Norðurland - 05.04.1979, Side 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fimmtudaginn 5. apríl 1979 12. tölublað
Vandrœðaástand á Raufarhöfn
Slœmar samgöngur
Raufarhöfn 2/4. Samgöngu-
málin eru okkar aðal höfuð-
verkur um þessar mundir. Að
vísu hefur sæmilega gengið að
halda uppi flugsamgöngum en
vegna hafíss hefur sjóleiðin lok-
ast alveg fyrir Sléttu og Langa-
nes.
Togarinn Rauðinúpur land-
aði afíanum á Húsavíksíðast og
varð að aka þeim afla hingað á
bíium. Vinnu við þann afla
lýkur nú í vikunni og er þá
yfirvofandi atvinnuleysi í frysti-
húsinu ef ekki rætist úr með
ísinn. Þeir bátar sem hafa verið
á þorskveiðum hafa tekið upp
net sín. Megnið af grásleppu-
netunum liggja undir ís og hafa
ekki náðst. Samgöngu-
leysi á landi er búið að vera
mjög bagalegt undanfarinn
mánuð. Ýtt er einu sinni í viku, -
á mánudögum. Þá leggja flutn-
ingabílar héðan af stað til
Reykjavíkur og koma aftur á
fimmtudegi. Hafa þeir þá þurft
að biða á Kópaskeri til næsta
mánúdags, eftir því að 20 km.
langur kafli frá Blikalóni og
hingað, verði ruddur á mánu-
degi. Hins vegar hefur á þessum
tíma verið fært allt frá Blikalóni
suður til Reykjavíkur.
Hingað kom mjólk þriðju-
daginn 27. mars og var síðasti
söludagur stimplaður 2. apríl,
þ.e. stimpluð sex daga fram í
tímann. Þætti fólki gaman hér
að heyra hljóðið í Reykvíking-
um , ef þeim væri boðið upp á
slíkta þjónustu. Næsta mjólkur-
sending kemur á morgun 3.
apríl. Annars hefur mjólk verið
með skársta móti í vetur. Við
höfum mátt búa við mjólk sem
hefur verið send hingað súr og
skemmd undanfarna vetur.
Allar nauðsynjavörur koma
hingað með bílum, þess vegna
ættu stjórnvöld að gera strax
viðeigandi ráðstafir til að halda
samgönguleið á landi opinni.
Mörgum finnst kaldhæðnislegt
að sjá hér standa snjóruðnings-
tæki að mestu ónotað utan einn
dag í viku, meðan á sama tíma
er mjólkurlaust, brauðlaust og
skortur á ýmsum öðrum nauð-
varningi. Hjá saumastofunni
Útskálum eru mörg verkefni
framundan, en slæmar sam-
göngur gera þeirra starfsemi
mjög erfitt um vik. Allt hráefnið
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumiðlunarskrifstofu Ak-
ureyrarbæjar voru 52 skráðir
atvinnulausir á Akureyri þann
30. mars. Það eru 27 konur og
25 karlar (27 verkakonur, 13
vörubílstjórar, 9 verkamenn, 2
trésmiðir, 1 skrifstofumaður).
Atvinnuleysisdagar í mars
voru 1012, en voru 782 í sama
mánuði í fyrra. Ekki gefa þessar
tölur þó rétta mynd af hinu
raunverulega ástandi. Svo sem
alræmt er, þá misstu um 90
manns, aðallega konur atvinnu
sína í Niðursuðuverksmiðu K.
Jónssonar um miðjan febrúar.
Af þessum 90 létu ekki nema 65
skrá sig á Vinnumiðlunarskrif-
og fullunnar vörur eru fluttar
með bílum. Þar vinna nú um 12
manns. Líney
Þórshöfn:
Veiða tófuna
í stað grásleppu
Þórshöfn 3/4. A sunnudaginn
lauk hannyrðanámskeiði, sem
Ingibjörg Asgeirsdóttir frá Dal-
vík stjórnaði. Leikfélagið hefur
unnið sleitulaust amk. á meðan
ísinn bannar aðra björg, að því
að æfa Svefnlausa brúðgum-
ann.
