! Framleiðslan
minnkaði um 25%, brúttó þjóðarframleiðsla minnkaði
um 14,7% sem var algjört heimsmet.
Atvinnuleysið í verkamannahverfunum er nú um 63 %!
Og þar fyrir utan hefur ein milljón manna flúið land og
þar á meðal flestir menntamenn landsins.
Það er því vel við hæfi að „vísindamaður“ á borð við
Milton Friedman hljóti Nóbelsverðlaunin; annar eins af-
reksmaður er sjálfsagt ekki á hverju strái í hinum „frjálsa
heimi“.
Þótt þessar tölur séu hrikalegar, sega þær í rauninni
fátt um líðan fólksins í Chile, umskiptin frá fyrri tíð
og það óbætanlega tjón sem orðið hefur nú þegar. Hvern-
ig er t. d. hægt að bæta fyrir þær heilaskemmdir sem
börn hafa orðið fyrir vegna vannæringar?
Prestur einn í Chile sag)ði við blaðamann „Stem“, að
hann teldi að ríkisstjórnin ætlaði sér hreinlega að gera
heila kynslóð að Iíkamlegum og andlegum krypplingum,
ganga þannig frá henni að fólk hefði eftir það ekki áhuga
á að skipta sér af pólitík.
Þetta er auðvaldið nakið og grímulaust. í Chile sést
best til hvaða ráða auðvaldið er reiðubúið að grípa ef
svipta á það forréttindaaðstöðu og arðránsmöguleikum
sínum. Dæmið frá Chile sýnir okkur einfaldlega einn hlut:
hvernig auðvaldið hagar sér ef það fær að leika lausum
hala og verkalýðshreyfingin er niðurbrotin, kúguð og
kraftlaus. Þetta ætti að vera verkalýð heimsins hvatning
til alþjóðlegrar samstöðu og markvissari baráttu. Orð Marx
og Engels eiga við enn í dag og aldrei eins og nú: „öreigar
allra landa sameinist!“ — þá
Jodie Foster, sem leikur söng-
konuna Talullah í Bugsy
Malone.
uppselt og er það ekki síst
yngsta kynslóðin, jafnaldrar
leikaranna í þessari mynd og
þaðanaf yngri, sem stendur í
biðröð eftir miðum. En nú fer
hver að verða síðastur. Mynd-
in verður sýnd áfram í kvöld
og á morgun, sumardaginn
fyrsta, en síðan verður senni-
lega skipt um, þótt enn sé ekki
fullákveðið 'hvaða mynd tekur
við. Af myndum sem væntan
legar eru á næstunni má nefna
„Ef ég væri ríkur“, ítalsk-
bandaríska hasarmynd, „Piaf“
um ævi frönsku söngkonunnar
Edith Piaf, „Syndin er lævís
og . . .“ ítölsk, um ástir í mein
um, og „Kona prestsins",
bandarísk gamanmynd með
Sophiu Loren í aðalhlutverki.
Sendum viðskiptamönnum okkar og
landsmönnum öllum bestu óskir um
GLEÐILEGT SUMAR
Slippstöðin hf. Akureyri
Sendum viðskiptamönnum okkar og
landsmönnum öllum bestu óskir um
GLEÐILEGT SUMAR
Kaupfélag Svalbarðseyrar
NORÐURLAND — 7