Frumsýning verður á fimmtu
dagskvöldið. Leikstjóri er Sig-
urbjörg Árnadóttir. Fjörðurinn
er alveg fullur af ís og engar sigl-
ingar því um hann. Þar á ofan er
sjaldan rutt og lengi ófært á
landi. Atvinnuástandið er öm-
urlegt núna, fólk hefur fundið
sér sitthvað til dundurs, í leik-
félaginu, á hannyrðanámskeið-
inu og sumir grásleppukarlar
eru farnir að stunda tófuveiðar í
ótíðinni. Það er gott sleðafæri
og tófubanar hafa fengið tölu-
vert- Arnþór/óg
Þessi litlu kríli eiga eftir að
verða kjúklingar á veislu-
borðum landsmanna einn
góðan veðurdag. Um leið og
við óskum lesendum þægi-
legra páska, særum við allar
góðar, rauðar vættir til fylgis
við sumarið og betri tíð.
Þetta tölublað er það síðasta
af NORÐURLANDI fyrir
páska. Næsti útgáfudagur er
fyrirhueaður 18. apríl. Efni
þarf að berast fyrir 11. aprfl.
NORÐURLAND minnir
ennfremur á útistandandi
Gíróseðla og áskrifendaher-
ferðina, sem gengur vel.
Vorið kemur að hugga,
stendur á einum stað, - megi
blaðið hitta lesendur sína
heila fyrir.
52 atvinnulausir
stofunni. Sannleikurinn ersáað
næstum því önnur hver gift
kona hefur ekki bótarétt vegna
þess að eiginmaðurinn hafði
hærri tekjur sl. 12 mánuði en
miðað er við í gömlum lögum
um atvinnuleysitryggingar. 14
af 60 konum sem létu skrá sig í
febrúar fengu af fyrrgreindum
ástæðum engar atvinnuleysis-
bætur. Það þjónar því engum
tilgangi fyrir margt fólk að láta
skrá sig á atvinnuleysisskrá, —
og til lengdar er því ekki hægt
að fylgjast með raunverulegu
atvinnuleysi. 35 þeirra sem
skráðir voru í feb. atvinnulausir
fengu vinnu aftur hjá K. Jóns-
syni fyrir mán.mót feb.-mars.
Hitaveitan:
„Bormenn íslands
U
Borinn NarFi, sem verið hefur á
Laugalandi og festist svo oft
auk annara erfiðleika að undan-
förnu, fór á þriðjudaginn til
Blönduóss að bora þar eina
holu fyrir hitaveituna þar.
Holunni á Laugalandi tókst
að bjarga með þrautseigju og
allri þeirri bortækni ,sem „bor-
menn íslands“ ráða yfir . Er nú
búið að ganga þannig frá hol-
unni til dælingar með stálfóðr-
ingum að hún er orðin best
unna hola Hitaveitunar hingað
til. Verið er að lofdæla holuna
til að hreinsa.hana og virðist
hún geta gefið ca. 70-80 sek-
úndulítra. Hver heildarvatns-
aukningin af Laugalandssvæð-
inu verður, kemur ekki endan-
lega í ljós fyrr en vinnsludæla
verður sett í hana einhverntíma
með vorinu.
Byrjað var að dæla úr fyrstu
holunni á Ytri-Tjörnum sl.
föstudag, - og hefur verið dælt
úr henni 50-60 sekúndulítrum
síðan. Ekki verður borunum
hætt þótt Narfi yfirgefi okkur í
bili, -jarðborinn Glaumur, sem
nú er að bora við Hrafnagil,
hefur boranir fyrir Hitaveitu
Akureyrar strax og hann losn-
ar, en áætlað er að það verði fyr-
ir páska. Tekur hann þá til við
nýja holu að Ytri-Tjörnum sem
er þriðja holan þar.
Útboð í fyrsta dreifikerfis-
áfanga sumarsins verður opnað
á morgun, en alls verða boðnir
út sex dreifikerfisáfangar auk
annarra áfanga dreifikerfis í
Öngulsstaðahreppi núna í vor
og sumar. b.I.S.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fundur hjá Bæjarmálaráði ABA nk.
mánudagskvöld kl. 20.30.
Fundurinn er í Lárusarhúsi.
Félagar eru hvattir til að mæta.
íjí Verðlagskönnun Neyt-
endasamtakanna á páska
eggjum á bls. 3.
Sagt frá starfsemi íþrótta Baráttufundir um þrjátíu
félagsins Eikar. ára þjóðarsmánina á
Bls. 5. baksíðu.
V